SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Síða 39

SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Síða 39
11. september 2011 39 É g held svei mér þá að nú sé full ástæða til að hafa samband við helstu vísindatímarit heims því ég hef gert stórmerkilega uppgötvun á lífríki jarðar: Íslensk bláber og krækiber eru ekki einasta gómsæt og drekkhlaðin hollustu, andoxunarefnum og vítamínum, heldur geyma þau líka í sér áður óuppgötvað töfraefni sem hefur mögnuð áhrif á fólk á meðan það sefur. Ef ber þessi eru etin skömmu fyrir svefn í þónokkru magni, uppsker sá sem það gerir gríðarlega áhugavert erótískt ferðalag sem fylgir slík líkamleg sæla að ekki er nokkur leið að líkja því við neitt sem þekkist í raunheimum. Sumir velta því jafnvel fyrir sér hvort þeir vaki eða sofi meðan á þessu stendur. Hvern hefði grunað að hvers- dagsleg íslensk krækiber og blá- ber, svona líka sakleysisleg þar sem þau bíða þess þrútin á lyngi að einhver gæði sér á þeim, bæru í sér svo kynörvandi efni að þeir sem vakna upp af draumi eftir nótt með berin í maganum, eru ekki einasta með blússandi standpínu daginn á enda, heldur líka hlátur í barka og bros á andliti eyrna á milli. Svo sýrðar og hugvíkkandi eru draum- farirnar. Kreppupíndir landsmenn geta því fagnað þessu allsendis ókeypis viagra og geðlyfi sem leynist á þúfum landsins. Nú eða gert sér úr því gull. Þarna er heldur betur nýtt sóknar- færi, auðlind beint undir nefinu á okkur. Þarf bara að gera þetta heyrinkunnugt öllum örvæntingarfullu körlunum sem eru skelfingu lostnir yfir því að náttúran sé að yfirgefa þá. Hinir holdrislausu munu vafalítið fagna því að þurfa ekki lengur að verða sér úti um rándýrt duft búið til úr nashyrninga- hornum, einhverju líffæri úr dýri í útrýmingarhættu eða hvað annað illfáanlegt sem logið er að fólki að auki kynhvöt þess. Þetta fólk þarf ekki annað en borga okkur Íslendingum svolítinn aur fyrir að fá að fara í berjamó. Þetta væri líka ein tegund af hjálparstarfi eða góðgerð, því hver maður getur skilið hversu afleitlega þeim líður sem tapa sinni bossasýki. Hvað ætli sé gaman að vera til ef allir þessar bossar sem hossast vekja engar kenndir. Þá glata nú dagar lífsins lit. Nú ríður á að koma í hús öllum þessum berjum sem bera í sér dýrmætið og forða þeim frá yfirvofandi næturfrosti og skemmd- um. Held það væri bæði hollt og gott fyrir þessa þjóð að sam- einast í berjamó, með rassinn upp í loftið. Bláber hossa bossum Stigið í vænginn Kristín Heiða khk@mbl.is ’ Hinir holdris- lausu munu vafalítið fagna. um gleymdur og líklega hafa upptökur af honum glatast. Æði mikið af því efni sem Sjónvarpið tók upp á þessum árum fór á myndbönd sem voru notuð aftur og aftur í sparnaðarskyni. Í minni þjóðarinnar lifa þó enn í einskonar myndbrotum og minningum einstaka þættir. Má þar nefna umræðuþætti þar sem Vilmundur Gylfason og fleiri létu vaða á súðum. Einnig frægan þátt með flestum andans mönnum landsins þar sem Halldór Laxness óskaði vinsamlegast eftir því að umræðan yrði færð upp á ofurlítið hærra plan. Jú, og svo muna margir eftir Agli Ólafssyni í hlutverki kynnis í söngvakeppni Sjónvarpsins árið 1981 þar sem hann stóð fyrir framan myndavélarnar í köflóttri skyrtu og sagði hin fleygu orð: „Þið sjáið mig, en ég sé ykkur ekki. – Og slíkur var áhrifamáttur myndmiðils ljósvakans að á árunum milli 1970 og 1980 að æði margir fréttamanna hans þóttu upplagðir kandídatar þegar stjórn- málaflokkarnir fóru að leita eftir mönnum á þing eða borgarstjórn. „Áhrifamáttur Sjónvarpsins á þessum fyrstu árum þess var mikill. Sömuleiðis hafði Kanasjónvarpið, sem náði til allrar byggðarinnar á Faxaflóasvæðinu, mikil áhrif meðal annars sakir þess að það sendi út öll kvöld vikunnar en íslenska sjónvarpið aðeins þrjú til fjögur kvöld, að minnsta kosti fyrstu árin. Og fá þeim tíma man ég líklega best eftir leynilögregluþáttunum um Dýrlingnum, enda náðu þeir vel til ung- lingsins,“ segir Hallgrímur Thorsteinsson útvarpsmaður. „Síðan man ég seinna eftir umræðuþáttum sem á mælikvarða dagsins í dag eru í af- skaplega stífu formi og allan léttleika skortir. Hins vegar er formið mjög líkt því sem gerðist hjá erlendum sjónvarpsstöðvum, til dæmis BBC, en þangað og eins til stöðva á Norðurlöndunum sóttu fyrstu starfsmenn sjónvarpsins lærdóm og fyrirmyndir.“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Áhrifa- máttur Sjónvarps- ins á þessum fyrstu árum þess var mikill. Hallgrímur Thorsteinsson sveitinni Infant Sorrow, hljómsveit aðalsögu- hetjunnar sem Russell Brand leikur. Hefur áhuga á leikbrúðum Í myndinni Forgetting Sarah Marshall semur karakter Segel söngleik um Drakúla sem leikinn er með brúðum. Í atriðinu endurspeglast ekki aðeins áhugi leikarans á tónlist heldur líka á brúðum. Segel er nefnilega búinn í félagi við Nicholas Stoller, leikstjóra tveggja síðastnefndu myndanna, að semja handrit að nýrri mynd um prúðuleikarana. Hann leikur jafnframt stórt hlutverk í myndinni sem verður frumsýnd þann 23. nóvember á þessu ári í Bandaríkj- unum. Samstarfið lofar góðu en aðrir leikarar í myndinni, fyrir utan brúður Jims Henson, sem fólk þekkir svo vel, eru Amy Adams, Mila Kun- is, Selena Gomez, Jack Black, Neil Patrick Harr- is, Zach Galifianakis og Katy Perry. Á næsta ári lítur annað samstarf Stoller og Se- gel dagsins ljós en það er gamanmyndin The Five-Year Engagement. Eins og aðrar myndir sem þeir hafa gert saman er meistari Judd Apa- tow (leikstjóri Knocked Up og The 40 Year Old Virgin) þarna í hlutverki framleiðanda og lofar því þessi mynd mjög góðu. Ljóst er að Jason Se- gel er búinn að stimpla sig inn sem einhver allra næmasti og hæfileikaríkasti gamanleikari sinnar kynslóðar. Vinirnir úr hinni skemmtilegu gamanþáttaröð How I Met Your Mother, Marshall (Segel), Lily (Alyson Hann- igan), Ted (Josh Radnor), Robin (Cobie Smulders) og Barney (Neil Patrick Harris). ’ Ljóst er að Jason Segel er búinn að stimpla sig inn sem einhver allra næm- asti og hæfileikaríkasti gam- anleikari sinnar kynslóðar. Kona sem kölluð er „Svarta ekkj- an“ borðaði 183 kjúklingavængi á 12 mínútum og sló þar með eigið heimsmet frá fyrra ári í átkeppni í Buffalo í New York-ríki í Bandaríkj- unum. Sonya Thomas fékk fyrstu verðlaun á tíundu Landshátíð kjúk- lingavængja. Hún bar þar sigurorð af öðrum reyndum í bransanum, Joey „kjálka“ Chestnut, sem lenti í öðru sæti en hann gúffaði í sig 174 vængjum. Þetta sama fólk borðaði líka hvað mest í pylsuátskeppni á þjóðhátíð- ardegi Bandaríkjamanna á Coney Island í sumar. Sigurvegari kjúklingjavængjaátskeppninnar fær um 170.000 krónur, annað sætið um 87.000 krónur og þriðja sætið 35.000 krónur. Borðaði 183 kjúklingavængi Sumum finnast kjúklingavængir mikið lostæti. Nemendur og starfsfólk Háskólans í Massachusetts fögnuðu nýrri önn með því að búa til heimsins stærsta pönnurétt, eða „stir-fry“. Í réttinn fóru um 360 kílógrömm af kjúklingi, 230 kíló af lauk, 180 af gulrótum og 140 af brokkolí auk fleiri tegunda grænmetis. 23 kíló af olíu þurfti til steikingarinnar og vart þarf að taka fram að pannan sem notuð var til eldamennsk- unnar var sérsmíðuð. Metið hefur verið staðfest af Heimsmetabók Guinness. Risamáltíð í háskóla 230 kíló af lauk fóru í réttinn.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.