Fréttablaðið - 22.10.2011, Blaðsíða 24
22. október 2011 LAUGARDAGUR24
Vopnuð rán fáheyrð hér á landi
Skipulögð vopnuð rán eru ekki algeng á Íslandi. Raunar er talað um að fyrsta vopnaða ránið hafi verið framið hér á landi árið
1984. Þórunn Elísabet Bogadóttir rifjaði upp nokkur eftirminnileg rán sem framin hafa verið undanfarna áratugi.
Hvenær? 17. febrúar 1984 Hversu margir? Einn Hvaða vopn? Haglabyssa
Þegar tveir starfsmenn ÁTVR voru rændir í febrúar 1984 vakti það gríðarlega athygli og talað var um fyrsta vopnaða ránið. Slíkt rán
mun þá ekki hafa verið framið frá því á nítjándu öld. Starfsmennirnir
voru að fara með afrakstur föstudagsins í næturhólf í Landsbankanum
á Laugavegi 77 og höfðu lagt bíl sínum og voru á leið út þegar ræninginn
birtist og skaut á bílinn svo að dekk sprakk. Öðru skoti var þá skotið úr
haglabyssunni og uppgjörinu, 1,8 milljónum króna, var sleppt. Ræning-
inn náði peningunum og flúði á brott á stolnum leigubíl. Fyrr um kvöldið
hafði hann látið leigubílstjóra fara með sig í Nauthólsvík þar sem hann
ógnaði bílstjóranum með byssunni og neyddi hann út úr bílnum. Byss-
unni hafði hann stolið úr versluninni Vesturröst nóttina fyrir ránið.
Ræninginn var þó ekki alveg einn, því hann hafði fengið kunningja sinn
til að bíða sín í Brautarholti eftir ránið og koma sér í burtu. Skömmu eftir
ránið greindi ræninginn svo föður sínum frá málinu og síðar öðrum fjöl-
skyldumeðlimum. Hann hafði ætlað að létta undir með foreldrum sínum
og bauð þeim meginhluta ránsfengsins. Fjölskyldan vildi ekki segja til
hans og faðirinn ætlaði að koma syni sínum til Bandaríkjanna. Lögregl-
an hafði þá fylgst með manninum í nokkurn tíma sökum ábendinga um
að hann hefði ári fyrr spurt fyrrverandi starfsmann ÁTVR mjög ítarlega
um peningaflutninga. Lögreglan handtók feðgana í Leifsstöð 24. febrúar
og svo aðstoðarmanninn. Allir þrír fengu dóma fyrir aðild sína og vitn-
eskju um ránið.
■ NÁÐUST Á LEIÐ ÚR LANDINU
Hvenær? 25. apríl 1990 Hversu margir? Tveir ræningjar/morðingjar
Hvaða vopn? Melspíra
Þegar ránmorð var framið á bensínstöð við Stóragerði hinn 25. apríl 1990 voru landsmenn slegnir óhug. Manni hafði verið mis-
þyrmt hryllilega og peningum stolið, innan við tvö hundruð þúsund-
um. Ekki bætti úr skák að morðinginn eða morðingjarnir fundust
ekki strax og engar vísbendingar voru um hverjir hefðu verið að
verki.
Snemma morguns hafði hinn myrti mætt til vinnu á undan öðrum og
tekið öryggiskerfi úr sambandi, eins og hann gerði yfirleitt. Þetta vissu
ræningjarnir, sem höfðu mætt á undan honum að bensínstöðinni. Þeir
gáfu sig fram við hann og sögðu að bíll þeirra hefði bilað í nágrenn-
inu. Starfsmaðurinn bauð þeim því inn. Það sem svo gerðist er ekki á
hreinu, en ljóst er að ráðist var á hinn myrta með grimmilegum hætti.
Morðingjarnir notuðu melspíru við verknaðinn, en slíkt tæki var notað
til að splæsa saman víra á fiskiskipum. Við yfirheyrslur bar þeim ekki
saman um hvað átti sér stað inni á bensínstöðinni, og þeir sökuðu hvor
annan um alvarlegustu árásirnar.
Eftir að mennirnir tveir höfðu drepið starfsmanninn stálu þeir bíl
hans og komust þannig undan. Bíllinn fannst svo við Vesturgötu sam-
dægurs. Það tók hins vegar lengri tíma að finna morðingjana. Fljótlega
beindist rannsóknin að fólki sem hafði unnið á bensínstöðinni og þekkti
til staðhátta. Einnig beindist rannsóknin að eiturlyfjaneytendum. Þá
féll undir grun maður sem hafði unnið á bensínstöðvum og hafði þekkt
hinn látna, sem hafði raunar reynst honum mjög vel. Maðurinn var nú
sjómaður og hafði neytt æ meira áfengis og fíkniefna. Í ljós kom að
hann bjó ásamt konu sinni og öðru pari í miðbænum. Hinn maðurinn
átti yfir höfði sér dóm fyrir innflutning á LSD. Öll fjögur voru handtek-
in og eftir nokkurra daga neitanir viðurkenndu mennirnir verknaðinn.
Þeir höfðu sagt konum sínum frá málinu og öll höfðu þau notað ráns-
fenginn dagana eftir morðið. Konurnar voru dæmdar fyrir að hylma
yfir og þiggja gjafir sem voru keyptar fyrir ránsfenginn, og mennirnir
hlutu sextán og sautján ára fangelsi.
■ MYRTU MANN FYRIR INNAN VIÐ 200 ÞÚSUND
Hvenær? 18. desember 1995 Hversu margir? Þrír ræningjar
Hvaða vopn? Haglabyssa og hnífar
Um hálfellefu að morgni 18. desember 1995 réðust þrír menn inn í útibú Búnaðarbankans við Vesturgötu 54 og hrópuðu „vopnað
rán“ á viðstadda. Þeir voru allir klæddir í bláa vinnugalla og voru
með lambhúshettur til að hylja andlit sín. Einn þeirra var vopnaður
haglabyssu sem hann ógnaði fólki með á meðan hinir tveir stukku
inn fyrir afgreiðsluborð, brutu upp kassa hjá fjórum gjaldkerum og
hirtu hátt á aðra milljón króna. Þeir höfðu komið á stolnum bíl með
stolnum númeraplötum á, en þann bíl skildu þeir eftir í gangi fyrir
utan bankann og hlupu í burtu frá ránsstaðnum. Þeir voru sagðir
hafa hlaupið niður að höfn, en þar hvarf slóð þeirra. Síðar fannst
annar stolinn bíll með stolnum númeraplötum og var talið að menn-
irnir hefðu flúið lengra frá ránsstaðnum í honum. Þetta var talið
merki um að ránið hefði verið vel skipulagt, og stóð í Tímanum dag-
inn eftir ránið að það hefði verið bíræfið og borið harðari og skipu-
lagðari blæ yfir sér en fyrri tilraunir til bankaráns hér á landi.
Ránið í Búnaðarbankanum við Vesturgötu hefur aldrei verið upp-
lýst. Ári eftir ránið lágu menn, sem höfðu orðið uppvísir að miklum
trygginga svikum, undir grun um að hafa einnig framið ránið, en þeir
voru sýknaðir af ákærum um það.
■ RÁNIÐ Í BÚNAÐARBANKA ENN ÓUPPLÝST
VETTVANGUR RANNSAKAÐUR Lífsýni úr ræningjanum í Happdrætti Háskóla Íslands fundust, en á meðan engar upplýsingar eru
um ræningjann gagnast þau lítið.
Hvenær? 30. janúar 2006 Hversu margir? Einn Hvaða vopn? Skotvopn
Ungur maður réðst með látum inn í höfuðstöðvar Happdrættis Háskóla Íslands í janúarlok 2006. Hann virtist vita nákvæmlega hvað hann var að gera, ógnaði starfsfólki með skotvopni, gekk að peninga-
skúffunni og braut hana upp. Hann náði 95 þúsund krónum úr skúffunni og komst undan á hlaupum.
Starfsmaður elti hann úr Tjarnargötunni, inn Suðurgötu og upp Túngötu. Maðurinn hljóp síðan niður
Grjótagötu, þar sem blár kuldagalli sem hann hafði klæðst fannst. Seinna sama dag var maður um tvítugt
handtekinn vegna málsins, en honum var sleppt eftir yfirheyrslu. Lífsýni náðust úr manninum sem framdi
ránið, en þau gögnuðust lögreglu lítið þar sem ekki voru til upplýsingar um ræningjann. Fréttablaðið veit
ekki til þess að eini maðurinn sem rænt hefur Happdrætti Háskóla Íslands hafi nokkurn tímann fundist.
■ HAPPDRÆTTISRÆNINGINN SEM ALDREI FANNST
Hvenær? 9. janúar 2004 Hversu margir? Tveir Hvaða vopn?
Rörbútar
Tveir menn ruddust með miklum látum og ógnandi hegðun inn í útibú SPRON við Hátún rétt fyrir hádegi
föstudaginn 9. janúar 2004. Mennirnir voru með nælon-
sokka á höfði til að þekkjast ekki og voru einnig með
hanska. Þeir voru með rörbúta sem þeir börðu í innan-
stokksmuni og hótuðu viðskiptavinum og gjaldkerum með.
Gjaldkerum var hótað lífláti létu þeir ekki peninga af
hendi. Mennirnir fengu 610 þúsund krónur upp úr krafsinu
áður en annar hjólaði burt og hinn hljóp. Þeir voru á bak
og burt þegar lögregla kom á vettvang þrátt fyrir að það
hafi verið aðeins nokkrum mínútum eftir að ráðist var inn.
Átta manns höfðu verið handteknir eftir helgina vegna
málsins og höfðu aldrei fleiri verið handteknir vegna banka-
ráns hér á landi. Tveir menn voru handteknir skömmu eftir
ránið og úrskurðaðir í gæsluvarðhald en sex voru handtekn-
ir í gleðskap á sunnudagsmorgun. Gleðskapsfólkinu var þó
sleppt eftir yfirheyrslur. Hinum mönnunum tveimur var
svo sleppt nokkrum dögum síðar. Í nokkurn tíma var eng-
inn grunaður um ránið. Hins vegar höfðu munir úr ráninu
fundist, meðal annars nælonsokkur, húfa og hanskar. Líf-
sýni fundust í mununum og reyndust passa við 42 ára gaml-
an mann. Maðurinn var handtekinn ásamt félaga sínum en
þeim var svo sleppt þar sem ekki þótti nauðsynlegt að óska
gæsluvarðhalds. Aðeins var hægt að sanna aðild þess 42 ára
að málinu, og hann sagði aldrei til félaga síns. Maðurinn var
því einn dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir ránið, en hann
þagði bæði um ránsfenginn og ránsfélagann.
■ DÆMDUR EFTIR DNA Í NÆLONSOKKI
HÓTAÐI GJALDKERA LÍFLÁTI Lögreglan sendi út myndir úr öryggis-
myndavélakerfi SPRON þegar mennirnir fundust ekki. Annar
ræninginn náðist vel á myndum, eins og sést á þessari mynd þar
sem gjaldkeri afhendir peninga.
Hvenær? 27. febrúar 1995 Hversu margir? Þrír
ræningjar Hvaða vopn? Slökkvitæki
Skeljungsránið svokallaða var framið á mánudagsmorgni hinn 27. febrúar 1995.
Tvær ungar konur voru á leið með helgarupp-
gjör af bensínstöðvum Skeljungs í Íslands-
banka í Lækjargötu. Um leið og þær stigu út
úr merktum bíl komu tveir grímuklæddir
menn út úr hvítum Saab-bíl, réðust að þeim og
börðu aðra þeirra í höfuðið með litlu slökkvi-
tæki. Því næst tóku þeir uppgjörstösku sem í
voru rúmar fimm milljónir króna í peningum
og ávísunum, og settust aftur upp í bílinn sem
þriðji grímuklæddi maðurinn ók. Bíllinn, sem
var stolinn og með stolnum númeraplötum,
fannst nokkru síðar í innkeyrslu við Ásvalla-
götu. Þar lá einnig tóm peningataska. Síðar
um daginn fundust fleiri uppgjörspokar ásamt
fatnaði í fjöru í Hvalfirði. Reynt hafði verið að
kveikja í þessu. Ljóst var frá upphafi að ránið
hafði verið þaulskipulagt.
Lögreglu gekk lengi illa að komast til botns í
málinu. Maður var handtekinn nokkrum dögum
eftir ránið en reyndist ekki hafa komið nálægt
því. Það var ekki fyrr en í ágúst 2002 sem rann-
sóknin tók kipp. Þá hafði fyrrum kona eins ræn-
ingjans samband við lögreglu og sagði frá því að
maðurinn hefði játað aðild að málinu fyrir henni.
Eftir að hún hafði séð þátt um Skeljungsránið í
þáttaröðinni Sönn íslensk sakamál sagðist hún
ekki hafa getað haft vitneskjuna á samviskunni
lengur. Maðurinn var yfirheyrður og játaði sinn
hlut í málinu árið 2003. Hann fór yfir atburða-
rásina og gaf úr sér lífsýni sem kom í ljós að
passaði við sýni sem fundust á mununum í fjör-
unni í Hvalfirði. Seinna dró hann játninguna til
baka, en hvorki héraðsdómur né Hæstiréttur tók
það trúanlegt.
Annar grunaður maður var yfirheyrður en
ekki tókst að sanna neitt á hann. Þriðji maður-
inn sem grunaður var hafði látist áður en til
yfirheyrslna hjá lögreglu kom. Aðeins lítill hluti
ránsfengsins hefur verið endurheimtur.
■ FYRRVERANDI UPPLÝSTI