SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Síða 20
20 10. október 2010
A
rngrímur Jóhannsson, flug-
stjóri og forseti Flugmálafélags
Íslands, óttast að einkaflug
leggist af hér á landi í nánustu
framtíð vegna óþarfa reglugerða frá Flug-
öryggisstofnun Evrópu (EASA) sem tekn-
ar hafi verið upp af samgönguyfirvöldum.
Þessum reglum fylgir mikill kostnaður án
þess að flugöryggi aukist.
„Með þessu er gerð gróf atlaga að al-
mannaflugi og þetta á ekki bara við um
Ísland. Víða um Evrópu er barist gegn
þessum reglugerðum sem eru framleiddar
í Brüssel undir því yfirskyni að verið sé að
auka öryggi. Við teljum svo ekki vera og
reglurnar eigi ekki við í almannaflugi á
Íslandi. Það má segja að verið sé að jarða
þennan hluta flugstarfseminnar,“segir
Arngrímur í samtali við Morgunblaðið.
Tímafrekt og kostnaðarsamt
„Hverri flugvél fylgir viðhaldshandbók
frá framleiðanda sem hingað til hefur
verið nóg. Nú hafa verið settar fram veru-
lega meiri kröfur um viðhaldsáætlanir,“
segir Arngrímur og bætir við að pappíra
af svipuðum toga þurfi nú að leggja fram
sama hvort um er að ræða svifflugu, litla
einkaflugvél eða Boeing 747.
Reglurnar frá EASA sem um ræðir tóku
gildi í september 2009.
Aðalreglugerðin er númer 1592/2002
en einnig vísar Arngrímur til reglugerðar
númer 2042/2003, með síðari breyt-
ingum og síðast en ekki síst reglugerð
216/2008, þar sem m.a. fram kemur að
ekki sé rétt að sameiginlegu reglurnar frá
EASA gildi um öll loftför, m.a. þau sem
einkum eru notuð staðbundið. Eftirlit
með þeim skuli áfram vera í höndum
heimamanna.
Það sem Arngrímur er einnig ósáttur
við er að réttindi sjálfstæðra flugvirkja,
sem hingað til hafa séð um viðhald einka-
loftfara, hafi nú verið mjög takmörkuð.
Nú má t.d einungis yfirfara flugvéla-
hreyfla á viðurkenndri viðhaldsstöð. Í
kjölfar þessara nýju reglugerða er sú staða
komin upp að núna eru engar við-
urkenndar viðhaldsstöðvar með réttindi
til að yfirfara slíka hreyfla hér á landi.
„Hér eru flugvirkjar sem hafa reynslu
og þekkingu til þess að yfirfara flugvéla-
hreyfla en samkvæmt þessum nýju reglu-
gerðum mega þeir það ekki lengur.“
Almannaflugi útrýmt?
Flugmálafélag Íslands
gagnrýnir mjög nýjar
reglur sem teknar hafa
verið upp hér á landi.
Telur þær óþarfar,
tímafrekar og kostn-
aðarsamar. Hætta sé
á að almannaflug, oft
nefnt einkaflug, leggist
af verði ekki veittar
undanþágur frá þess-
um reglum Flugörygg-
isstofnunar Evrópu,
eins og heimilt er.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Arngrímur Jóhannsson: Ef þetta verður svona áfram hætta menn bara, grasrótin gefst upp.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson