SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Qupperneq 29
2. maí 2010 29
lagi. Þeir eru með skilanefndir sem heyra ekki
undir neinn, sem skipa bankastjórnir sem heyra
ekki undir neinn og eru með bankasýslu yfir öllu
saman með stjórnanda sem ekki er ljóst að hafi
hreinan skjöld í bankamálum og með óljóst um-
boð. Og út úr öllum þessum þokukennda farvegi
eru bankarnir sjálfir komnir í hendur eigenda,
sem í öðru orðinu eru sagðir bera ábyrgð á öllu
saman og í hinu að ekki sé hægt að upplýsa
hverjir séu af því að það viti það enginn. Og
Steingrímur og Jóhanna halda því svo fram að
rannsaka þurfi gömlu einkavæðinguna. Þau hafa
verið staðin að verki. Það er augljóst að á sama
tíma og bændahjón eru hrakin af jörð sinni er
verið að færa gömlu svindlurunum landið aftur á
silfurfati. Mönnunum sem dældu peningum í
stjórnmálamennina og stjórnmálaflokkana. Pen-
ingum sem þeir fengu alla að láni í hinum föllnu
bönkum og munu aldrei borga. Þetta er gert með
samþykki þeirra Jóhönnu og Steingríms. Skiptir
þá engu hvort það er þegjandi eða í heyranda
hljóði. Þau hafa verið staðin að verki. Á meðan
eru fjölskyldurnar í ólgusjó fjárhagsvandræða og
örvæntingar dregnar á asnaeyrunum og að lokum
sviknar. Tíminn fer allur í að reyna að styrkja
stöðu skuldugra Hummer- og Range Rover-
eigenda. Félagsmálaráðherrann var staðinn að
því verki. Og á meðan á öllu þessu stendur er
milljörðum króna hent í aðildarviðræður um
Evrópusamband sem getur ekki séð sínum eigin
málum borgið. Út úr því mun ekkert koma. Öss-
ur hefur verið í umboðslausum viðræðum um að-
lögun að ESB, en með umboð um aðildarviðræður
á þeim forsendum að um raunverulega könnun
væri að ræða. Hann hefur verið staðinn að verki.
Risið á honum hefur ekki hækkað þrátt fyrir sí-
felld samtöl við stækkunarstjórann. Trúverð-
ugleiki hans minnkar í hlutfalli við fjölda funda
með stækkunarstjóranum.
O
g það sem við höfum orðið vitni að er í raun lítil æfing fyrir það sem mun
gerast, ekki ef, heldur þegar Katla gýs,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, í viðtali við BBC í byrjun vikunnar.
Þar sagði hann að afleiðingar eldgossins Eyjafjallajökli gætu verið ein-
ungis upphafið á atburðarás, sem ætti eftir að endurtaka sig út 21. öldina. Reynslan sýndi
að eldfjöllin á Íslandi gysu reglulega og gætu valdið stórkostlegu tjóni á nútímavæddum og
háþróuðum samfélögum og hann klykkti út með að eldgos í Kötlu nálgaðist.
Það varð síðan tilefni annars viðtals forsetans, að þessu sinni á bandarísku fréttastöð-
inni CNBC. Fyrsta spurningin var sú, við hverju mætti búast af því eldgosi sem væri yf-
irvofandi og enn stærra. Hann sagðist ekki vita hvort það eldgos yrði næstu fimm, tíu eða
fimmtán árin, eða jafnvel fyrr. Þá sagði hann að eldgosið í Kötlu og önnur eldgos, sem bú-
ast mætti við á næstu tuttugu til þrjátíu árum árum, myndu hafa „dramatískar afleið-
ingar“ fyrir flugsamgöngur um allan heim.
Óhætt er að segja að ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar í erlendum fjölmiðlum hafi fall-
ið í grýttan farveg hjá forystufólki ferðaþjónustunnar á Íslandi. Enda koma þau á versta
tíma. Mikið er um afbókanir á ferðum til Íslands og skaðinn nemur milljörðum. Ekki sér
fyrir endann á því.
Víst er að flugmálayfirvöld um allan heim, ekki síst innan Evrópusambandsins, munu
draga lærdóm af þessari reynslu. Ekki þarf Ólaf Ragnar til. En á þessum tímapunkti er
meiri þörf á því að róa fólk, en að koma með frekari spár um heimsendi. Og auðvitað væri
æskilegt að stjórnvöld samhæfðu skilaboð sín til þess að lágmarka skaðann.
Ástæða er til að rifja upp ummæli Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings, sem hann lét
falla í Sunnudagsmogganum 28. mars, en þar var hann spurður um þann möguleika, að
Kötlugos fylgdi í kjölfarið á gosinu í Eyjafjallajökli. „Já, það er nú það,“ sagði Haraldur.
„Það hefur verið rætt um að stundum hafi komið Kötlugos skömmu eftir gos í Eyja-
fjallajökli. Þá er spurningin hvort það sé tilviljun eða orsök og afleiðing. Ég sé ekki nein
tengsl þar á milli. Kvikan sem kemur þarna upp er ekki sú sama og við höfum séð í Kötlu.
Kvikan í Kötlu er sérkennileg með hátt títan og járn. Hvergi í heiminum er til hraunkvika
með jafnmikið títan og í Kötlu, 5% títan, sem er verðmætur málmur. Það er bara dýrt að
vinna hann úr berginu.
Kvikan í öllum eldfjöllum hefur viss efnafræðileg einkenni, sem eru eins og fingraför –
hvert eldfjall hefur sitt fingrafar. Við getum fundið ösku í hafi og greint hvort hún er úr
Öskju eða Kötlu. Þetta er eins og erfðagreining. Hvert fjall hefur sinn persónuleika hvað
snertir efnafræðina. Og annar persónuleiki kemur fram í Eyjafjallajökli en Kötlu. Enginn
veit hvað gæti gerst, en ég sé ekki ástæðu til að halda því fram að þetta sé forspil fyrir
Kötlu. Ég bendi líka á að engin óvenjuleg skjálftavirkni er í Kötlu eða í Goðabungu, sem er
á milli Eyjafjallajökuls og Kötlu, austan Fimmvörðuháls.“
Það er að minnsta kosti freistandi að álykta, að þegar eldfjall gýs á Íslandi og setur flug-
samgöngur í heiminum úr skorðum, þá sé síst þörf á því, að forseti Íslands fari um og vari
heimsbyggðina við því að önnur eldfjöll á Íslandi geti gosið og sett flugsamgöngur í heim-
inum enn meira úr skorðum.
Hvert eldfjall hefur sitt fingrafar
„Ég held að það sé áhugavert að eld-
ast. Meðal annars að þú getir fengið
þér blund hvenær sem þú vilt og sagt
það sem þú vilt virkilega segja.“
Breski kvikmyndaleikarinn Jude Law.
„Ég verð að minnsta kosti tvö ár í
viðbót, á nóg eftir eins og sást á
kerlingunni.“
Hrafnhildur Skúladóttir burðarás Valskvenna eft-
ir að fyrsti Íslandsmeistaratitillinn í
27 ár var í höfn.
„Ekki vildi ég renna
á staðnum þar
sem Evra
kastaði upp.“
Hörður Magnússon spark-
lýsandi Stöðvar 2 Sport 2
eftir að Patrice Evra leikmaður
Manchester United seldi upp í
miðjum leik gegn Tottenham.
„Við vorum félagar
þegar hann lá í rúminu
í þágu friðar.“
Ringo Starr sem samið hefur
nýtt lag um John Lennon.
„Ef geimverur heimsæktu okkur
kynni niðurstaðan að verða svipuð
og þegar Kólumbus fór til Ameríku.
Það var ekki mjög hagstætt fyrir
frumbyggjana í Norður-Ameríku.“
Breski stjarneðlisfræðingurinn Stephen Hawk-
ing.
„Þetta var algjört stórslys. Þetta var
bara einhver fordómafull kona.“
Gordon Brown forsætisráðherra
Breta við aðstoðarmann sinn eftir
að hafa rætt við eldri konu í Roch-
dale.
„... það er virkilega
skrýtið, en lyktin út úr
mér er frábær.“
Söngkonan Jessica Simpson
burstar sjaldan tennurnar.
„Það þarf ekkert að
rökræða lengur um
það hverjir eru bestir
á Íslandi.“
Hlynur Bæringsson leik-
maður Íslandsmeistara
Snæfells í körfubolta.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal