SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Síða 17
26. júní 2011 17
S
vanhildur Anna Sveinsdóttir er
ein af þeim Íslendingum sem
þjást af samþættri sjón- og
heyrnarskerðingu. Svanhildur
fæddist heyrnarskert á báðum eyrum, en
sjónin virtist vera í lagi framan af.
„Sjónin í mér sem barn var ágæt. Upp úr
fermingu fæ ég gleraugu og eftir það fer
sjóninni að hraka mjög fljótt,“ segir
Svanhildur. „Mér var sagt að ég væri
með nærsýna sjónskekkju og svo var ég
líka náttblind. Ég gerði mér enga grein
fyrir náttblindunni þar sem ég bjó í sveit
og var ekkert úti á kvöldin. Í kringum
tvítugt byjar svo sjónsviðið að þrengjast
hægt og rólega. Þetta gerðist svo hægt að
það kom eiginlega svolítið aftan að mér
að ég væri að verða blind. Ég var allt í
einu farin að reka mig utan í horn á
borðum, stóla, ljósakrónur í ákveðinni
hæð og hina og þessa hluti. En ég hef
bara þurft að lært að lifa með þessu. Ég
man að fyrsta áfallið sem reið yfir mig
var þegar ég fór til augnlæknis til að fá
mér sterkari gleraugu. Augnlæknirinn
tjáði mér að ég mætti ekki vinna við
störf sem reyndu á sjónina.“
Heyrninni hrakar
Svanhildur Anna fæddist heyrnarskert,
með 50% heyrn á báðum eyrum. Þegar
hún var sjö ára fékk hún sín fyrstu
heyrnartæki sem urðu til þess að hún fór
að greina hljóð betur og ári síðar var hún
farin að læra að tala rétt. Skömmu eftir
barnaskóla fór heyrninni að hraka mjög
hratt þangað til hún var alveg hætt að
geta notað eyrun og greindi ekki lengur í
sundur hljóð og tal. ,,Ég var orðin
heyrnarlaus, en í desember árið 2004
ákvað ég að fara í kuðungsígræðslu á
vinstra eyra. Aðgerðin gekk það vel að
ég gat farið að greina í sundur hljóð og
fór að geta talað aftur,“ segir Svanhildur.
Kuðungsígræðslutæki er tæki sem gef-
ur heyrnarskertum og heyrnarlausum
möguleika á að heyra hljóð. Tækið er
samsett úr innri hluta, sem græddur er í
eyrað með aðgerð (kuðungsígræðslu) og
ytri búnaði sem borinn er fyrir aftan
eyrað. Tækið framkallar hljóðáhrif með
því að örva heyrnartaugina með raf-
magni.
Heilaæxli
Þremur árum seinna, árið 2007, fór
Svanhildur aftur í kuðungsígræðslu en
þá á hægra eyra, en aðgerðin tókst ekki
eins vel og þremur árum áður þegar
vinstra eyrað var lagað. „Ég fann það
strax að það var eitthvað að og það kom
líka í ljós þegar ég var í tónstillingum að
sá grunur reyndist á rökum reistur. Þeg-
ar betur var að gáð kom í ljós að ég var
með heilaæxli við heyrnartaugina og
jafnvægistaugina. Æxlið fannst í rauninni
á síðustu stundu. Þetta var orðið svo
stórt og mikið og farið að angra mig það
mikið að ég var hætt að geta gengið úti
vegna lélegs jafnvægis. Hérna heima var
ég farin að ganga meðfram veggjum og
var mikið veik í marga mánuði,“ segir
Svanhildur og bætir við að heyrnin á
hægra eyra hafi aldrei jafnað sig og að
hún heyri ekkert með því eyra í dag.
Heilaæxlið var fjarlægt með aðgerð ár-
ið 2008 og þá batnaði líf hennar mikið.
„Æxlið hafði mikil áhrif á sjónina og
heyrnina og ég var mjög veik í marga
mánuði. Eftir aðgerðina hurfu veikindin,
heyrnin lagaðist mikið og sjónin, sem
var orðin mjög slæm, lagaðist einnig
mikið.
Blindrahundurinn Exo
Fyrir rétt rúmu ári fékk Svanhildur svo
blindrahundinn Exo. Exo er rakki af
Labrador-kyni sem fékk þjálfun í Nor-
egi. „Exo er alveg æðislegur og hefur
breytt mínu lífi mikið frá því að ég fékk
hann í maí í fyrra. Hann fylgir mér eins
og fylgdarmaður um allt og sér til þess
að ég verði mér ekki að voða. Hann
stoppar við götur og kantsteina og pass-
ar upp á það að ég reki mig ekki utan í
hluti,“ segir Svanhildur.
Svanhildur er varamaður í stjórn
Fjólu. Fjóla er félag fólks með samþætta
sjón- og heyrnarskerðingu. Markmið fé-
lagsins er að vinna að hvers kyns rétt-
inda- og hagsmunamálum sjón- og
heyrnarskertra á Íslandi. Mánudaginn
27. júní næstkomandi verður haldinn al-
þjóðlegur dagur fólks með samþætta
sjón- og heyrnarskerðingu. Af því tilefni
verður dagskrá á vegum félagsins í höf-
uðstöðvum Blindrafélagsins, Hamrahlíð
17 í Reykjavík. Boðið verður upp á fjöl-
breytta dagskrá sem hefst klukkan
13:00. Léttar veitingar verða í boði og
gestum gefst kostur á að skoða hjálpar-
tæki og kynna sér samskiptaleiðir.
Heyrnin kom, sjónin fór
„Þetta gerðist svo hægt að það kom eiginlega
svolítið aftan að mér að ég væri að verða blind.
Ég var allt í einu farin að reka mig utan í horn á
borðum, stóla, ljósakrónur í ákveðinni hæð og
hina og þessa hluti,“ segir Svanhildur Anna
Sveinsdóttir sem er sjón- og heyrnarskert.
Texti: Róbert B. Róbertsson robert@mbl.is
Mynd: Sigurgeir Sigurðsson sigurgeir@mbl.is
Svanhildur Anna Sveinsdóttir
ásamt blindrahundinum Exo.