SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 11
11. september 2011 11
Þriðjudagur
Eva Einarsdóttir
Kaffivélin komin úr
viðgerð, velkomin
heim! Síðustu 3
morgnar án hennar
tóku á!
Fimmtudagur
Bragi Valdimar
Skúlason
getur bætt við sig
ummælum.
Föstudagur
Sigríður Thorlacius
bíður eftir Godot,
sem í þessu tilfelli
er maðurinn sem
ætlar upp á þak að
laga loftnetið.
Árni Torfason
Ánægður með Bo-
nes í S06E05 þar
sem hún segir að
með því að hafa op-
ið klósett þegar þú sturtar niður þá
ertu að dreifa skítagerlum út í loft-
ið og þar á meðal á tannburstann
þinn. Lokið öllu heila draslinu áður
en þið sturtið!
Fésbók
vikunnar flett
Fartölvan sem getið er hér til hliðar er
afrakstur samvinnu HP og Beats, sem
er undirmerki Monster-snúruframleið-
andans hvað varðar hljóðkerfið í
henni. Mér þótti því við hæfi að prófa
hana með Beats heyrnartólum, en
þau, og reyndar öll Beats-línan, eru af-
rakstur samstarfs Monster og upp-
tökustjórans magnaða Dr. Dre. Það
samstarf hefur borið þann ávöxt að þó
ekki séu nema þrjú ár frá því flagg-
skipið kom út, Studio heyrnartólin
sem sjást hér fyrir ofan, er Beats orð-
ið einn helsti, ef ekki helsti, heyrn-
artólaframleiðandi Bandaríkjanna.
Studio-tólin eru lokuð og skerma
því vel fyrir utanaðkomandi hljóðum
og hlífa líka nærstöddum. Bassinn er
hreint afbragð sem vænta má þegar
hiphopfrömuður er annars vegar. Þau
eru með innbyggðum magnara og
þurfa því tvær AAA rafhlöður sem
skila eðlilega meiri krafti og því hægt
að hafa hærra, ef vill. Það er hægð-
arleikur að brjóta þau þau saman og
setja í sérstaka öskju sem fylgir til að
pakka saman í tölvu- eða ferðatösku.
Það er til lítils að vera að horfa á hörku-
mynd á hörkuskjá þegar hljómurinn er
leðjukenndur og daufur, nú eða að
hlusta á rokkkeyrslu, hiphop eða klass-
ík. Skemmst er frá því að segja
að í Beats Audio-línunni hjá HP
fer þetta allt saman, fáránlega
flottur hljómur og fínn skjár.
Kramið í vélinni er eftir
bókinni; 2 GHz i7 Intel-
örgjörvi, 8 GB minni og
750 GB SATA 5400 snúninga
harður diskur. Skjákortið er
fínt, AMD Radeon HD 6770M
með 2 GB minni og skjárinn
góður, 15,6" LED-skjár með
1366 x 768 upplausn.
Í henni er minniskorta-
lesari og SuperMulti
DVD DL-drif, en hægt
að fá BlueRay.
Hljóðkerfið er lykilatriðið í vélinni, Beats-hljóðkerfi
frá Monster sem hefur lagt undir sig heyrn-
artólaheiminn vestan hafs. Hátalararnir eru líka frá
Beats Audio og það eru hátalarar framan á vélinni,
en líka baka
til, undir
skjánum, og
hallast fram.
Best er þó að
nota heyrn-
artól við hana
og þá til að
mynda Beats-
heyrnartól
sem getið er
hér til hliðar.
Það er í vélinni innbyggður hljóðnemi, vefmyndavél
og þar fram eftir götunum. Blátönn er á sínum stað,
þráðlaust net og hefðbundnir nettengimöguleikar,
en ókostur að það sé ekki gert ráð fyrir 3G í henni.
Stýrikerfið sem fylgir er Microsoft Windows 7 Home
Premium 64 bita.
Ekki gleyma hljómnum
Smám saman höfum við flutt inn í tölvuna, fyrst var það bara póstur og vefur,
svo tónlistin og loks DVD og bíómyndir. Í flutningunum gleymast þó oft
smáatriði sem eru þó býsna stór þegar upp er staðið, til að mynda hljómurinn.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Beats Studio
Afbragðsbassi
frá hiphopfröm-
uðinum mikla