SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Síða 38

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Síða 38
38 2. maí 2010 B jörgvin Barðdal eigandi Segla- gerðarinnar Ægis fór ásamt Jón- asi Björnssyni samstarfsmanni sínum til Haítí á dögunum og sló upp tjaldbúð fyrir heimilislaus börn. Hann segir ferðina mjög eftirminnilega, ástandið hafi verið afar slæmt en þakklætið mikið hjá börnunum sem fengu húsaskjól þegar tjöldin voru komin upp. „Við fréttum af því að mikið vantaði af tjöldum eftir jarðskjálftann og fórum út í það, í samstarfi við Rauða krossinn, að hanna og sauma sterk neyðartjöld, sem gætu dugað bæði á norðurslóðum og í miklum hita en væru þó létt og því auðvelt að flytja á milli landa,“ segir Björgvin. Velferðarsjóður barna styrkti verkefnið. Þar á bæ höfðu menn samband við Pétur Guðjónsson, stofnanda húmanistafélag- anna á Haítí og Íslandi, því þeir vildu koma munaðarlausum börnum til hjálpar eftir jarðskjálftann. Pétur ræddi við Björg- vin „og við drifum því í að hanna og sauma tjöldin og buðumst svo til að fara út á okkar kostnað til þess að koma þeim upp,“ segir eigandi Seglagerðarinnar. Æg- ir seldi tjöldin á kostnaðarverði, að sögn Björgvins, og samið var við TVG Zimsen um að koma þeim utan án endurgjalds. Tjöldin voru send til Dóminíska lýð- veldisins, hins ríkisins á eyjunni Hisp- aníólu, því ekki var hægt á þeim tíma að fljúga til Port au Prince, höfuðborgar Haítí. „Fyrsta ævintýrið sem við lentum í var að tollafgreiða vörurnar út úr Dóm- iníska en eftir sólarhrings japl, jaml og fuður sömdum við um að einn tollarinn kæmi með okkur að landamærum Haítí – sem var sex tíma keyrsla – til þess að þeir gætu verið vissir um að við værum á leið þangað,“ segir Björgvin. „Það var hrikalegt að keyra í gegnum Port au Prince, eyðileggingin algjör, hit- inn mikill og lyktin yfirþyrmandi.“ Eftir tveggja tíma akstur í gegnum borgina var ferðinni haldið áfram upp í sveit í rúmar fimm klukkustundir. „Við áttum að setja upp tjöld fyrir 40 börn en þau voru 50 sem biðu spennt! Við drifum tjöldin því upp til þess að börnin hefðu svefnstað og það var nóg pláss fyrir alla.“ Á þessum stað voru skemmdir vegna jarðskjálftans mun minni en nær upp- tökum hans. Björgvin segir ástandið engu að síður „ofboðslega sorglegt“ en þakk- lætið hafi verið mikið og stórkostlegt sé að geta komið til hjálpar með þessum hætti. Pétur Guðjónsson kynnti sér aðstæður á Tjaldaði yfir munaðarlaus börn á Haítí Björgvin Barðdal í hópi barna sem njóta góðs af starfi Íslendinganna á Haítí. Híbýli vindanna! Sumar vistarverur fólks á svæðinu voru ekki sérlega skjólgóð. B ergur Konráðsson var í hópi 50 kírópraktora sem héldu til Haítí fyrir nokkrum vikum og dvöldu þar í sex daga til þess að láta gott af sér leiða. „Þetta voru allt Bandaríkjamenn nema ég. Tveir þeirra fengu þessa hugmynd eftir að hörmungarnar dundu yfir og hóuðu mönnum saman. Ég hitti kollega mína á ráðstefnu í Las Vegas og ákvað að drífa mig með þeim þarna niður eftir, með sex vikna fyrirvara,“ segir Bergur við Morg- unblaðið. Hann segir reynsluna ómetanlega og þarna hafi hann séð svart á hvítu hve gríðarlega mikilvægt hjálparstarf er. Ástandið í landinu var mjög slæmt fyrir jarðskjálftann en hrikalegt á eftir, að sögn Bergs, og mikill glundroði ríkti. „Enginn getur ímyndað sér hvernig þetta var. Menn verða að upplifa eyðilegginguna, lyktina og hitasvækjuna til að átta sig á því,“ sagði Bergur. „Fyrst í stað fannst mér að við værum ef til vill ekki að gera mikið en fólk var mjög þakklátt. Og það er mjög stutt í brosið hjá þessu fólki þrátt fyrir bágt ástand.“ Ferðin var farin í tengslum við kaþólsku kirkjuna í Haítí. „Við fórum í lítið flótta- mannaþorp nálægt höfuðborginni, Port au Prince, og vorum svo sendir tveir og tveir saman út um allt í grenndinni.“ Lærdómsríkt að upplifa alvöru hamfarir Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin var fyrst allra til Haítí eftir að jarðskjálftinn setti þar allt á annan endann fyrr á árinu. Fleiri Íslendingar hafa lagt hönd á plóginn suður þar síðustu vikur Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is „Það er mjög stutt í brosið hjá þessu fólki þrátt fyrir bágt ástand,“ segir Bergur Konráðsson. Fólk býr við slæmar aðstæður á svæði sem þeir Bergur fóru til og margir bjuggu þröngt. Ferðalög

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.