SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Blaðsíða 45
26. júní 2011 45
Í
bókinni This is Not the
End of the Book ræða for-
fallnir bókasafnarar, Um-
berto Eco og Jean-Claude
Carrière, um bókasöfnun sína,
en báðir eiga þeir mikið af sjald-
séðum bókum, Eco á 50.000
bækur og Carrière 30.000-
40.000. Þeim er tíðrætt um það
hvað það sé gaman að safna bók-
um, að leita að gullmolum og
gera góð kaup. Í því ljósi fannst
mér merkilegt að sjá hvað þeir
eru eigingjarnir þegar rætt er
hvað eigi að gera við þessu miklu
söfn að þeim gengnum; Eco get-
ur ekki hugsað sér að bókasafni
hans verði tvístrað, í það
minnsta ekki þeim hluta sem
hefur að geyma mesta rarítetið:
„Vitanlega get ég ekki hugsað
mér að safninu verði tvístrað.
Fjölskylda mín myndi gefa bóka-
safni það eða selja það hjá upp-
boðshúsi og það færi því í heilu
lagi til háskólasafns. Það eitt
skiptir mig máli.“
Nú er það títt gert að gefa
bókasöfnum bókasöfn og stund-
um vill það verða einskonar
hefndargjöf, því viðtakandinn
þarf iðulega að leggja í kostnað
vegna gjafarinnar, koma henni
fyrir í hillum, jafnvel byggja við
eins og dæmi eru um, eða flokka
niður í kassa, sem er býsna al-
gengt, og borga síðan fyrir
geymslurými um aldir alda. Sú
árátta safnara að vilja varðveita
söfnin heil að sér látnum eru því
ekki bara að ræna aðra ánægj-
unni af því að geta rekist á ein-
hverja perluna úr safni þeirra í
rykugri búðarholu heldur eru
þeir líka að skapa öðrum vand-
ræði að ósekju.
Best er því að selja allt klabbið
og þá ekki til bókasafna heldur til
annarra safnara eða bóksala.
Helsta gleðin af því að safna bók-
um felst í nefnilega söfnuninni
sjálfri og þá gleði munu ekki aðr-
ir upplifa en safnarinn; þegar
hann fellur frá er hans gleði úr
sögunni og er þá ekki besta leiðin
til að minnast hans að leyfa öðr-
um að upplifa gleðina af því að
rekast á sjaldséna bók?
Söfn-
unar-
gleði
’
Helsta gleðin
af því að safna
bókum felst í
söfnuninni sjálfri og
þá gleði munu ekki
aðrir upplifa en
safnarinn.
Orðanna
hljóðan
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Undanfarið hef ég aðallega verið að lesa höfunda sem
þurfa ekki sárlega á því að halda að vera komið á fram-
færi, gamla karla sem hafa ýmist fengið Nóbelsverðlaun
eða verið tilnefndir oftar en einu sinni. Eina bók las ég
hins vegar í miklu lestrarmaraþoni í vor sem mér þykir
þess verð að auglýsa svolítið; það er skáldsaga eftir kúb-
anska höfundinn Virgilio Piñera, sem heitir á frummál-
inu La carne de René en ég las í ensku þýðingunni sem
René’s Flesh. Piñera var ljóð- og leikritaskáld, smá-
sagna- og skáldsagnahöfundur og Hold Renés var hans
fyrsta skáldsaga, kom út árið 1952. Það carne sem kemur
fyrir í titlinum getur á spænsku þýtt bæði hold og kjöt og
sú tvíræðni er í raun lykillinn að bókinni, en verður
óhjákvæmilega dálítið stirð í þýðingu. Ég ráðlegg því
þeim sem lesa spænsku á annað borð að reyna frekar að
verða sér úti um upprunalega útgáfu bókarinnar en
enska þýðingu, þótt hún sé að öðru leyti ágætlega gerð.
Aðalpersóna sögunnar er René, veikbyggður unglings-
piltur. Hann á yfirgangssaman og ráðríkan föður sem er
fylgismaður undarlegs sértrúarsöfnuðar sem tignar
holdið og kjötið framar öllu. Faðirinn reynir með öllum
ráðum að vígja René inn í þennan dýrkendaflokk, meðal
annars með því að láta hann snerta ógeðsleg sár sem
faðirinn hefur rist í eigið hold og neyða hann til að
standa í röðinni í kjötbúðinni, en René ræður ekki við
verkefnið og fellur í yfirlið. Svo fer að faðir hans sendir
hann í piltaskóla söfnuðarins þar sem nemendurnir eru
hafðir í taumi og með múl eins og hundar og þjálfaðir í
ögun og dýrkun holdsins. Hómóerótískur og sadóma-
sókískur andi svífur yfir vötnum. En þótt René sýni
mótþróa og takist á endanum að sleppa úr kjötskólanum
er raunum hans ekki lokið. Alla bókina er René að berj-
ast við fólk sem vill eiga hann og ráða yfir honum,
gjarnan í holdlegum skilningi. Þetta fólk er hvað öðru
einkennilegra; kjötdýrkandi faðir hans, væmin eldri ná-
grannakona sem girnist hann, drykkfelldir og sadískir
kennarar í piltaskólanum, að ekki sé minnst á akfeitan
og útlimasmáan mann sem heitir einfaldlega Kjötbolla
og á unglingspilta fyrir elskhuga sem rúlla honum um
stofugólfið með priki. Ég hef lesið svolítið af ljóðum eftir
Piñera og það er sami fáránleikablær yfir þeim og þessari
skáldsögu. Hún er uppfull af skrítnum persónum og
absúrd uppákomum, hugmyndaauðgi og pervertisma.
Það finnst mér skemmtilegt.
Lesarinn Kristín Svava Tómasdóttir
Absúrd uppákomur, hug-
myndaauðgi og pervertismi
Virgilio Piñera Llera
(1912-1979), höfundur
La carne de René.
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
KONA / FEMME, LOUISE BOURGEOIS 27.5. -11.9. 2011
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN KL. 14 - Þorvaldur Þorsteinsson
myndlistarmaður og rithöfundur
KJARVAL, Úr fórum Jóns Þorsteinssonar og
Eyrúnar Guðmundsdóttur 27.5. -11.9. 2011
SAFNBÚÐ
Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara.
SÚPUBARINN, 2. hæð
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands
frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar
um þróun íslenskrar myndlistar.
„Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“
Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar,
undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar.
Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri.
Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna.
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
Eitthvað í þá áttina,
sýning um kortagerð, skrásetningu
og staðsetningu.
14. maí - 14. ágúst
Byggðasafn Reykjanesbæjar:
Bátasafn Gríms Karlssonar:
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
HLUTIRNAR OKKAR
– úr safneign safnsins
(9.6. – 16.10. 2011)
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 12-17. KRAUM og kaffi.
Garðatorgi 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ASÍ
21. maí til 26. júní
Síðasta sýningarhelgi
Harpa Árnadóttir
MÝRARLJÓS
Sýningin er hluti af Listahátíð
Opið 13-17, nema mánudaga.
Aðgangur ókeypis.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Pétur Thomsen: Ásfjall
Kurt Dejmo: Ljósmyndir úr Íslandsheimsókn 1955
Farandsýningin: Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna
Guðvelkomnir, góðir vinir! Útskorin íslensk horn
Stoppað í fat – Útskornir kistlar
Glæsileg safnbúð og Kaffitár
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga kl. 10-17
Myndin af Þingvöllum
Sýningarstjóri:
Einar Garibaldi Eiríksson
Fjölbreytt verk frá 1782-2011,
yfir 50 höfundar
Kaffistofa – Leskró – Barnakró
OPIÐ: alla daga. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
HveragerðiHugvit
Einar Þorsteinn Ásgeirsson
Verk úr safneign
Sýningarnar standa til 14. ágúst
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
- Aðgangur ókeypis
15. maí – 15. sept.
Sumarsýningin
Fundað í Fjölni
Fjölbreyttar sýningar í báðum
söfnum
Opið alla daga kl. 11-18
www.husid.com
Sími 483 1504