SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Blaðsíða 38
38 10. október 2010
F
östudaginn 15. október næst-
komandi verður ný, íslensk
unglingamynd, Órói, frum-
sýnd. Myndin byggist á tveim-
ur bókum eftir leikkonuna, rithöfund-
inn og handritahöfundinn Ingibjörgu
Reynisdóttur, Strákarnir með stríp-
urnar og Rótleysi, rokk og rómantík.
Það er Kvikmyndafélag Íslands sem
framleiðir en Baldvin Zophoníasson
leikstýrir sinni fyrstu kvikmynd í fullri
lengd. Hann sat fyrir svörum um mynd-
ina.
– Það er orðið dálítið síðan það var
gerð unglingamynd hér á landi er það
ekki?
„Jú, það hefur ekki verið gerð ung-
lingamynd hérna síðan Gemsar kom út.
En munurinn á Gemsum og Blossa og
öllum þessum myndum og þessari er að
núna eru þetta unglingar sem eru að
leika en ekki einhverjir 25 ára leikarar
að herma eftir unglingum.“
– Og þau eru flest að leika í fyrsta
skipti?
„Jú, flest. Þau eru að leika í kvikmynd
í fyrsta sinn en aðalleikarinn, hann Atli
Óskar, lék í stuttmyndinni Smáfuglar,
sem var margverðlaunuð.“
– Hvernig gekk að vinna með krökk-
unum?
„Þetta gekk bara æðislega og þetta var
frábær tími. Það tók dálítinn tíma að
finna réttu krakkana en í staðinn fyrir
að hafa opnar prufur setti ég mig í sam-
band við fólk sem var að vinna með
krökkum í leikhúsunum til dæmis og
bað það um að benda mér á klára
krakka. Svo fékk ég lista með ein-
hverjum fimmtíu nöfnum sem ég kallaði
í prufurnar sem voru í fjórum stigum.
Þetta var mjög skemmtilegt ferli og að
lokum endaði ég með ellefu manna hóp
sem fer með stærstu hlutverkin en fimm
eða sex þeirra eru í burðarhlutverkum.“
– Geturðu sagt mér um hvað myndin
fjallar, með þínum orðum?
„Já. Ég myndi segja að Órói væri um
hóp af unglingum sem væru að stíga sín
fyrstu skref inn í heim fullorðinna. Þau
eru 16 ára og að byrja í framhaldsskóla
og sagan gerist í lok sumars, rétt áður
en skólinn byrjar og svo þarna þegar
hann er byrjaður. Myndin er í raun fyrst
og fremst um þennan brothætta tíma
þegar hver dagur er eins og síðasti dag-
urinn í lífi þínu og hver ákvörðun er
síðasta ákvörðunin sem þú tekur. Þetta
er alltaf svo dramatískur aldur og maður
sér einhvern veginn ekki alveg fram á
veginn. Það eru þrjár aðalpersónur,
Gabríel, Gréta og Stella, sem eru öll að
takast á við líf sitt en gera það á mjög
mismunandi hátt.“
– Nú hafa verið sýndar stiklur og trai-
ler úr myndinni á netinu og hún virðist
vera mjög dramatísk.
„Hún er það. Hún hefur kröftugan
undirtón. Og það hefur ekki verið gerð
svona unglingamynd á Íslandi áður, þar
sem unglingarnir eru teknir alvarlega.
Gemsar og Blossi til dæmis máluðu eig-
inlega afskræmda mynd af því hvernig
það er að vera unglingur. En í þessari
mynd horfum við á fullorðna fólkið í
gegnum augu unglinganna og það verð-
ur eiginlega hlægilega fólkið. Án þess að
það verði eitthvað fáránlegt.“
– Maður fær það stundum á tilfinn-
inguna að oft fái krakkar bara kjánahroll
við það að horfa á sjónvarpsefni og
kvikmyndir sem eiga að endurspegla
raunveruleika þeirra. Heldur þú að ís-
lenskir unglingar eigi eftir að finna sig í
persónum Óróa?
„Já, ég er nokkuð viss um það. Við er-
um búin að sýna nokkrum unglingum
myndina, bæði strákum og stelpum,
hörðustu töppum og væmnasta fólki og
þeir hörðu eru bara rosalega hrifnir,
sögðu einmitt að þeir fengju aldrei
þennan kjánahroll. Og stelpurnar yf-
irleitt grétu sem er voða fallegt. Myndin
snertir viðkvæma strengi á tímabili en
þetta er samt engin jarðarför, hún er
líka uppfull af gríni, einhverju sem hittir
alveg í mark en er ekki absúrd.“
– Það er dálítið gróft tungumálið í
henni á einhverjum stöðum.
„Já, en það er ekki gegnumgangandi.
En það er dálítið öðruvísi tungumálið
þegar krakkarnir eru að tala hver við
annan en þegar þeir eru svo að tala við
foreldra sína. En þegar ég lagði af stað
með þetta verkefni ætlaði ég að gera
unglingamynd fyrir fullorðna og þar af
leiðandi hafa líka unglingar sem hafa séð
myndina nefnt það hvað þeir eru fegnir
að það er verið að gera alvöru mynd um
þá en ekki einhverja uppskrúfaða vit-
leysu.“
– Hver er markhópurinn?
„Við höfum ekki sýnt neinum yngri
en 16 ára myndina en ég gæti trúað því
að yngri aldurshópar ættu eftir að fíla
hana líka. Þetta er líka breiður aldurs-
hópur sem hefur lesið bækurnar hennar
Ingibjargar og bíður eftir að sjá mynd-
ina.“
– Ætlið þið að kynna myndina eitt-
hvað erlendis?
„Jú, ég vona það. Ég held að reynslu-
heimur unglinga eigi sér alþjóðlega skír-
skotun. Sérstaklega af því að við erum
ekki að fjalla um dóp eða ofbeldi heldur
snýst myndin meira um þetta tilfinn-
ingalega og fjölskylduna og vinina. Og
ég held að það eigi alls staðar við.“
„Myndin er í raun fyrst og fremst um þennan brothætta tíma þegar hver dagur er eins og síðasti dagurinn í lífi þínu. Þetta er alltaf svo dramatískur aldur.“
Styttist í
Óróa
Órói er ný, íslensk unglingamynd sem verður
frumsýnd í komandi viku. Í henni er fjallað um
heim unga fólksins á raunsannan hátt og ekkert
skrumskælt eða dregið undan.
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is
Baldvin Z vinnur nú að heimildarmynd í fullri lengd um Reyni sterka.
Morgunblaðið/Ernir