SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Qupperneq 42

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Qupperneq 42
42 2. maí 2010 A rnold Schwarzenegger var ókrýndur konungur has- armyndahetjanna þegar hann ákvað að skipta um hlutverk og fara út í pólitíkina. Í stuttu máli vann hann ríkisstjórakosningarnar í Kaliforníu og sór embættiseið árið 2003 og var end- urkjörinn í embætti með glæsibrag árið 2006, en tröllið er gallharður repúblíkani þrátt fyrir vel kunnar mægðir við Kenne- dyana – innstu valdaklíku demókrata. Schwarzenegger er almennt álitinn hafa staðið sig sómasamlega í þessu erfiða starfi, en Kaliforníuríki er eitt stærsta hagkerfi Bandaríkjanna. En hann hefur lengstum haft vindinn í fangið, starfið hefur verið sérstaklega erfitt vegna slæmrar, fjárhagsstöðu fylkisins, nokkuð sem ríkisstjórinn fékk í arf frá forvera sínum. Þessi vandi öðrum fremur hefur haft þær afleiðingar að annað endurkjör er tvísýnt og menn farnir að velta alvar- lega fyrir sér hvað taki við hjá Schwarze- negger – ef hann býður sig fram, sem tal- ið er sennilegt, en tapar kosningunum. Eins og margir vita var Schwarzeneg- ger ekki aðeins óhemjuvinsæll leikari heldur farsæll kaupsýslumaður fyrir daga ríkistjóraembættisins. Hann byggði upp keðju heilsuræktarstöðva og er frum- kvöðull á því sviði. Schwarzenegger er fyrir löngu orðinn vellauðugur af borg- aralegum störfum og getur leyft sér að gera það sem hugurinn girnist ef illa gengur í pólitíkinni í nóvember. Enginn vafi leikur á því að kvikmyndaleikurinn er ofarlega á blaði, enda maðurinn vel á sig kominn og Hollywood stendur hon- um opin. Ekki ætti að vera til trafala að gamlar hasarmyndahetjur eru á upp- sveiflu í ár, má í því sambandi benda á The Expendables, nýju myndina hans Sylvesters Stallone. Hann bæði leikstýrir og fer með aðalhlutverkið í þessari átaka- mynd sem verður frumsýnd um heims- byggðina í ágústbyrjun. Í félagsskap Stal- lone er samvalið lið gamalla kollega Schwarzeneggers úr harðhausamyndum síðustu áratuga, en The Expendables fjallar um sveit roskinna málaliða sem eru sendir til ónefnds Suður-Am- eríkuríkis til að gera byltingu og velta einræðisherra úr sessi. Gráskeggjar þessir eru, auk Stallones, þeir Bruce Willis, Dolph Lundgren og Mickey Rourke, auk „unglinga“ á borð við Jason Statham og Randy Couture. Enginn vafi leikur á að Schwarzeneg- ger mun fylgjast grannt með gengi The Expendables, þar sem honum bregður fyrir til að læða frá sér einni, kaldhæðn- islegri setningu: „Gefið starfið honum vini mínum hérna, hann hefur svo gam- an af því að leika sér í frumskóginum.“ Vinurinn er að sjálfsögðu engin annar en Stallone – Rambó sjálfur, en Schwarze- negger snýst á hæli og hverfur jafnskjótt út úr myndinni. Innkoman, þó stutt sé, vekur spurn- ingar. Menn gleyma stjórnmálaharki rík- isstjórans, sem á eftir að aukast um allan helming þegar líða tekur á árið – gamlir aðdáendur og menn í kvikmyndaiðn- aðinum velta öðrum spurningum fyrir sér þessa dagana: Er innkoma hans í The Expendables í ágúst, þessa karlhorm- ónamynd sem lítur út eins og leikararnir hafi verið þefaðir uppi á elliheimili fyrir hasarmyndaleikara, svanasöngur „Con- ans the Republicans“, á hvíta tjaldinu? Áður en hann sökkvir sér af öllum mætti í stjórnmálabaráttuna í haust (þar sem lekið hefur út að kraftakarlinn fái jafnvel huggulegt embætti í ríkisstjórn Obama)? Eða er um nýtt upphaf að ræða á leikferl- inum, nýja skyndiárás á Hollywood? Þarf Arnold gamli Schwarzenegger að fara að dusta rykið af leikhæfileikum sínum. AP Skýst Schwarzenegger aft- ur upp á stjörnuhimininn? Að mati sérfróðra geta dagar harðhaussins í ríkisstjóraembætti Kaliforníu brátt verið taldir en kvikmynda- heimurinn bíður hans í ofvæni. Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is Það hlaut að koma að því að einhver útsmoginn kvikmyndaframleiðandi kveikti á hrollvekjumöguleikunum í ævintýrinu um hana Rauðhettu litlu. Um þessar mundir er The Girl With the Red Riding Hood, eða Stúlkan með rauðu hettuna, að fara í tökur hjá Warner Bros, sem sjá gamla Grimms- ævintýrið sem ákjósanlegan bakgrunn að gotneskri varúlfamynd. Þær geðs- legu næturverur eru í tísku um þessar mundir, eftir velgengni The Twilight Sagas, ofl. slíkra, að undanförnu. Hjá Warner er verið að ljúka við að ráða leikara í aðalhlutverkin og er einn þeirra Max Irons, sonur stórleikarans Jeremys, en heiðursparið Gary Oldman og Julie Christie, voru fyrst til að skrá sig í áhöfnina. Amanda Seyfried (Mamma Mia!), fer með aðalhlutverk ungrar stúlku í sveitaþorpi, einhvers- staðar í Evrópu á miðöldum. Hún verður fyrir árásum varúlfs, sem reikar blóðþyrstur mjög um skóginn þá tunglið er fullt og veður í skýjum. For- eldrar hennar verða lítt hrifnir er hún fellur fyrir munaðarlausum skóg- arhöggsmanni (Shiloh Fernandez), en hunsar óskir þeirra um að giftast syni járnsmiðsins (Irons). Hrollvekjan mun fylgja ævintýrinu í stórum dráttum, það kemur t.d. í hlut Christie að leika gömlu ömmuna, sem drepur tímann með því að stunda handverk með silfurprjónunum í skóg- arkoti sínu. Oldman fer hinsvegar með hlutverk varúlfaskelfis héraðsins, og á hann að hafa uppi á og koma óvætt- inum fyrir kattarnef. Irons er einn margra, breskra leikara sem eru að reyna að ná fótfestu í Hollywood þessa dagana, nota með- vindinn sem stafar af vinsældum bíó- mynda með ungum leikurum fyrir ungan, bíósinnaðan áhorfendahóp. Það er ekki nóg að eiga frægan föður, Irons fékk ekki hlutverk sem hann sóttist mjög eftir í nýju myndinni um „Sjó- ræningja Karíbahafsins“, en lék í að- lögun sögunnar af Myndinni af Dorian Grey, á síðasta ári. Hans fyrsta hlut- verk var á móti Anette Bening í Being Julia, árið 2004. Leikstjóri Rauðhettu-hrollsins er engin önnur en Catherine Hardwicke, sem á að baki hina frábæru Thirteen, og enn frekar Twilight (́08), sem hleypti af stað yfirstandandi bylgju rómantískra skrímslamynda. saebjorn@heimsnet.is Kvikmyndafréttir Rauðhetta og varúlfurinn Amanda Seyfried mun leika Rauðhettu. Dansóður – Footloose Laugardagur 1.5. Kl. 20:35 (RUV) Borgarstrákur (Kevin Bacon), kemur í dreif- býlið þar sem rokk og ról er bannfært sem verkfæri djöfsa. Upphafsmínúturnar á und- an titlunum – áður en sagan fer í gang, er hrein snilld. Það sem á eftir fylgir er með- almennskan uppmáluð, nánast tímasóun. Green Street Hooligans (Hooligans) Laugardagur 1.05. kl. 22:25 (RUV) Bresk/bandarísk mynd sem var sýnd hér á sínum tíma undir nafninu Hooligans. Athygl- isverð þar sem hún fjallar um enska bolt- ann sem allt snýst um í heimi hér. Segir af ungum Bandaríkjamanni (Elijah Wood), sem fer til Bretlands til að mannast og lendir í fótboltabullugengi. Að vísu verða sinna- skipti Wood aldrei trúverðug, til þess er leikarinn alltof meinleysislegur, og ekki hjálpar yfirborðslegt hlutverkið þar sem lítið er gert til að útskýra umskipti mélkisunnar sem lætur troða á sér í Harvard en gerist síðan útkýldur ofbeldisseggur. Á hinn bóg- inn eru félagar hans í genginu eins og sprottnir úr gömlum fréttamyndum um það ófélega fyrirbrigði, bullurnar, sem fylgja, eða öllu frekar fylgdu öllum félögum, ekki síst út úr fátækrahverfunum. Þetta er yf- irleitt lítið brot stuðningsmannahópanna, en sá sem gjarnan lætur mest á sér bera og hefur oftsinnis komið óorði á klúbbana sína. Forvitnilegur vinkill á ofurhetjuglans- mynd boltans í sjónvarpinu. bbb Myndir vikunnar í sjónvarpi Kvikmyndir

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.