SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Side 19
26. júní 2011 19
Hæstu fjárframlög til herafla
árið 2010 (í milljörðum Bandaríkjadala)
700
600
500
400
300
200
100
0
Bandaríkin
4,8%
Kína*
Bretland
Frakkland
Rússland*
Japan
Sádí Arabía**
Þýskaland*
Indland
Ítalía*
Brasilía
Suður Kórea
Ástralía
Kanada*
Tyrkland*
2,1%
2,7%
2,3%
4,0%
1,0%
10,4%
1,3%
2,7%
1,8%
1,6%
2,8%
2,0%
1,5%
2,4%
Heimild: SIPRI *Áætlað **Löggæsla og björgunarstarf innifalið
Hlutfall af vergri
þjóðarframleiðslu
drægist saman um fjórðung í mesta nið-
urskurði til varnarmála í 40 ár. Þetta kom
fram í skýrslu endurskoðunarskrifstofu
hins opinbera þar sem sagði að framlög til
nýrra hergagna yrðu skorin niður um
næstum því helming til þess að stoppa upp
í 38 milljarða punda fjárlagagat.
Bretar eins og litlu ríkin í Evrópu
Vikublaðið The Sunday Times hafði af
þessu tilefni eftir Dannatt lávarði, fyrrver-
andi yfirmanni breska heraflans, að þessi
niðurskurður væri „fordæmalaus“ og
myndi færa Bretland „niður til litlu
ríkjanna í Evrópu“. Hann bætti við: „Ef við
viljum vera lítil þjóð er það gott og vel, en
við getum ekki þóst vera millistórt veldi
lengur.“ Í frétt blaðsins af niðurskurðinum
sagði að yfirmenn breska hersins væru í
losti út af honum.
Bretar eru ekki einir um að skera niður
til varnarmála. Niðurskurðurinn nær til
allra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins.
Þjóðverjar hafa sett herskyldu á ís og ætla
að skera útgjöld til varnarmála niður um 11
milljarða dollara á næstu þremur árum.
Fækka á um 60 þúsund manns í þýska
hernum, fara úr 240 þúsund í 160 þúsund
manna her. Svíar afnámu herskyldu í
fyrrasumar og fækkuðu nýliðum, sem
teknir eru inn árlega um helming. Hol-
lendingar ætla að skera niður niður um
15% í varnarmálaráðuneytinu. Ítalir ætla
einnig að skera niður.
Rasmussen varar við breikkandi bili
Á öryggisráðstefnu í München í febrúar
varaði Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri NATO, við niðurskurðinum
og sagði að hann gæti haft alvarlegar af-
leiðingar. „Ef skorið er of djúpt munum við
ekki geta varið öryggið, sem lýðræðissam-
félög okkar og velmegandi hagkerfi treysta
á,“ sagði hann. „Við tökum áhættuna á því
að bilið á milli Evrópu og Bandaríkjanna
breikki. Rasmussen ítrekaði síðan áhyggjur
sínar og orð Gates í viðtali við dagblaðið
The Guardian 16. júní þar sem hann benti á
að fyrir tíu árum hefðu útgjöld Bandaríkja-
manna til varnarmála verið um helming-
urinn af öllum varnarmálaútgjöldum
Bandalagsins, en nú væri hlutur þeirra
75%. Sagði Rasmussen að stigju Evr-
ópuríkin í NATO ekki fram væri hætta á að
„bandalag okkar veikist“ og verði „tví-
skipt“.
Neyðast Bandaríkin
til að ganga úr NATO?
Daginn áður hafði Gates sagt á Bandaríkja-
þingi að of lítil fjárframlög annarra NATO-
ríkja myndu á endanum leiða til þess að
Bandaríkin neyddust til þess að ganga úr
bandalaginu. „Raunveruleikinn er sá að
um leið og þeir skera niður á fjárlögum til
varnarmála og … hafa ekki fjárfest í varn-
arkostum sínum gerist það sjálfkrafa að
auknar byrðar fjalla á Bandaríkin,“ sagði
Gates. „Ég held því að þetta sé alvarlegt
vandamál. … En ég held að okkar eigin
fjármálavandi og það sem blasir við okkur
við að fara yfir bandarísku fjárlögin til
varnarmála stilli þessu máli upp á miðju
sviði með allt öðrum hætti en verið hefur.“
Í áðurnefndum dálki Karlamagnúsar í
The Economist var vikið að því að Gates
hefði sérstaklega hrósað nokkrum ríkjum
til að gera hlutfallslega meira en önnur í
sprengjuherferðinni í Líbíu. Nefndi hann
Noreg, Danmörku, Belgíu og Kanada. Þar
er vitnað í ónefndan bandarískan embætt-
ismann, sem veltir fyrir sér hvort það sé
vegna þess að þessi ríki líti svo á að aðgerð-
in í Líbíu snúist ekki um að stórveldi sé að
hnykla vöðvana eða hið endalausa og illa
skilgreinda „stríð gegn hryðjuverkum“,
heldur sé í nafni mannúðar; fyrsti próf-
steinninn á hina nýju stefnu Sameinuðu
þjóðanna um „ábyrgðina á að vernda“.
„Örlög Líbíumanna í stríðinu gegn Gaddafi
eru ekki bara í húfi,“ skrifar dálkahöfund-
urinn, „heldur skuldbinding Evrópu til að
reka – og þegar nauðsynlegt er – beita al-
vöruherafla. Ábyrgðin á að vernda krefst
fyrst og fremst getunnar til að vernda.“
Bresk herþyrla hefur sig á loft. Aðgerðir
NATO í Líbíu þykja hafa sýnt bresti í banda-
laginu og hafa Bandaríkjamenn gagnrýnt evr-
ópsku aðildarríkin harkalega fyrir hern-
aðarlegan vanmátt.
Liam Fox, varnarmálaráðherra Bretlands, ræðir við Anders
Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalags-
ins, og Bill Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Rasm-
ussen og Gates hafa undanfarið gagnrýnt vanbúnað evr-
ópskra aðildarríkja NATO harkalega.
Reuters
’
Þess utan hefur öflugasta hern-
aðarbandalag sögunnar aðeins
haldið uppi aðgerðum í 11 vikur á
móti illa vopnuðum her í strjálbýlu
landi og þegar eru margir bandamenn
byrjaðir að vera uppiskroppa með
skotfæri og þurfa – enn einu sinni – á
Bandaríkjunum að halda til að brúa
bilið.