SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Page 11
10. október 2010 11
A
lternative Copenhagen eða
Alt_Cph er jaðarlistahátíð
sem í ár var haldin í fimmta
sinn. Hátíðin fór fram í Fa-
brikken for Kunst og Design sem stað-
sett er í rótgrónu iðnaðarhverfi á Ama-
ger. Þar kom saman fjöldi listamanna
úr ýmsum áttum og tefldi fram mörgu
af því ferskasta sem á sér stað um
þessar mundir í samtímalist. Sýningin
er haldin árlega í samfloti við Art Co-
penhagen sem er stærsta samtíma-
listahátíð á Norðurlöndum.
Íslendingar áttu sína fulltrúa á sýn-
ingunni og gafst blaðamanni kostur á
að fylgja eftir listahópi frá Gallerí
Crymo. Hópinn skipuðu myndlist-
arkonurnar Rakel McMahon, Una Björk
Sigurðardóttir, Kolbrún Ýr Ein-
arsdóttir, Kristín Rúnarsdóttir, Þor-
gerður Ólafsdóttir, Solveig Pálsdóttir
og Harpa Rún Ólafsdóttir. Þetta ku
vera í þriðja sinn sem íslenskir lista-
menn sýna á hátíðinni en hópur frá
Kling og Bang gallerí hefur tvívegis
tekið þátt.
Listarými verður til
Hvert gallerí fékk sitt rými og þurfti að
byggja það frá grunni. Síðustu klukku-
stundirnar fyrir opnunina voru iðn-
aðarmenn í óðaönn að leggja lokahönd
á fráganginn. Listamenn hjóluðu vítt
og breitt um Kaupmannahöfn í leit að
skrúfum, lömpum, heftibyssum og
öðru tilfallandi. Þar sem flestir lista-
mennirnir voru aðkomnir gátu fæstir
ferðast með tilbúin verk. Því þurftu
margir að byggja verkið frá grunni þótt
hugmyndin væri fædd.
Þetta fyrirkomulag skapaði ferskt
andrúmsloft þar sem mörg rýmin voru
breytileg og sífelldri þróun. Á opn-
unardaginn var allt klappað og klárt.
Margt var um manninn og sýning-
argestir voru kampakátir með afrakst-
urinn.
Gjörningar hvers konar, innsetningar
og ljósmyndir voru í forgrunni. Lista-
mennirnir voru sýnilegir og áhorfand-
inn varð ósjálfrátt þátttakandi í ferlinu.
Gestum gafst tækifæri til að hafa með
sér á brott minjagripi, s.s. teikningar
sem unnar voru á færibandi í gjörningi
sem bar heitið; Made in China, fjölda-
framleidd gervitattú eða handtöskur
sem endurunnar voru úr gömlum efn-
um með áletruninni; Plastic is forever.
Börnin fengu líka sinn skerf, gátu
spreytt sig í boltakasti eða sest á skóla-
bekk. Eins og góðri listahátíð sæmir
var boðið upp á óformlegar pallborðs-
umræður um list, hvort heldur í fjög-
urra manna kúlutjaldi eða við hátíð-
arkvöldverð.
Umhverfið efst á baugi
Þátttakendur hátíðarinnar voru á öll-
um aldri, með fjölbreyttan bakgrunn
og komu frá ólíkum menningar-
heimum. Þetta skapaði dínamík, fersk-
leika og gæti gefið ákveðna vísbend-
ingu um þróun jaðarlistar á næstu
árum. Leitað var víða fanga í sköp-
uninni og nálgunin var ólík en ádeila á
neyslusamfélagið og fjöldaframleiðslu
var áberandi. Óhætt er að segja að list-
in hafi verið tilraunakennd, listamenn-
irnir voru óhræddir við að fara út fyrir
hinn hefðbundna ramma og gam-
algróna málverkið var víðs fjarri.
Húsakynni hátíðarinnar hafa ef til vill
verið mörgum innblástur en umgjörðin
var gömul verksmiðja.
Hátíðir af þessu tagi eru mikilvægt
innlegg í umræðuna og fyrir framþró-
unina. Tekist er á við umhverfið á ann-
an hátt, róið er á ný mið í farveginum
og upplifuninni. Afstaða listamannsins
eða viðhorf hans er í mörgum tilfellum
tekið við sem form. Óvissa og óreiða
verða einnig að aðferð. Verk þessara
listamanna einkennast af háði og höfða
oft sterkt til kímnigáfunnar. Útgangs-
punkturinn er að afstaða þeirra verði
sýnileg með einum eða öðrum hætti.
Listamenn
að verki
á Alt_Cph
Listahátíðin Alt_Cph10 in Space fór fram
í Kaupmannahöfn dagana 17.-19. september.
Blaðamanni Sunnudagsmoggans gafst kostur
á að skyggnast á bak við tjöldin og fylgjast með
sýningunni frá upphafi til enda.
Texti og myndir: Ingunn Eyþórsdóttir
Let me guide you trough. Verk eftir Þorgerði
Ólafsdóttur og Kristínu Rúnarsdóttur. Stik-
urnar voru umhverfis verksmiðjuna.Börnin fengu útrás í boltaleik.
Harpa Rún Ólafsdóttir spann kóngulóarvef
innan í rýminu í verkinu Í þróun.
Séð yfir hluta verksmiðjunnar.
Allir tóku þátt. Drengur sest á skólabekk.
Mannsheili á ruslahaug. Innsetning eftir
Unu Björk Sigurðardóttur.
Plastic is forever; verk Unu Bjarkar Sigurð-
ardóttur. Til áminningar um plastnotkun.
Listakonan teiknaði viðstöðulaust og
stimplaði myndir sínar með áletruninni;
Rakel McMahon: Made in China.
Gallerí Crymo er sýningarrými og gallerí sem rekið er af ungum myndlistarmönnum sem hafa
áhuga á að skapa sýnilegan og aðgengilegan vettvang fyrir unga og efnilega listamenn, án
kvaða um hagnað og gróðastarfsemi. Rýmið er sameiginlega leigt af meðlimum gallerísins
og leggjast allir á eitt við að halda galleríinu gangandi.
Crymo opnaði þann 17. júní 2009 undir handleiðslu Þorgerðar Ólafsdóttur og Solveigar
Pálsdóttur. Síðan þá hefur Crymo vaxið og dafnað og sitja nú fimm í stjórn sem sjá um að
halda utan um starfsemi gallerísins. Í byrjun sumars 2010 töldu sýningarnar í Crymo yfir 50
talsins og listamennirnir sem hafa sýnt eru vel yfir þá tölu.
Crymo er opið alla daga vikunnar fyrir utan mánudaga, frá 13-18 og er til húsa á Laugavegi
41a.
Gallerí Crymo