SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Blaðsíða 37
26. júní 2011 37
1,5 lítri rjómi
1,5 lítri kókosmjólk
100 gr villisveppir, þurrkaðir eða ferskir
1 lítri vatn
1 msk turmenik
2 tsk dill
Kjúklingakraftur
1 tsk engifer
1 msk dijon-sinnep
2-3 slettur tabasco
Maizena
Suðan látin koma upp. Súpan er svo þykkt og
pipruð/söltuð eftir behag. Ferskum fiski er
bætt út í, helst skorinn í smábita t.d. lax, þorsk-
ur og hörpuskel.
Berist fram með ferskum kryddjurtum.
Fiskisúpa að
hætti Matstofunnar
í Árnesi
sem selt er á bændamarkaðnum og er úr
sveitinni í kring. Nautið kemur frá Koti,
grísinn frá Laxárdal og grænmetið frá
Flúðum og bæjunum í kring. „Hér er ekk-
ert fjöldaframleitt,“ segir Íris. „Maturinn
sem við bjóðum upp á kemur beint frá
býlum hérna í grendinni. Það er svo gam-
an að geta sagt að allt hráefni sem við not-
um sé búið til á næstu bæjum. Við getum
bent á að þetta komi frá þessum manni
eða þessari konu sem er á bæ hérna í
sveitinni, og okkur finnst það frábært.“
Þau Arnór og Íris hafa þróað ýmsar nýj-
ungar í matargerð og ber þar helst að
nefna anisgrafinn lax og bollabrauð. „Það
var til svo mikið af bollum sem við erfðum
frá fyrri eigendum. Mér datt í hug að nýta
þá í að búa til svona bollabrauð. Bolla-
brauðið er skemmtileg nýjung sem hefur
vakið mikla athygli og lukku hjá gestum
okkar.“
Mikil ásókn í Samkomusalinn
Samkomusalurinn tekur um 260 manns í
sæti, en hægt er að stækka hann þannig að
hann rúmi 300 manns. Hann er notaður
við stórar veislur svo sem brúðkaup, af-
mæli, þorrablót og annað slíkt. Mikil
ásókn er í hann í sumar og eru fjórar veisl-
ur á döfinni í júlí. Veisluþjónusta matstof-
unnar einskorðast ekki einungis við sam-
komusalinn því hægt er að panta mat frá
matstofunni ásamt því að fá kokkinn á
staðinn með þjónum.
Veitingastaðurinn er opinn sunnudaga
– fimmtudaga kl. 11.30-22.00 og föstu-
daga og laugardaga til kl. 01.00.
Bændamarkaðurinn er opinn alla daga
frá klukkan 9.00 og veisluþjónustan er allt
árið.
Það sem er helst á dagskrá í sumar er
salsaball sem allri geta keypt sig inn á,
kanarýhátíð og Brjóstsykursgerð Svandís-
ar verður með sýnikennslu á því hvernig á
að búa til brjóstsykur.
Borðapantanir og almennar upplýsingar
er hægt að fá í síma 844-5262 eða með því
að senda skilaboð á matstofaarnes@sim-
net.is. Þá er einnig hægt að sjá almennar
upplýsingar um stofuna á heimasíðu
Þjórsárstofu, thjorsarstofa.is, eða á fés-
bókarsíðu Matstofunnar.
Þjórsárdalurinn er staðsettur í Árnes-
sýslu. Dalurinn er sléttlendur, en eftir
fjölmörg eldgos úr Heklu er hann nokkuð
vikurborinn. Mörg fögur kennileiti og
merka staði er að finna í Þjórsárdal s.s.
Gjána, Háafoss, Hjálparfoss, Stöng, Þjóð-
veldisbæinn, Gaukshöfða og Vegghamra,
svo dæmi séu tekin. Á bænum Stöng bjó
Gaukur Trandilsson á 10. öld. Stöng fór í
eyði þegar Hekla gaus árið 1104. Stöng er
fyrirmynd Þjóðveldisbæjarins sem reistur
var á árunum 1974 -1977 vegna 1100 ára
afmælis Íslandsbyggðar. Gaukshöfði dreg-
ur nafn sitt af fyrrnefndum Gauki (Gaukur
á Stöng) en Gaukur var veginn í Gauks-
höfða af fóstbróður sínum Ásgrími Elliða-
grímssyni. Gjáin, Háifoss og Hjálparfoss
eru af mörgum talin feikilega fögur nátt-
úruvin sem gaman er að skoða. Þá er
fjörugt dýralíf og fuglalíf á svæðinu sem og
falleg fjöll.
hann lærði kokkinn og hún þjóninn.
Gamaldags rabbabarakaka með rjóma.
Bollabrauðið er borið fram í rjúkandi bolla.
Sýnishorn af því sem boðið er upp á á bændamarkaðnum.
’
Ef fólk vill komast úr
ösinni og stressinu í
bænum, er svo lítið
mál að renna hingað upp-
eftir og njóta náttúrunnar,
fá góðan íslenskan mat í
góðu andrúmslofti