SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 6
6 11. september 2011
Minningarathöfn var haldin í
Minsk í Hvíta-Rússlandi 8. sept-
ember á þeim tíma sem liðið Lo-
komotiv átti að leika sinn fyrsta
leik í Kontinental-deildinni.
Stærðarinnar myndum af hverjum
og einum leikmanni sem fórst
hafði verið komið fyrir á ísnum og
við hverja mynd logaði kertaljós.
Leikmenn deildarinnar stilltu sér
upp, einn fyrir aftan hverja mynd
og hver með sinn pökk. Þeir fóru
svo einn á eftir öðrum og skutu
pökkunum í markið, til að minn-
ast félaga sinna.
Leikmenn Kontinental-
deildarinnar áttu bágt með að
leyna tilfinningum sínum, þeir
struku tárin af kinnum sér þegar
þeir renndu sér á ísnum og tóku
skot til minningar um vini sína.
Undir hljómaði söngur stúlkna-
kórs og aðdáendur syrgðu á troð-
fullum leikvanginum. Að lokum
lögðu leikmenn deildarinnar blóm-
vendi að öðru markinu á ísnum.
Liðsmenn Lokomotiv voru auk
þess að vera frá Rússlandi frá
Lettlandi, Hvíta-Rússlandi, Tékk-
landi, Slóvakíu. Svíþjóð og Kan-
ada. Í öllum þessum löndum hafa
verið minningarathafnir um
íþróttamennina.
Minningarathöfn um fallna leikmenn í Minsk
Það var tilfinningaþrungin stund sem ríkti á minningarathöfn sem haldin
var í Minsk í Hvíta-Rússlandi.
Reuters
Þ
jóðarsorg ríkir í Rússlandi eftir að flugvél
fórst í flugtaki í borginni Yaroslavl 7.
september síðastliðinn. Um borð var ís-
hokkíliðið Lokomotiv sem er eitt ástsæl-
asta íshokkílið þjóðarinnar og átta manna áhöfn.
Af þeim 45 sem voru um borð í vélinni létust 43 og
liggja tveir þungt haldnir á gjörgæslu, einn úr ís-
hokkíliðinu og einn úr áhöfn. Rannsakendur eru
ekki enn vissir um hvað það var sem olli slysinu en
að sögn sjónarvotts náði flugvélin aldrei almenni-
legri hæð og rakst í útvarpsmastur. Það kviknaði
samstundis í vélinni, hún klofnaði í tvennt og
brotlenti annar helmingurinn í nærliggjandi á og
hinn helmingurinn á jörðinni, allt þetta gerðist í
um það bil tveggja kílómetra fjarlægð frá flugvell-
inum. Sjónarvottur sagði að aðkoman hefði verið
skelfileg. Flugvélasætin voru dregin upp úr ánni
með líkum liðsmanna og áhafnar.
Liðið var á leið til Minsk í Hvíta-Rússlandi þar
sem það átti að leika í Kontinental-íshokkídeild-
inn. Fyrsti leikur deildarinnar var þegar hafinn
þegar fréttir af slysinu bárust. Leiknum var hætt,
enda voru margir leikmenn að frétta af láti félaga
sinna og góðvina. Leikmennirnir tóku hjálmana
niður þar sem þeir stóðu á ísnum og lutu höfði.
Sama kvöld söfnuðust um 2.000 manns saman
og gengu um götur Yaroslavl og sungu fé-
lagssönginn, margir hverjir klæddir félagsbún-
ingnum. Göngunni lauk svo hjá heimavelli liðsins
Lokomotiv og þar var enn meiri fjöldi af fólki sem
hafði kveikt á kertum og grét þar sem hinar ungu
fyrirmyndir voru syrgðar.
Einn af þeim leikmönnum sem fórust var lands-
liðsmarkmaður Svía, Stefan Liv. Hann var fæddur
í Póllandi en sænskir foreldrar hans ættleiddu
hann þegar hann var tveggja ára gamall. Stefan Liv
var í sænska landsliðinu þegar það vann ólympíu-
gullið árið 2006 og á að baki marga frækna sigra.
Aðdáendur hans komu saman og lögðu kerti,
blóm og landsliðstengda minjagripi við stærð-
arinnar mynd af honum. Móðir eins leikmannsins,
Sergei Ostapchuk, fékk hjartaáfall og dó þegar
henni bárust fréttirnar af slysinu og fráfalli son-
arins.
Rússneski leikmaðurinn, Alexander Galimow,
var eini leikmaðurinn sem lifði slysið af. Ástand
hans er mjög alvarlegt en fréttir herma að 80-90%
af líkama hafi brunnið. Eftirlifandi úr áhöfn heitir
Alexander Sizov og liggur hann þungt haldinn á
gjörgæslu. Forseti rússneska íshokkísambandsins,
Vladislav Tretiak sagði við komu sína til Yaroslavl:
„Missir okkar er óbætanlegur. Ég trú því ekki enn
hvað gerðist. Hokkííþróttin hefur misst bæði úr-
vals leikmenn og þjálfara. Þetta er hreinn harm-
leikur innan íþróttagreinarinnar.“ Forsetinn
Dmitry Medvedev heimsótti borgina og lagði blóm
á slysstaðinn.
Gagnrýnt hefur verið til margra ára hversu lé-
legur rússneski flugvélaflotinn er, en flugvélin
sem hrapaði hafði flugleyfi samkvæmt skoðun til
1. október 2011. Í júní síðastliðnum létust 44 í flug-
slysi þegar flugvél hrapaði á leið sinni frá Moskvu
til Petrozavodsk. Margir kenna lélegum flug-
vélaflota um þessi hræðilegu slys og þykir ekki
nógu vel hugað að flotanum. Ákveðið hefur verið
að taka eldri flugvélar, framleiddar í Rússland, úr
umferð árið 2012. Gagnrýnisraddir hafa líka verið
uppi um að flugmenn hljóti ekki nægilega þjálfun.
Harmleikur í
hokkíheiminum
43 létu lífið í flugslysi
– þar af heilt íshokkílið
Aðdáendur Lokomotiv hokkíliðsins komu saman við íshokkíhöll liðsins.
Reuters
Aðdáendur sungu félagssöng Lokomotiv þegar þeir
gengu um götur Yaroslavl kvöldið sem flugvélin fórst.
Reuters
Vikuspegill
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is
Þjálfari Lokomotiv, Kan-
adamaðurinni Brad McCrim-
mon, var einn þeirra sem lét-
ust í flugslysinu. Hann stefndi
á að verða þjálfari í NHL-
deildinni. Sjálfur spilaði hann
í NHL-deildinni á árunum
1979-1997. Þegar hann
hætti að spila tók hann við að
þjálfa Lokomotiv og gerði það
allt til dauðadags.
Kanadíski
þjálfarinn
Miðasala 568 8000
borgarleikhus.is
Áskriftar-
kortið mitt
Margrét I. Hallgrímsson
Ljósmóðir /
hjúkrunarfræðingur