SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Side 34
34 26. júní 2011
Rory McIlroy var
öruggur á Opna banda-
ríska meistaramótinu
eftir að hafa misstígið sig
illilega á lokadegi Mast-
ersmótsins nýverið.
G
jörvöll heimsbyggðin þekkir
kvikmyndaplássið Hollywood
vestur í Kaliforníu en bærinn
Holywood á Norður-Írlandi,
skrifaður með einu l-i, var á fárra vitorði
þar til fyrir nokkrum dögum. Það er að
öllum líkindum breytt til frambúðar og
eflaust bara spurning um tíma hvenær
handritið sem þar hefur verið í vinnslu
síðustu tvo áratugi verður að bíómynd.
Í þessu rúmlega 12.000 manna sam-
félagi skammt norðan við höfuðborgina
Belfast er borin og barnfædd nýjasta
stjarna íþróttaheimsins, kylfingurinn
Rory McIlroy sem sigraði með fádæma
glæsibrag á opna bandaríska meist-
aramótinu um síðustu helgi, rúmum
mánuði eftir 22. afmælisdaginn. Hann
varð þar með sá yngsti til að fagna sigri á
Opna bandaríska síðan 1923. Rory lék
holurnar 72 á 16 höggum undir pari, færri
höggum en nokkrum hefur áður tekist.
Byrjaði ungur
Íbúar Norður-Írlands eru ekki nema um
1,8 milljónir og með ólíkindum að tvö ár í
röð skuli kylfingur þaðan fagna sigri á US
Open, einu af risamótunum fjórum og því
sem jafnan er talið það erfiðasta. Graeme
McDowell, sem bar sigur úr býtum í
fyrra, er áratug eldri en Rory en tók
strákinn snemma undir sinn vernd-
arvæng, gaf honum góð ráð og þeir leika
gjarnan saman æfingahring fyrir mót.
Rory er einkabarn foreldranna, Gerrys
og Rose McIlroy. Faðirinn er afbragðs-
kylfingur og sögur herma að hann hafi
byrjað að segja stráknum til þegar hann
var 18 mánaða! Rory litli varð strax
áhugasamur, bað föður sinn nær daglega
um að fara með sér á völl Holywood-
klúbbsins og hæfileikarnir þóttu koma
snemma í ljós; hann sló til að mynda 40
metra langt högg aðeins tveggja ára og var
fljótur að ná tökum á tækninni.
Strax í grunnskóla fékk Rory viður-
nefnið Makki hnífur; ekki að hann þætti
jafn ófyrirleitinn og sú persóna í Tú-
skildingsóperunni;
og þó: hann
gekk
jafn fljótt
og auðveldlega
frá andstæðingum
sínum, en í tilfelli
McIlroys var um að
ræða skólafélagana
á golfvellinum.
Einmitt nú er
honum hrósað fyrir
„drápseðli“ í keppni,
sem hann virtist þó skorta
á US Masters-mótinu í Augusta í apríl á
þessu ári. Þar kastaði hann frá sér sigri á
síðasta degi eftir frábæra byrjun. Fyrstu
18 holur mótsins lék hann á 65 höggum og
fyrir síðasta dag hafði hann fjögurra
högga forskot. En síðasta hringinn lék
Rory á 80 höggum og féll niður í 15. sæti.
Enginn forystusauður hefur leikið síðasta
hring á Masters jafn illa og gríðarlega
mikið var fjallað um málið í heimspress-
unni. Margir óttuðust að niðurstaðan yrði
honum mikið áfall en svo var ekki. Tíu
dögum eftir mótið hittust Rory og um-
boðsmaður hans, Andrew „þykki“
Chandler, og ræddu málin. Umbinn segir
svo frá að eftir fáeinar mínútur hafi
hann áttað sig á því að „áfallið“
myndi ekki hafa nein sál-
ræn áhrif á kylfing-
inn.
Á næstu
mótum gekk
honum reyndar illa en
kom, sá og sigraði á US Open
eins og frægt er orðið. Gefum
Chandler orðið: „[Rory] leit á mig og
sagði: Ég skil satt að segja ekki öll þessi
læti, Þykki, vegna þess að þetta var golf-
mót – og ég er bara tuttugu og eins. Hann
missti af græna jakkanum en hann missti
ekki sjónar á heildarmyndinni.“
Rory var strax á unga aldri sá besti í
sínum aldursflokki á heimaslóðunum og
fyrsta alþjóðlega sigurinn vann hann á
heimsmeistaramóti á Miami í Flórída í
flokki 9-10 ára. Í viðtali við bandarísku
sjónvarpsstöðina CNN árið 2009 sagði
skólastjóri McIlroys í grunnskóla að
snemma hefði verið ljóst hvert ævistarf
drengsins yrði. Hann hefði staðið sig mjög
vel í námi og því hefði hann ekki þurft að
mæta í alla tíma, svo honum gæfist meiri
tími á golfvellinum en ella. „Við sáum
strax að framtíð hans væri í golfinu og ég
vildi ekki að skólinn yrði honum Þrándur
í Götu,“ sagði skólastjórinn. Ef allir skóla-
stjórnendur væru svona skilningsríkir!
Stórskemmtileg upptaka er til úr norð-
ur-írskum sjónvarpsþætti frá 1999,
skömmu áður en Rory náði 10 ára aldri.
Hann kom þá fram í viðtalsþættinum
The Kelly Show og þótti aðdáun-
arvert hve hann kom vel fyrir
og sýndi síðan hvernig hann
æfði sig heima; vippaði
boltanum inn í þvotta-
vél móður sinnar af
nokkurra metra færi!
Í fyrstu þremur til-
raununum var hann
nálægt því að hitta í
opið og það tókst í
þeirri fjórðu. Glæsileg
tilþrif.
Þeir sem til þekkja segja
foreldrana hafa alið Rory
ákaflega vel upp, hann sé
ákveðinn en þó jarðbundinn
og framkoma hans ætíð til fyr-
irmyndar. Það kostaði skildinginn að
drengurinn æfði sig jafn mikið og raun
ber vitni og þvældist um til að keppa.
Foreldrarnir lögðu sig alla fram til að son-
urinn mætti æfa við sem bestar aðstæður.
Móðir hans vann í verksmiðju og faðirinn
stóð gjarnan tvöfaldar vaktir á
barnum þar sem hann starf-
aði, til að þéna sem
mest. Nú er
kominn
tími til að borga
til baka, segir
Rory. „Ég sagði þeim á
sínum tíma að ef ég yrði góð-
ur og þénaði peninga á golfinu
myndi ég sjá um þau.“
Á grænni grein
Fyrir sigurinn á US Open um síðustu helgi
fékk hann tæpar 170 milljónir króna og
norður-írskir fjölmiðlar spá því að þess
verði ekki langt að bíða að Rory verði
tekjuhæsti íþróttamaður á Bretlandi –
skjótist fram úr knattspyrnukappanum
David Beckam og Formula 1 ökuþórnum
Lewis Hamilton.
Norður-Írinn var í liði Evrópu sem
sigraði í Ryder-bikarkeppni ungmenna
árið 2004 og hann varð Evrópumeistari
áhugamanna 2006. Árið áður, 16 ára, setti
hann vallarmet á Dunluce-vellinum, öðr-
um tveggja valla Royal Portrush í heima-
landinu. Rory var í eina viku efstur á
heimslista áhugamanna 2007, þá 17 ára,
en ári síðar skráði hann sig atvinnumann í
íþróttinni, vann fyrsta mótið sem slíkur á
Evróputúrnum 2009 og ári síðar á PGA.
Rory McIlroy er spáð slíkum frama að
nafn hans er nú þegar nefnt í sömu andrá
Hetjan frá
Holywood
Norður-Írinn Rory McIlroy þykir sem ferskur andblær, jafnvel frelsandi
engill fyrir golfið eftir að hneykslismál Tigers Woods tröllriðu íþróttinni.
McIlory er heiðarleikinn holdi klæddur, brosmildur og frjálslegur í fasi.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Sigur McIlroy á Opna bandaríska meist-
aramótinu vakti heimsathygli. Belfast Tele-
graph birti á forsíðu á þriðjudaginn forsíður
blaða víðs vegar um heiminn daginn áður.