SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Page 33

SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Page 33
26. júní 2011 33 Skannaðu kóðann til að lesa frétt um sýn- inguna Hlutirnir okkar í Hönnunarsafninu. Kaffistell frá því í kringum 1950 eftir Benedikt Guðmundsson. Þetta er renndur íslenskur leir og stellið er handmálað. Borðstofuhúsgögn eftir Sigvalda Thordarson frá um 1960. Tekkið varð vinsælt hér eins og víðar í Evrópu á áratugunum frá 1950-1970. Borð- stofuhúsgögnin sem hér eru sýnd voru lengi framleidd og þetta sett var keypt árið 1964. Skenkar sambærilegir þessum urðu einnig vin- sælir og má finna þá í mismunandi útfærslum eftir ólíka hönnuði. Þessi svefnherbergishúsgögn frá fjórða áratugnum eru úr búi hjónanna Vigdísar Reykdal og Ein- ars Sveinssonar arkitekts, húsa- meistara Reykjavíkur. Leiða má að því líkum að þau séu smíðuð eftir teikningum Einars og er settið dæmi um afar vandaða smíð. Spira, svefnbekkur og sófi eftir Þorkel G. Guðmunds- son, frá 1965. Þorkell hann- aði sjálfur ullarefnið á sófann og var hann framleiddur í ýmsum litbrigðum í mörg ár. Þorkell fékk einkaleyfi á þeirri lausn sem felst í því að breyta sófanum í rúm. safnar aðeins gripum gerðum eftir aldamótin 1900. „Við þekkum ekki nógu vel þessa sögu,“ segir hún og sér fyrir sér að íslensk hönn- unarsaga verði kennd sem hluti af listfræði- kennslu í Háskóla Íslands. Vel væri hægt að hugsa sér að einhver af þess- um húsgögnum yrðu framleidd á ný en vinsæld- ir danskrar hönnunar frá svipuðum tíma eru miklar. „Til þess þyrftum við að þekkja þetta betur og segja: Við viljum íslenskt,“ segir Harpa. Nýrri gripir eru líka á sýningunni og þar eru sýnd verk eftir íslenska hönnuði í alþjóðlegu samhengi, en margir hérlendir hönnuðir hafa starfað í samstarfi við erlend hönnunarfyrirtæki á síðustu árum. Ennfremur eru erlendir gripir á sýningunni til að setja hlutina í alþjóðlegt sam- hengi. Sýningin stendur til 16. október næstkom- andi. Armstóll frá því um miðjan fjórða áratuginn eftir Ólaf B. Ólafs. Stál- grindin er fjaðrandi en eikarbotninn ljær stólnum hornrétta línu sem er brotin upp af sveigðum krómpípunum. Íslenska salún-áklæðið er í senn þjóðlegt en líka framandi fyrir svo evrópskan stól.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.