SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Síða 4

SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Síða 4
4 10. október 2010 Veldi Opruh Winfrey er víð- feðmt.T ímaritið Forbes birti í vikunni lista yfir 100 valdamestu konur heims. Á topp tíu eru fjórar konur úr heimi fjölmiðla og lista. Forbes ákvað í þetta sinn að notast við víðari skilgreiningar en hefðbundna titla og hlutverk og líta heldur til framkvæmda- gleði og áhrifa í hinum skapandi heimi. Ein- kennir það fjölmiðla- og listakonurnar, sem fara hátt á listanum að þær hafa látið til sín taka á fleiri en einu sviði. Þær hafa byggt upp fyrirtæki eða barist fyrir mikilvægum málaflokkum. Efst kvennanna í þessum hópi er Oprah Win- frey en hún stýrir miklu fjölmiðlaveldi. Áhrifa- mikill spjallþáttur hennar hefur verið í sjónvarpi í 25 ár en síðasti þátturinn verður á dagskrá 9. september á næsta ári. Næst á dagskrá hjá Opruh er ekki þáttur heldur heil sjónvarpsstöð, OWN, The Oprah Winfrey Network en sjónvarpsstöðin fer í loftið í janúar 2012. Áhrif Opruh eru þekkt en vera Lady Gaga í sjöunda sæti yfir valdamestu konur heims hefur vakið athygli. Hún er ný drottning poppsins og er ekki aðeins tónlistarkona heldur má líka segja að hún sé gjörningalistamaður enda kýs hún að koma fram í óvenjulegum fötum. Skemmst er að minnast þegar hún kom fram í kjól úr hráu kjöti á MTV-verðlaunahátíð. Ljóst er að hún vekur at- hygli hvert sem hún fer og notar hún líka þessa athygli til góðs því hún er virk í baráttunni fyrir réttindum samkynhneigðra. Hún hefur lagt sér- staka áherslu á það að berjast fyrir rétti samkyn- hneigðra til að ganga í herinn og er andsnúin „Ekki spurja, ekki segja frá“-stefnu hersins. Önnur baráttukona fyrir réttindum samkyn- hneigðra er á meðal tíu valdamestu kvennanna en sú er spjallþáttastjórnandi líkt og Oprah, fyrrum dómari í American Idol og grínisti, Ellen DeGeneres. Lady Gaga er líka yngsta konan, ekki aðeins á topp tíu, heldur á öllum listanum, en söngkonan er aðeins 24 ára. Lady Gaga hefur átt sex lög á toppi bandaríska Billboard-listans, sem setur hana á stall með dansdrottningunni og leikkonunni Beyoncé (eftirnafn óþarfi). Líkt og aðrar konur á listanum er Beyoncé ekki í einu hlutverki heldur hefur hún líka byggt upp tískuveldið House of Deréon. Tónlistarkonur eru því áberandi á toppnum en efsta leikkonan er Angelina Jolie, sem skipar 21. sætið. Hún hefur jafnframt látið mikið til sín taka sem góðgerðarsendiherra Flóttamanna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNHCR. Valda- miklar- stjörnur Áhrifakonur úr heimi lista og fjölmiðla Vikuspegill Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Angelina Jolie við hjálparstörf í Pakistan. Á toppi lista Forbes trónir forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama. Hún fæddist 17. janúar árið 1964 þannig að hún er aðeins 46 ára. Tímaritið segir hana hafa haft víðtæk áhrif síðan hún tók við núverandi hlutverki sínu. Hún er fyrsta forsetafrúin af afrísk- amerískum uppruna og hefur breytt andliti Hvíta hússins út á við í orðsins fyllstu merkingu. Könnun eftir könnun leiðir í ljós að hún nýtur mikillar hylli fólksins í landinu og er fyrirmynd stúlkna og kvenna um víða veröld. Hún er menntaður lögfræðingur frá Harvard og hefur starfað bæði í einkageiranum og hinum opinbera. Hún hefur lagt áherslu á börn og ungt fólk í störf- um sínum sem forsetafrú og barist fyrir bættri heilsu þessa hóps í gegnum breytt mataræði og hreyfingu. Herferð hennar Let’s Move! miðar að því að offita barna verði ekki vandamál að kynslóð liðinni. Valdakonurnar eru tengdar en fleiri konur á listan- um taka þátt í Let’s Move! Vegna átaksins hafa stór- ir matar- og drykkjarframleiðendur (þar á meðal Kraft Foods og PepsiCo) sammælst um að skera 1,5 billjónir kaloría úr mat sínum, einna helst með því að kynna nýjar vörur til sögunnar og minnka skammta- stærðir. Berst fyrir bættri heilsu Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, er valda- mesta kona heims samkvæmt tímaritinu Forbes. Reuters 1. Michelle Obama, forsetafrú. 2. Irene Rosenfeld, forstjóri Kraft Foods. 3. Oprah Winfrey, spjallþáttastjórnandi og fjölmiðlamógúll. 4. Angela Merkel, kanslari Þýskalands. 5. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. 6. Indra Nooyi, forstjóri PepsiCo. 7. Lady Gaga, tónlistarkona og gjörningalistamaður. 8. Gail Kelly, forstjóri Westpac. 9. Beyoncé Knowles, söngkona og fatahönnuður. 10. Ellen DeGeneres, spjallþáttastjórnandi. Topp tíu Ellen DeGeneres og Lady Gaga samankomnar á MTV-hátíð. www.noatun.is Nóatúni Nýttu þér nóttina í Verslanir Nóatúns eru opnar allan sólarhringinn

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.