SunnudagsMogginn - 17.10.2010, Blaðsíða 47

SunnudagsMogginn - 17.10.2010, Blaðsíða 47
17. október 2010 47 LÁRÉTT 1. Á eyðistað Menntaskólans í Reykjavík flækjumst við til að sjá strauminn. (10) 4. Partí líkamshluta er af tilviljun. (8) 8. Skemmtun fjölleikafólks er líka fótamennt. (8) 9. Reiðskjóti til trúariðkunar finnst hjá Búddistum (8) 10. Grefur í Fjarðabyggð. (6) 12. Ók Lára rallhálf vegna ruglingslegra? (8) 14. Landið þar sem enginn þarf að vinna? (8) 15. Stutt hlaupagrein veldur því að rafmagn fer ekki rétta leið. (10) 16. Sleip og frek næstum hálf urrar út af myrkri. (10) 18. Fara með og versla. (6) 20. Söguþráður fjallar um burðarbjálka eftir bardaga. (10) 24. Dreifa fyrir Elías og drepa í leiðinni. (9) 26. Einhver þjálfun án karlmanns er sérgreining. (9) 28. Hem fjóra og fimm ökkla einhvern veginn með fljót- andi efni fyrir bifreiðar. (10) 29. Fyrsta flokks undur og gæfa vegna fjármuna sem ein- hver skuldar. (9) 30. Ullin hálf biluð reynist alls ekki vera fyrir lokaðan. (8) 31. Örfá ennþá fyrir okkur. (6) 32. Hluti úr tölvu kýs einfaldlega fjörutíu og níu úr þeim fremstu í lagadeild (10) LÓÐRÉTT 1. Oftast með engan öðruvísi. (9) 2. Syngja fyrir skraddara. (5) 3. Arður sem afbrýðisömust fær að endingu vegna kryddjurtar. (9) 5. Lá með lamaða ruglaða í hluta byggingar. (8) 6. Gagntaka með því að hamla gangi fótboltaliðs. (7) 7. Skapir einhvern veginn fyrir bát. (7) 9. Blóðskömm missir með meiru sekt sem verðskuldar dauðarefsingu. (7) 11. Starfrækti tímarit um eitthvað sem sumum karl- mönnum er nauðsynlegt. (7) 13. Athugið lendingarstaður fyrir skýli. (7) 17. Réttur sjór kemur inn hjá manninum sem hefur eitt- hvað undir höndum. (10) 19. Forfeður með líkamshluta reynast vera afburðamenn. (9) 21. Farnaðist vel á einhvers konar blótum guðs. (10) 22. Hálshöggva út af móttökuhúsi í Reykjavík (7) 23. Skamm, tap í fyrstu hjá stúlku. (9) 25. Löglegar eignir mældar með löggildri lengdarmálsein- ingu. (8) 27. Reyki járn hjá dráttardýrum. (7) 28. Af hverju dauðir hjá sérstakri? (6) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 17. októ- ber rennur út fimmtudaginn 21. október. Nafn vinningshafans birt- ist í blaðinu 24. október. Heppinn þátttakandi hlýt- ur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 10. október er Sigurbjörn Guðmundsson. Hann hlýtur í verðlaun bókina Sólstjakar eftir Viktor Arnar Ing- ólfsson. Mál og menning gefur út. Krossgátuverðlaun Íslenska liðið sem tefldi í kvenna- flokki á Ólympíumótinu í Khanty Manyisk í Síberíu hafnaði í 57. sæti af 115 þátttökuþjóðum, hlaut 22 vinninga af 44 mögulegum eða 50% vinningshlutfall. Í Dresden í Þýskalandi varð sveitin í 60. sæti. Allar stúlkurnar í sveitinni voru að bæta árangur sinn og sveitin varð að lokum 12 sætum ofar en röðun fyrir mótið úthlutaði. Lenka Ptacnikova hlaut 8½ v. af 11 á 1. borði sem reiknast sem 20 skáka áfangi að alþjóðlegum meistaratitli, Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir hlaut 5½ vinning af 11 á 2. borði, Sigurlaug Frið- þjófsdóttir hlaut 2½ v. af átta mögulegum á 3. borði, Tinna Kristín Finnbogadóttir fékk 3 v. af sjö mögulegum á 4. borði og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir sem var 1. varamaður, hlaut 2½ v. af sjö mögulegum. Niðurstaðan gefur tilefni til að stefna enn hærra á næstu mót- um. Hallgerður sem tefldi allar skákirnar ellefu stóð sig vel og á heilmikið inni. Tinna og Jóhanna voru nýliðar í hópnum og áttu slæman kafla um miðbik mótsins þar sem einbeitnin var ekki nógu góð. Hin nýja kynslóð tekur þarna við keflinu af skákkonum á borð við Guðlaugu Þorsteinsdóttur, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og Hörpu Ingólfsdóttur. Þó er alls ekki útilokað og raunar óskandi að þessar þrjár snúi aftur og fleiri til sem myndi þýða að í dag ætt- um við mjög frambærilegan hóp kvenna á alþjóðlegum vettvangi. Á síðustu Ólympíumótum hafa sveitir frá Georgíu og Kína verið atkvæðamiklar í keppninni um efsta sætið en nú var rússneska sveitin var gjörsamlega óstöðv- andi og vann allar viðureignir sínar og var því með fullt hús stiga og 34 vinninga. Lokanið- urstaða efstu þjóða varð þessi: 1. Rússland 22 stig 2. Kína 18 stig 3. Georgía 16 stig 4. Kúba 16 stig 5. Bandaríkin 16 stig. Athygli vekur góð frammi- staða Kúbverja en þeir áttu einn- ig öfluga sveit í karlaflokki. Lengi geta þeir sótt í arf þriðja heims- meistarans, Jose Raoul Capa- blanca. Íslenska kvennaliðið var í raun án liðsstjóra því Davíð Ólafsson sem hafði tekið hlutverkið að sér forfallaðist á síðustu stundu. Gunnar Björnsson, forseti SÍ, sem sat þing FIDE hljóp í skarðið að einhverju leyti en segja má að þarna hafi Lenka Ptacnikova tekið að sér forystuhlutverkið. Hún tefldi af miklum þrótti og hikaði ekki við að taka djarfar ákvarðanir yfir skákborðinu eins og eftirfarandi skák ber vott um: Lenka Ptacnikova – Eva Repkova (Slóvakía ) Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4. exd5 Dxd5 5. Rgf3 cxd4 6. Bc4 Dd6 7. 0-0 Rf6 8. Rb3 Rc6 9. Rbxd4 Rxd4 10. Rxd4 a6 11. He1 Dc7 12. De2 Bd7 13. Bg5 0-0-0 14. a4 Bc5 15. c3 h5 Hér var betra að leika 15. … h6. 16. b4 Bd6 17. h3 e5 Sjá stöðumynd 18. Rb5! Mannsfórn ber vott um sókn- dirfsku og sjálfstraust. Hvítur gat einnig leikið 18. Rf3 og hefur þá góða stöðu. 18. … axb5 19. axb5 Bf5 20. b6 Dxb6 21. Be3 Dc7 22. Bb5! Rd7 22. … Kb8 má svara með 23. Ha7 með sterkri sókn eftir a-línunni. 23. Ha8 Rb8 24. Ba7 Dxc3 25. Be3! Og nú á svartur enga vörn við hótuninni 26. Hc1. 25. … Bc7 26. Hc1 Dxc1 27. Bxc1 Hd6 28. Be3 Hhd8 29. Ba4 Hg6 30. Dxh5 Be4 31. f3 Bd3 32. Bb3 Hd7 33. Dh8+ Hd8 34. Dh4 f5 35. Bg5 Bb6 36. Kh1 Hf8 37. Be7 Bf1 38. Ha2 Bd8 39. Dh7 Hh6 40. Dxg7 Hfh8 41. Bxd8 Kxd8 42. Hd2+ - og svartur gafst upp. Kvennaliðið stóð sig vel á Ólympíumótinu Helgi Ólafsson helol@simnet.is Skák Nafn Heimilisfang Póstfang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.