SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Page 53
10. október 2010 53
Þ
órdís Gísladóttur hlaut
á dögunum Bók-
menntaverðlaun Tóm-
asar Guðmundssonar
fyrir þessa fyrstu ljóðabók sína,
Leyndarmál annarra. Þetta er
ekki þykk bók, inniheldur ein-
ungis 21 ljóð, en þau eru þó alls
ekki hljóðlát eða innhverf. Þór-
dís stígur hér fram sem býsna
mótað skáld með áhugaverðan,
nokkuð frakkan og persónu-
legan tón.
Ljóðin lýsa veruleika konu í
Reykjavík samtímans. Vísað er í
ýmsar áttir, í önnur skáld, í
samtímaviðburði eða götur í
borginni. Fólk sem bregður
fyrir á skjánum eða úti á götu
verður að yrkisefni en oftast
eru það þó hugleiðingar um
stöðu konunnar og kvenlegar
ímyndir sem eru kveikjurnar.
Írónísk afstaða
Í ljóðinu Glamúrskortur er sagt
mikilvægt (fyrir konu) að „líta
út fyrir að vera venjuleg / án
þess þó að vera leiðinleg. /
Hugguleg, en ekki skera sig of
mikið úr / og umfram allt ekki
ganga um með óhamingjuna /
eins og þrúgandi hvatarslæðu
um hálsinn.“ Konum er síðan
sagt að vera ekki leiðar þótt
þær sitji aleinar heima á nýjum
undirfötum á meðan maðurinn
er einhvers staðar á djamminu,
þær verði að taka því „af skiln-
ingi og þolinmæði, að öðrum
kosti endið þið sem einstæðar
mæður, / útgrátnar með auka-
kíló í pínulítilli íbúð …“
Írónísk afstaðan til stöðu
konunnar og ímyndanna birtist
einnig í How to look good na-
ked: „Í þessari þáttaröð eru
konum kennd ýmis ráð / til að
líta vel út fáklæddar.// Eina
ráðið sem ég tel að dugi mér
persónulega, / þegar hér er
komið sögu, / er að slökkva öll
ljós og skríða undir sæng.“
Þórdís leikur sér stundum
með andstæður eða teflir saman
því sem ætlast er til af fólki og
síðan raunveruleikanum sem
kann að vera annar. Dæmi um
þetta má sjá í ljóði um kaþ-
ólskan prest sem ljóðmæland-
inn fóðrar „á hroðalegum sög-
um í skriftastólnum,“ og í
stuttu ljóði þar sem ljóðmæl-
andinn sest niður til að skrifa
ljóð um að dæma eigi valda-
menn fyrir stríðsglæpi, en í stað
þess að yrkja spyr hún lesendur
hvort þeir hafi tekið eftir því
hvað ungi „veðurfræðingurinn
er krúttlega höggmæltur?“
Í ljóðinu Ólíkt höfðumst við
að árið 2007 er fyrst brugðið
upp mynd af ljóðmælanda að
drekka bjór og þar fylgst hann
með forsetafrúnni koma út frá
fatahönnuði „með gimsteina-
hring á fingri / á lakkskóm með
hælum.“ Bílstjóri á „skjald-
armerkisbíl númer eitt … náði í
Dorrit,“ og skyndilega er les-
andinn kominn með garð-
yrkjukrökkum í kirkjugarð-
inum „að skoða dáið fólk í
líkhúsinu í Fossvogi sér til
nauðsynlegs þroska“.
Þetta ljóðferðalag er af-
skaplega vel unnið hjá skáld-
inu.
Stundum minnir tónninn í
ljóðum Þórdísar á röddina í
ljóðheimi Einars Más Guð-
mundssonar; eitthvað í ír-
oníunni og notkun á hvers-
dagsheiminum kallar á þá
líkingu. Henni hefur engu að
síður tekist að finna sinn eigin
tón, tón sem er svalur en þó
agaður, bóklegur og kæruleys-
islegur í senn.
Leyndarmál annarra er ekki
þykk bók en þetta úrval ljóða
myndar góða og áhugaverða
heild; það verður því spennandi
að sjá hvað Þórdís skrifar næst.
Hroðalegar sögur
í skriftastólnum
Þórdís Gísladóttir hlaut Bókmannta-
verðlaun Tómasar Guðmundssonar.
Morgunblaðið/Ómar
Bækur
Leyndarmál annarra
bbbmn
Ljóð
Eftir Þórdísi Gísladóttur.
36 bls. Bjartur 2010
Einar Falur Ingólfsson
Verið
velkomin
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
27. ágúst – 24. október 2010
Að elta fólk og
drekka mjólk
Opið 12-17,
fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
ÁR: málverkið á tímum
straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
Þorvaldur Skúlason
Kaffistofa
leskró - barnahorn
OPIÐ: alla daga. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
Cars in rivers - ÓLAFUR ELÍASSON 16.9. - 7.11. 2010
Aðflutt landslag - PÉTUR THOMSEN 16.9. - 7.11. 2010
ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012
Ókeypis aðgangur á sýninguna
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14
ÁFANGASIGUR LISTAKVENNA - Dagný Heiðdal listfræðingur.
HÖRPU- OG HAMINGJUSTUND á Marengs 10.10.10. kl. 11-17
Hörputónar Monicu Abendroth munu hljóma allan daginn.
Ókeypis aðgangur í safnið alla miðvikudaga.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd.
„Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar
Jökulsdóttur.
Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta.
Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna.
Myndgerð: Páll Steingrímsson.
Í ljósi næsta dags. Sýning um þýðingarstörf, skáldverk og baráttumál
Sigurðar A. Magnússonar, rithöfundar.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
LJÓS // NÓTT. Vinsamlega snertið.
Verk Guðmundar R. Lúðvíkssonar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið virka daga 11.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
VÍKINGAHEIMAR
Skipið Íslendingur og
sögusýning
- Söguleg skemmtun
VÍKINGABRAUT 1
- REYKJANESBÆ
Opið alla daga
frá 11:00 til 18:00
Sími 422 2000
www.vikingaheimar.com
info@vikingaheimar.com
„SIGGA HEIMIS“
11.9.2010 - 30.1. 2011
Sýnishorn úr Safneign
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 12-17.
Verslunin Kraum í anddyri
og kaffiveitingar.
Garðatorgi 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
TRÉKARLAR
Verið velkomin á opnun
sýningar Guðmundar
Sigurðssonar laugardaginn
9. október kl. 14.
Sýningin stendur til 15.
desember.
Opið mán.–fim. kl. 10–19,
fös. 11-17 og lau. 13-17.
Ókeypis aðgangur.
www.natkop.is
Listasafn Kópavogs
- Gerðarsafn
„9 - samsýning ungra
myndlistarmanna í Gerðarsafni“
Sýnendur eru: Berglind Jóna
Hlynsd., Bjarki Bragason,
Etienne de France, Gunndís Ýr
Finnbogad., Helga Björg Gylfad.,
Logi Bjarnason, Páll Haukur
Pálson, Steinunn Gunnlaugsd.,
Styrmir Guðmundson.
Sýningarstjóri er Birta Guðjónsd.
Gerðarsafn er opið alla daga
nema mánudaga kl. 11-17.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ASÍ
2.-24. október 2010
SPOR
Listhjúkkurnar Anna Hallin og
Ósk Vilhjálmsdóttir opna
sýninguna SPOR laugardaginn
2. október klukkan 15:00.
Opið 13-17 alla daga
nema mánud.
Aðgangur ókeypis
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
GEYSISSTOFA –
MARGMIÐLUNARSÝNING
Í nútímalegu margmiðlunar-
safni á Geysi er að finna
margskonar fróðleik um
náttúru Íslands.
OPIÐ: alla daga 10.00-17.00.
AÐGANGSEYRIR: 1.000 KR.
Afsláttur fyrir námsmenn,
eldri borgara og hópa
Geysir í Haukadal, sími 480 6800
www.geysircenter.is
Fjölbreyttar sýningar:
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Sögustaðir – í fótspor W.G. Collingwoods
Endurfundir – fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna
Klippt og skorið – um skegg og rakstur
Fram til fortíðar – frá Byggðasafninu Hvoli, Dalvík
Fjarskiptasafnið við Suðurgötu
Opið sunnudaga 11-17
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is