SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Blaðsíða 25

SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Blaðsíða 25
10. október 2010 25 ingum sem hafa verið sýndar. Þetta var ótrúlegt æv- intýri fyrir okkur. Við vorum í miklu og nánu samstarfi og þarna mynduðust sterk tengsl. Einhvern tíma þegar ég var krakki spurði ég mömmu af hverju það kæmu svona fáir í heimsókn til okkar. Þá hafði ég verið í heimsókn hjá vini mínum og á því heimili var mjög mikill gestagangur. Mamma svaraði því til að þau pabbi væru alltaf að vinna með vinum sín- um og eftir vinnudaginn þá færu þau öll heim til sín en vissu að þau myndu hittast aftur í vinnunni. Þannig var þetta svo með okkur sem unnum við Rómeó og Júlíu, við bundumst miklum vina- og tryggðaböndum. Í dag gerum við okkur kannski betur grein fyrir því hversu mikil verðmæti felast í þessum vinskap. Það hefur hjálpað okkur mikið í samstarfinu að eiga fullkomið traust og trúnað hvert annars.“ Kvikmyndahandrit að víkingamynd Þessi hópur sem þú talar um er Vesturportshópurinn sem hefur sýnt bæði hér heima og erlendis, og vakið mikla athygli. Hver er lykillinn að velgengni Vest- urports? „Gísli Örn er öflugur leikstjóri, drífandi og framtaks- samur maður og góður vinur og þau Nína Dögg, kjarn- inn í Vesturporti, eru mögnuð saman. Gísli hefur líka mikinn sannnfæringarkraft og á auðvelt með að fá hæfileikafólk til að vinna með sér. Hann gerir ótrúlega hluti, eins og að hringja í heimsfrægan tónlistarmann og fá hann til samvinnu við lítinn leikhóp frá Íslandi. Hvað sýningarnar sjálfar varðar þá fann Vesturport kokteil sem virkar og gengur upp, en það skiptir líka miklu máli að vera á réttum tíma á réttum stað með rétta efnið og þar er Gísli meira en lítið naskur og fylginn sér. Þegar talað er um samstarf verð ég líka að minnast á Baltasar Kormák. Ég hef unnið undir hans handleiðslu jafnlengi og með Vesturporti, eða síðustu átta árin. Meðal annars skrifuðum við saman handritið að Brúð- gumanum og leikgerðina á Gerplu og unnum saman að uppsetningunni á Ivanov, það var líka fyrir hans at- beina að ég kom að handritinu á Sumarlandinu sem frumsýnd var í haust. Þessi átta ár höfum við Baltasar líka verið að skrifa kvikmyndahandrit að stórri vík- ingamynd og það er ómetanlegur skóli að vinna með jafn metnaðarfullum og krefjandi samstarfsfélaga. Fyrir utan það að Baltasar er listamaður af guðs náð. Í raun eru átta ár ekki svo langur tími þegar þróun á svona mynd á í hlut. Auðvitað væri óskandi að þetta færi að komast í tökur, þó ekki væri nema þjóðhagslega, það er verið að tala um milljarða gjaldeyristekur ef af verður. En þetta tekur sinn tíma, Baltasar hefur alltaf klárað það sem hann tekur sér fyrir hendur og ég held að það verði ekkert öðruvísi með þetta verkefni. Myndin verð- ur gerð en allt ferlið í kringum hana verður langt, þetta er mynd af þeirri stærðargráðu. Í heild hef ég verið ótrúlega heppinn með samstarfs- fólk, ég gæti talið svo marga upp sem hafa haft áhrif á mig og kennt og bent: Stefán Jónsson, Kjartan Ragnars, Egill Heiðar Pálsson og ég verð eiginlega líka að fá að þakka Magnúsi Geir fyrir gott samstarf í gegnum tíðina, hann leikstýrði mér í tvígang í Herranótt og svo lék ég fyrir hann Fagin í Oliver þegar ég var útskrifaður og hann orðinn leikhússtjóri á Akureyri. Í kvöld verður svo frumsýnd leikgerð sem ég gerði úr bók Auðar Jóns- dóttur, Fólkið í kjallaranum, í Borgarleikhúsinu þar sem Magnús hefur verið að gera góða hluti.“ Ólæknandi kvilli Þú ert í starfi þar sem atvinnuöryggið er sennilega ekki mjög mikið. Hugsarðu stundum um það? „Þær áhyggjur komu snemma á ferlinum. Þegar ég lék í kvikmynd Þráins Bertelssonar, Einkalífi, var ég kominn með vott af skalla. Það er arfgengur og glæsi- legur skalli í fjölskyldu minni, há kollvik og tilheyr- andi. En ég var bara átján ára og þetta þótti nokkuð snemmt. Mér tókst að ljúka við vinnu mína í kvik- myndinni með sæmilegar lufsur á höfðinu en rakaði þær svo af og skellti mér í leikfélagið í MR af fullum krafti. Læknar sögðu mér að ekkert væri við þessu að gera, þetta væri sjaldgæfur og ólæknandi kvilli, sem þó lýsti sér ekki í öðru en viðvarandi hárleysi fyrir aldur fram. Þegar ég var svo í búningavinnu í Myrkrahöfð- ingjanum féll af mér skegg og aðrar skrokklýjur. Lækn- arnir sögðu það sama, ekkert væri við þessu að gera. Ég var vitaskuld miður mín yfir þessu og sjálfstraustið var ekki upp á marga fiska. Á þessu tímabili hafði ég sótt um í Leiklistarskólanum og fengið inngöngu. Ég fór á fund skólastjórans, Gísla Alfreðssonar, og sagðist, fullur af sjálfsvorkunn, ekki eiga þangað erindi svona nauða- sköllóttur. Gísli sagðist ekki hlusta á þetta, sagði að í leikhúsunum væri her manns sem saumaði hárkollur og tilheyrandi. Og ég tók mark á honum. Í skólanum blundaði samt alltaf í mér hugsunin: Hvaða markaður er fyrir leikara með svona sérstakt út- lit? Það er kannski þess vegna sem ég fór að hugsa til þess að hafa að öðru að hverfa en leiklistinni. Auðvitað hefur þetta líklega ýmislegt að segja um það hvaða hlutverk mér bjóðast, en það búa allir leikarar við í einni eða annarri mynd. Stundum er þetta mínus, stundum plús. Sænskur förðunarmeistari sem ég vann með fyrir nokkrum árum var til dæmis yfir sig hrifinn af því að hafa svona óskrifað blað, hreinan grunn, til að vinna með. Í dag lít ég svo á að þessi lífsreynsla öll hafi að vissu leyti styrkt mig, og það held ég að sé kjarni málsins, við eigum að eflast af þeim lykkjum sem lífið leggur á veg okkar. Á einhverjum tímapunkti ákvað ég að láta þetta ekki krumpa mig á sálinni, þetta yrði út- litseinkenni, ekki karaktereinkenni. Ég veit að þeir sem lenda í þessu eiga erfitt með að ímynda sér að þetta skipti þá einn daginn ekki miklu máli, sérstaklega þeg- ar börn eða unglingar eiga í hlut, og þetta er kannski erfiðara fyrir stelpur en stráka, en svona er þetta nú samt. Þetta er yfirstíganlegt og í rauninni smámál þegar frá líður og aðrar stærðir lífsins fara að taka pláss í til- verunni. Dóttir mín, Ragnheiður Eyja, sem verður fjögurra ára í næsta mánuði, var einhvern tíma að velta því fyrir sér að hún væri með ljóst hár en mamma hennar dökkt, svo leit hún á mig og sagði nokkuð sátt: „Pabbi, þú ert ekki með hár, þú ert bara með haus“ og það skiptir meira máli að hafa hann í lagi en það sem á honum sprettur.“ Þú hefur skrifað kvikmyndahandrit og gert leik- gerðir, en áttu efni í bók einhvers staðar? „Já, ég á heilmikið efni. Ég tek þau skrif regulega upp úr skúffunum, fikta eitthvað við þau, en svo fara þau aftur ofan í skúffuna. Einhvern tíma var sagt að ein- ungis væru til sjö sögur í veröldinni, og allar skriftir snerust um útfærslu á þeim. Þú getur sagt mér góða sögu og ég sagt þér góða sögu en hvort sögurnar eiga erindi á svið eða í bíó eða á bók felst í úrvinnslunni, hvernig sagan er sögð, sett fram. Það er kannski þess vegna sem það skiptir mig ekki öllu máli að eiga upp- haflegu hugmyndina. Það veitir mér nógu mikla ánægju í bili að taka efni og vinna það í dramatískt form. Þar að auki hef ég meiri ánægju af samstarfi en að sitja einn og vinna. Ég held að skriftir séu skelfilega ein- manalegt starf og ég myndi ekki vilja starfa eingöngu við það, en í bland við leiklistina nærir þetta hvað ann- að, það er gott að byrja að æfa eða sýna eftir langa törn við lyklaborðið og öfugt. Þess á milli reynir maður bara að vera til, og gera það besta úr þessu öllu saman.“ Morgunblaðið/Golli Ólafur Egilsson leikari: Ég er alinn upp við það að víla hlutina ekki fyrir mér, heldur ganga í það sem fyrir liggur, láta vaða og krafla sig svo einhvern veginn að landi. ’ Í dag lít ég svo á að þessi lífsreynsla öll hafi að vissu leyti styrkt mig, og það held ég að sé kjarni málsins, við eigum að eflast af þeim lykkjum sem lífið leggur á veg okkar. Á einhverjum tímapunkti ákvað ég að láta þetta ekki krumpa mig á sálinni, þetta yrði útlitseinkenni, ekki karaktereinkenni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.