SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Síða 39
26. júní 2011 39
Þúsundir nakinna hjólreiðamanna söfnuðust nýverið
saman við sjóinn í Portland í Bandaríkjunum til að
taka þátt í „World Naked Bike Ride“. „Þetta er ótrú-
lega frelsandi tilfinning,“ sagði Brooklyn Jay, sem
kom til borgarinnar alla leið frá Phoenix, í samtali við
Reuters. Sambærilegur viðburður er haldinn í fjórum
öðrum borgum, San Francisco og Seattle auk Boul-
der og Black Rock City í Colorado. Nöktu hjólreiðarnar
hafa verið stundaðar með þessum skipulega hætti
frá árinu 2004 og eru ætlaðar til þess að vekja at-
hygli á hjólreiðum sem fararmáta.
„Þetta snýst um að bjarga umhverfinu,“ sagði
Xandi Silvaggi, annar allsber hjólreiðamaður.
Í kringum nakta hjólreiðadaginn í þessari frjáls-
lyndu borg eru síðan haldnir ýmiss konar viðburðir,
sem má mæta í nakinn eða í fötum.
Naktar hjólreiðar til
hjálpar heiminum
Hér er söngkonan ásamt Jennifer Hudson að taka syrpu með lögum Arethu Franklin við upphaf 53. Grammy-
verðlaunahátíðarinnar í Los Angeles í febrúar.
Reuters
’
Hún virðist á sama tíma
vera úr fortíðinni og fram-
tíðinni, sem er kannski
einmitt það sem er svona nú-
tímalegt við hana.
Hún söng lagið „If I Rise“ úr kvikmyndinni
127 Hours á Óskarsverðlaunahátíðinni.
Á þriðja tug manna var tekinn höndum og lagt var hald á sextán flutn-
ingabíla og þeir geymdir til næsta dags á Kirkjusandi, þar sem kom til
átaka þegar menn fengu að sækja þá.
Þegar kom fram á vormánuði 2008 mátti mönnum ljóst vera að að-
stæður í efnahagslífinu voru mjög að breytast. Eftir fordæmalitla gós-
entíð, þegar gengi íslensku krónunnar gagnvart erlendum myntum
var sérdeilis hagstætt og auðvelt að slá lán, breyttist allt. Lausa-
fjárkreppa á heimsvísu var skollin á og kyrkingur komst í efnahagslífið
– og svo hrundi allt með falli bankanna um haustið. Það leiddi af sér í
raun þjóðfélagsbyltingu, þar sem ríkisstjórn Geirs H. Haarde blæddi
út.
Stundum er sagt að umskipti kalli á umrót og eðli umræðunnar á
hverjum tíma – sem og fjarlægðar tímans – sé að einfalda mál á þann
veg að skynjun okkar er sú að örfáir menn hafi leitt breytingarnar,en
ekki fjöldinn. Einhverjir líta væntanlega svo á að Sturla Jónsson vöru-
bílstjóri hafi á Rauðavatnsdögum verið byltingarleiðtogi númer 1 og
vissulega barði hann bumbur svo eftir var tekið, meðal annars í kvik-
myndinni Guð blessi Ísland. Fyrr á þessu ári var Sturla í framboði til
varaformanns Framsóknarflokksins en áður hafði hann látið að sér
kveða á vettvangi Frjálslynda flokksins. Hafði reyndar áður boðað
stofnun Framfaraflokkins sem virðist hafa verið andvana fæddur. Svo
var Sturla einn af fyrstu Íslendingnum sem fóru til Noregs eftir hrun í
leit að nýrri framtíð, eins og þúsundir hafa gert síðan.
En holdtekjur byltingarinnar hafa orðið fleiri. Ragna Árnadóttir varð
dómsmálaráðherra og í flestum stjórnmálaflokkum tók nýtt fólk við
forystu þó enn sé ekki hægt að dæma um hvernig því hafi tekist upp.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Þótt bílstjór-
arnir hefðu
talsvert til síns
máls þóttu aðgerð-
irnar ekki boðlegar
Sturla Jónsson
N
ei, ekki er um að ræða þetta eilífðar smáblóm sem
tilbað guð sinn og dó í þjóðsöngnum, heldur á
þetta við um manneskju sem liggur í fleti sínu (eða
annars staðar) skjálfandi að morgni eftir næt-
urbrölt þar sem öl hefur verið kneyfað af miklum móð.
Allir sem hafa einhverntíma sogið ofan í sig meira áfengi en
þeir hefðu kannski átt að gera og mætt fyrir vikið í morguns-
árið heiftarlegu heilsuleysi sem gengur undir nafninu
þynnka, vita að skelfingu þeirri fylgir einn unaðslegur kostur:
Þynnkugreddan góða.
Þegar fírtommu naglinn í hnakkanum lætur á sér kræla við
minnstu hreyfingu og maginn er
líkastur ólgusjó, þá er sannarlega
huggun harmi gegn að geta leyft
þeirri einstöku eðlunarfýsn að yf-
irtaka sig sem gjarnan brýst fram í
þessu annars dapra ástandi.
Svona er náttúran mikið ólík-
indatól, að þrengja æpandi þynn-
kugreddu fram í hvern útlim þegar
viðkomandi er nánast ófær um að
standa í lappirnar.
Þetta merkilega fyrirbæri sem á
sjálfsagt einhverjar skýringar í
löskuðu miðtaugakerfi eftir eiturárás göróttra drykkja,
magnar svo upp alla næmni í skrokknum (og líka í brothættri
sálinni) að hvert líkamsins bifhár logar sem sprengjuþráður.
Og hjartað bráðið smér undir dúandi brjóstum.
Það þarf vart annað en anda á neðrivarirnar miðsvæðis á
konunni, og allt stendur í björtu báli.
Og karlsins kóngur þrútnar glatt undir tunguleik.
Ljúfsár er sú sæla þegar tvö óseðjandi titrandi strá fléttast
saman milli rekkjuvoða fram eftir degi og njóta þeirra marg-
feldisáhrifa sem þetta undarlega ástand hefur á skilaboðin
sem berast til heilans.
Á slíkum morgnum er eðli málsins samkvæmt gott að eiga
vísan rekkjunaut en illt er að vakna einn í fleti og engjast
sundur og saman með óslökkvandi þorsta í hverri taug.
Húðin öll svo sólgin í strokur að hún andar og bifast eins og
hungrað dýr.
Við slíkar aðstæður er hætta á að gripið verði til örþrifaráða.
Því vitneskjan er til staðar um að fátt er árangursríkara
lækningameðal en að ríða hreinlega úr sér óværuna með
þynnkugredduna að vopni.
Kæru lesendur, njótið Jónsmessunnar.
Ölvist af öðru en vínsins eitri.
Gerið frekar eins og skáldið kvað:
„Skála í silfurvíni, sem dalsins dísir vinna
úr dögg og mánaskini.“
Eitt titrandi
strá
’
Ljúfsár er
sú sæla
þegar tvö
óseðjandi titr-
andi strá fléttast
saman milli
rekkjuvoða
fram eftir degi
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is