SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Qupperneq 20
20 2. maí 2010
G
læný fimmtíu mínútna heim-
ildarmynd íslenska fyrirtæk-
isins Profilm var frumsýnd á
besta útsendingartíma þeirrar
heimskunnu, bandarísku sjónvarps-
stöðvar National Geographic á fimmtu-
dagskvöldið. Hið merkilega er að myndin
er að miklu leyti um eldgosið í Eyja-
fjallajökli og áhrif þess, en gosið hófst
sem kunnugt er fyrir einungis rúmum
tveimur vikum.
Fyrirhugað efni er ekki tekið á dagskrá
slíkrar gæðastöðvar með svo skömmum
fyrirvara vegna hvers sem er, en nánast
um leið og gosið hófst með alkunnum af-
leiðingum fyrir flugumferð víða um
heim, ákváðu forráðamenn National
Geographic að slá til og koma þessu glóð-
volga efni fyrir sjónir Bandaríkjamanna
eins skjótt og mögulegt væri. „Þeir sögð-
ust vilja setja myndina á dagskrá eftir 13
daga!“ sagði Anna Dís Ólafsdóttir, yf-
irframleiðandi Profilm, við Morg-
unblaðið á fimmtudaginn, þar sem hún
og Jóhann Sigfússon leikstjóri unnu að
lokafrágangi myndarinnar í Salt Lake
City í Utah-ríki.
Frumsýna átti myndina í öðrum
enskumælandi löndum degi eftir sýningu
á bandarísku stöðinni, hún verður sýnd í
Skandinavíu um miðjan maí og fljótlega á
öðrum málsvæðum.
Hröð handtök
„Við fylgdumst með jarðskjálftavirkninni
síðustu vikurnar áður en gosið í Fimm-
vörðuhálsi hófst [seint í mars], söfnuðum
miklu myndefni og tókum viðtöl við vís-
indamenn. Við létum þá hjá National
Geographic vita að töluverðar líkur væru
á því að eitthvað gerðist og þeir voru
mjög spenntir. Við sendum þeim myndir
frá Fimmvörðuhálsi eftir að gosið hófst
þar og þeir vildu ólmir fylgjast með,“
segir Anna Dís.
Um leið og byrjaði að gjósa í Eyja-
fjallajökli með alkunnum truflunum á
flugumferð víða um heim voru forkólfar
sjónvarpsstöðvarinnar fljótir að ákveða
sig.
„Okkur óraði ekki fyrir því, þegar við
tókum fyrsta viðtalið við Magnús Tuma
[Guðmundsson jarðfræðing] tveimur
vikum fyrir gosið að búið yrði að frum-
sýna heimildarmyndina nokkrum vikum
seinna!“ segir Anna Dís.
„Þungamiðjan er öll sú truflun sem
varð á flugi. Myndin hefði væntanlega
ekki verið gerð nema vegna þess hve
mikil áhrif gosið hafði á daglegt líf fólks
að því leyti,“ segir Jóhann. Flug hefur
ekki farið jafn mikið úr skorðum síðan
hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11.
september 2001.
Starfsmenn Profilm eru fimm; Hinrik
Ólafsson, Gunnar Konráðsson og Ög-
mundur Sigfússon auk Önnu Dísar og Jó-
hanns. Sigtryggur Baldursson vann að
nýju myndinni með þeim sem hljóð-
maður. Nóg hefur verið að gera und-
anfarið og Anna segir miklu máli skipta
að hópurinn sé samheldinn.
Ætluðu að klára í september...
„Við byrjuðum að vinna myndina með
það í huga að klára hana í september, en
þegar þeir hjá National Geographic sáu
efnið og vildu fá hana strax urðum við
auðvitað við því. Það er líklega dálítið ís-
lenskt; við kýldum bara á það!“ segir Jó-
hann. „Það nýtist okkur vel að vera með
stóran myndabanka um Ísland. Við eig-
um myndir af nánast hvaða eldfjalli,
hrauni eða bæjarfélagi sem er á Íslandi.
Það gerir það líka að verkum að við get-
um gert myndina á svona stuttum tíma.“
Hópurinn frá Profilm var við öllu bú-
inn. „Við vorum fyrsta fólkið sem komst
á jökulinn eftir að gosið hófst; vorum
komin þangað með þyrlu mjög fljótlega,“
segir Anna Dís.
Unnið var baki brotnu heima á Íslandi
dögum saman en í síðustu viku voru þau
Jóhann drifin vestur um haf með sólar-
hrings fyrirvara til þess að ljúka end-
anlega við myndina; klippa hana til og
ljúka hljóðvinnslu. Það var gert hjá sam-
starfsfyrirtæki þeirra í Salt Lake City.
„Hér hafa þrír klipparar unnið allan
sólarhringinn við að klára þann þátt,
grafískir hönnuðir og fleiri. Þetta var bú-
ið fyrir tveimur klukkutímum, myndin
Góð land-
kynning til
lengri tíma
Óhætt er að segja að íslensk heimildarmynd sem
frumsýnd var á bandarísku sjónvarpsstöðinni
National Geographic á fimmtudagskvöldið sé
glóðvolg. Hún fjallar um gosið í Eyjafjallajökli.
Við Fimmvörðuháls að kvöldlagi skömmu áður en gosinu þar lauk. „Fólk var þá farið að hætta sér dálítið
Eldgosið
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Ljósmyndir/Gunnar Konráðsson