SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Page 10
10 26. júní 2011
M
ér þóttu það afar ánægjuleg tíðindi, þegar ég las það í
frétt hér í Morgunblaðinu sl. miðvikudag, að Hanna
Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, tekur oddvita hinna flokkanna bókstaf-
lega í nefið og sýnir mikla yfirburði, skv. nýrri skoðanakönnun
sem unnin var af Capacent, þar sem niðurstaðan var sú að 50,5%
borgarbúa treysta Hönnu Birnu best. Spurt var: „Hvaða oddvita í
borgarstjórn treystir þú best?“
Það merkilega við niðurstöðuna er að Hanna Birna nýtur meira
trausts en hinir oddvitarnir þrír samanlagt. 25,4% sögðust treysta
Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar, best, 17% kváðust
treysta Jóni Gnarr, oddvita Besta flokksins og borgarstjóra, best og
7,1% settu traust sitt á Sóleyju
Tómasdóttur, oddvita VG. Sam-
anlagt njóta þau því trausts 49,5%
aðspurðra. Þetta hlýtur að teljast
afskaplega klént, fyrir oddvita
þessara þriggja flokka í borg-
arstjórn, eins og Jón Viðar Jóns-
son hefði líklega orðað það.
Satt best að segja var ég alls
ekkert undrandi á þessari nið-
urstöðu og finnst bara ánægjulegt
að æ fleiri borgarbúar séu að
kveikja á því hvað það þýddi í
raun og veru að kasta atkvæði á
glæ Gnarrins og leiða hann til
borgarstjórasetu, í skjóli að-
altapara borgarstjórnarkosning-
anna fyrir rúmu ári, Samfylk-
ingarinnar.
Það hlýtur að teljast ákveðið
pólitískt afrek að hafa að náð að
hrekja helming kjósenda sinna
frá frekara fylgi við sig á einu ári,
en það tekst bæði Besta flokknum og borgarstjóranum, því fylgið
við Besta flokkinn mæltist 17,1%, helmingur þess fylgis sem flokk-
urinn naut í kosningunum. Sjálfstæðisflokkurinn kemur einnig út
sem sigurvegari þessarar könnunar og nýtur nú 44,5% fylgis, sam-
kvæmt könnun Capacent. Í því felst að Hanna Birna nýtur umtals-
verðs trausts út fyrir raðir fylgismanna Sjálfstæðisflokksins.
Hanna Birna hefur sýnt, bæði sem borgarstjóri í meirihluta-
samstarfi og sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í minnihluta, að hún
býr yfir mikilli þekkingu á borgarmálefnum og þörfum borgarbúa
og hún hefur sannfæringu til þess að hrinda hugsjónum sínum í
framkvæmd, í þágu okkar borgarbúa. Auk þess kann hún að for-
gangsraða, það er ekki síður mikilvægur eiginleiki.
Það vakti athygli margra síðasta þriðjudag, þegar hún tók borg-
arfulltrúa Samfylkingarinnar, þau Björk Vilhelmsdóttur og Dag B.
Eggertsson, svo rækilega í bakaríið á borgarstjórnarfundi, fyrir að
brjóta siðareglur, að lengi verður í minnum haft.
Þau og forseti borgarstjórnar voru eins og skömmustulegir
krakkar, sem skólastjórinn hefur tugtað til og sent í skammar-
krókinn, eftir yfirhalninguna frá Hönnu Birnu.
Ég held því að það sé að koma á daginn að fíflaframboð Besta
flokksins, með höfuðfíflið í oddvitasæti, er að hámarki eins kjör-
tímabils framboð, sem betur fer fyrir okkur borgarbúa. Ef fram
heldur sem horfir, verður flokkurinn að ári kominn niður í 8,5%
fylgi og eftir tvö ár í 4,2% fylgi og næst þegar verður kosið verður
flokkurinn væntanlega horfinn af yfirborði jarðar. Ég ætla alla vega
að leyfa mér að trúa því að Reykvíkingar muni ekki leyfa sér í öðr-
um borgarstjórnarkosningum að kasta atkvæðum sínum út í hafs-
auga, okkur öllum til óheilla og óþarfa fjárútláta. Hvað skyldi
framboð Besta flokksins hafa kostað okkur Reykvíkinga marga
milljarða króna í auknum útgjöldum? Það verður fróðlegt reikn-
ingsdæmi, þegar að uppgjöri kemur.
Og ekki minnkaði nú fíflagangurinn í Besta flokknum við það að
„innri, sjálfskoðunar- og endurskoðunarnefnd Besta flokksins“,
(þvílík nafngift á nefnd um það sem ekkert er!) sendi á fimmtudag
frá sér ályktun, sem hlýtur að eiga að vera svar flokksins við nið-
urlægingu hans í skoðanakönnuninni þar sem segir m.a.: „Besti
flokkurinn á alltaf að vera á tánum, tilbúinn að líta inná við, tilbú-
inn að viðurkenna misgjörðir og mikilvægt er að hann sýni æðru-
leysi.“ Innantómt kjaftæði og orðagjálfur! Leitaði nefndin með
makalausa nafninu kannski í smiðju til mannsins sem í raun og
veru er borgarstjórinn í Reykjavík, Dags B. Eggertssonar?!
Í bakaríi hjá
Hönnu Birnu
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Hanna Birna
’
Hún býr yfir
mikilli þekk-
ingu á borg-
armálefnum og hún
hefur sannfæringu til
þess að hrinda hug-
sjónum sínum í
framkvæmd
Jón Gnarr
06.00 Fer á fætur og vek
ungana, Freyju 10 ára og Viktor
13 ára. Við eigum stefnumót á
golfvelli GKG kl. sjö. Borðum
morgunmat, tökum lýsi og
smyrjum nesti. Alltaf gott að
hafa auka-samlokur í pokanum.
08.45 Lýk níu holu hring á
Mýrinni, skorið ekki það besta í
sögunni en allir hressir og kátir.
Krakkarnir mæta á æfingu hjá
GKG kl. níu og ég bruna í vinn-
una. Gæsir og aðrir fuglar sem
búa í Vatnsmýrinni glaðir á móti
mér enda sumarið komið og
Vatnsmýrin björt og fögur.
9.00 Í vinnunni er Sail Húsa-
vik í fyrsta sæti. Það er Norræn
siglinga- og strandmenningar-
hátíð sem verður haldin 16. til
23. júlí á Húsavík: glæsileg fjöl-
skylduhátíð í stærri kantinum
með dagskrá frá morgni til
kvölds. Dagskrárliðir voru vald-
ir af kostgæfni og helst til þess
fallnir að skemmta og fræða um
norræna strandmenningu. Nor-
ræna húsið stendur að hátíðinni
ásamt Norðurþingi og Íslenska
vitafélaginu.
9.30 Mæti á starfsmanna-
fund. Þar kemur til umræðu
Leiðsögn um húsið með Alvar
Aalto, nýtt verkefni hjá Nor-
ræna húsinu þar sem leikari er
fenginn til að bregða sér í líki
finnska arkitektsins og leiða fólk
í gegnum húsakynni og sögu
Norræna hússins. Sail Húsavík
tekur svo völdin, farið er í gegn-
um hafnarkort og skipulagningu
á staðsetningu allra stóru segl-
skipanna sem taka þátt og koma
til landsins 16. júlí.
10.30 Krota á nokkra gula
post it-miða sem fjölga sér
óþægilega hratt og gefa til
kynna að dagurinn verði langur.
11.00 Byrja að undirbúa
fund með Íslandsstofu þar sem
ræða á fjáröflun beinnar útsend-
ingar RÚV frá Sail Húsavík. Það
er mjög spennandi þar sem
þetta er í fyrsta skipti í sögu ís-
lenskt sjónvarps þar sem sýnt er
beint frá viðburði sem þessum.
12.00 Hádegisverður á veit-
ingastaðnum Dill í Norræna
húsinu. Mjög hentugt og algjör
lúxus að fá tækifæri til að borða
á Dill á hverjum degi. Gunnar
Karl Gíslason kokkur galdrar
fram dýrindis salat úr íslensku
grænmeti og kryddjurtum.
13.00 Fundur með Sigur-
laugu Margréti Jónasdóttur sem
verður kynnir Sail Húsavík. Við
skoðum hluta af dagskránni og
förum yfir tímaplanið. Í lokin
ræðum við veðrið í tilefni þess
að það hefur verið frekar kalt
fyrir norðan síðustu vikur. Full-
vissum okkur um að það muni
breytast og um miðjan júlí verði
sólskin og blíða á Húsavík!
14.20 Leiðin liggur í Borg-
artúnið ásamt Max Dager for-
stjóra Norræna hússins. Hittum
Jón Ásbergsson og Ingu Hlín
Pálsdóttur. Sátt við fundinn og
bruna til baka í Norræna húsið.
15.30 Gefst smá-tími til að
kíkja á tölvupóstinn og hringja
nokkur símtöl. Þarf nauðsyn-
lega að ná í Vilborgu Örnu Giss-
urardóttur. Vilborg er verk-
efnastjóri Sail Húsavík og hefur
því í mörg horn að líta.
16.00 Frumsýning á leið-
sögn um Norræna húsinu.
Starfsmenn fá að fara fyrstir
með Aalto sem leikinn er af
leikaranum Jóel Sæmundssyni.
Hann segir mjög skemmtilega
og lifandi frá sögu og hönnun
hússins og við fáum að sjá glæsi-
lega bíómynd um líf og hönn-
unarferil Alvars Aalto í fyrir-
lestrarsalnum. Alvar leiðir
okkur svo um verslun, bóka-
safn, barnahelli og sýningarsal
hússins þar sem verkefni „0“ er
nú til sýnis. Þetta verk er sam-
sýning fjögurra norskra lista-
manna. Þeir fást allir við hinn
póstmóderníska raunveruleika á
brotakenndan og breytilegan
hátt. Þeir vilja meina að með því
að líta til mannkynssögunnar
höfum við tækifæri til sjálfs-
skoðunar í stærra samhengi. Að
lokum endar leiðsögnin með
Aalto í gróðurhúsinu í garði
Norræna hússins þar sem veit-
ingamenn á Dill bjóða okkur
upp á ferskan rabbabarasafa.
17.00 Sest niður með Ólafi
Þorvalz sem hefur haft veg og
vanda af hönnun og fram-
kvæmd leiðsagnar Alvars Aalto
um húsið. Ég er mjög ánægð
með árangurinn, frumsýningin
lofar mjög góðu um framhaldið.
Reyni að útrýma gulu post it-
miðunum sem hafa hertekið
skrifborðið og virðast hafa fjölg-
að sér á meðan ég var í burtu.
18.00 Lagt af stað heim.
Kem við í matvöruverslun og
reyni að galdra þaðan út hollan
og fljótlegan kvöldverð.
21.00 Eftir kjúkling og salat
og uppvask er ákveðið að nýta
lengri opnunartíma sundlauga
Kópavogs og um leið njóta síð-
ustu sólargeisla dagsins. Sala-
laug er vel til þess fallin að liggja
í heitum potti og slaka á en ég
tek mig taki og syndi 10 ferðir til
málamynda og lofa sjálfri mér að
hlaupa nokkra kílómetra í há-
deginu á morgun.
22.30 Komin heim, krakk-
arnir komnir upp í rúm og ég
kíki stutt á fréttir á netinu og
furða mig á umræðu um skatta-
hækkanir. Er það nú ráðlegt?
23.30 Komin upp í rúm og
kíki í bókina Milli trjánna eftir
Gyrði Elíasson sem í ár hlaut
bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs. Frábært smásagna-
safn þarna á ferðinni.
Dagur í lífi Helgu Viðarsdóttur, markaðsstjóra Norræna hússins
Helga Viðarsdóttir: Fullviss um það að veðrið breytist og um miðjan júlí verði sólskin og blíða á Húsavík!
Morgunblaðið/Ernir
Alvar Aalto lifnar við