Fréttablaðið - 22.10.2011, Blaðsíða 72
22. október 2011 LAUGARDAGUR40
Krossgáta
Lárétt
1: Ósannindamaður hreiðrar þar um sig (10)
4: Fær ekki að fara lengra þótt kaðall liggi frá
áfangastað (9)
9: Set mark á aftursætið en segi ekki orð á leiðinni
(7)
11: Höngsum út af íhaldskindum (7)
12: Orkuveituhlaup hljómar vel (5)
13: Harða beltið (5)
14: Bara ég með minn bor og sígrænn runni (7)
15: Nálgast að kona dragi andann (9)
16: Sprett úr spori heitir lagið á íslensku, ekki það
sem margir halda á sumrin (10)
20: Minnir á ungling sem hlustar á Stones (7)
23: Efnast og leiðin er greið (6)
24: Færir sig um tíu, enda allt fært (6)
25: Laglegi vertinn á Staupasteini er í þessu boði (7)
27: Hún les konublað á frönsku (4)
28: Kelið klaufdýr er smitandi en hættulaust (9)
30: Eldhúsafbrigði algengasta frumefnis jarðar? (8)
32: Tökum hest, natríum og nitur og hún birtist upp-
rúlluð þótt bönnuð sé (5)
33: Stórfjölskyldan sameinast um það sem einkennir
hana (8)
35: 500. pískurinn smellur og hann tekur að renna (8)
37: Ríki þar sem dvergvaxið fólk ræður öllu, sem þó er
varla neitt (7)
38: Óbreyttur þótt rámur borði (6)
39: Smá nostur og rugluð vísbending verður lagleg
lausn (6)
40: Rassinn ræður (7)
Lóðrétt
2: Þetta gengi sem ræður veldur með-
vitundarleysi (7)
3: Landlaus úti í heimi (9)
4: Að leika Töfraflautu án flautu er gott trix
(11)
5: Bliki gerist öfugsnúinn (9)
6: Nokkuð stór kall, enda milli (9)
7: Nokkru meira en nætursvefn stuðlar að
bata (7)
8: Set kút á íþróttalið og næ í land (6)
10: Það er reikult, rótlaust og rekst um víðan
sjá (6)
15: Það má kalla bjánagang að nota þetta orð
um þrályndi (8)
17: Brjálað blóm drepur heimspeking (6)
18: Eignast átján kletta í Atlantshafi (8)
19: Sigta ruglið frá, það er bruðl (7)
21: Á henni berja Sverrisdætur lóminn (9)
22: Naut friðhelgi í æsku (9)
24: Kræf nótt og blettótt (8)
25: Með munnvatn í fötum og kjaftasögur á
hraðbergi (8)
26: Ærsladraugur hefur mjög hátt (6)
29: Man ekkert þessa unaðsstund (8)
31: Ottó gleymir ekki tyrkneska hægindinu (7)
34: Hugrekki mömmu (5)
35: Kratatákn fær falleinkunn og breytist í
konu (4)
36: Rek nefið inn á skemmtistað (4)
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7.
8. 9. 10. 11.
12.
13. 14.
15. 16.
17. 18. 19. 20. 21. 22.
23. 24.
25. 26.
27.
28. 29.
30. 31. 32.
33. 34.
35. 36.
37.
38.
39. 40.
N A U T N A -
S T U L D U R
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman finnurðu íslenskt
örnefni. Sendið lausnarorðið fyrir 26. október næstkomandi á krossgata@
frettabladid.is merkt „22. október“.
Lausnarorð síðustu viku var
nautnastuldur.
Vikulega er dregið er úr
innsendum lausnarorð-
um og fær vinningshafi
gjafakörfu frá Te og kaffi
að verðmæti 5.000 kr..
Vinningshafi síðustu viku
var Kjartan Jónsson.
K A R A T E L S G V
Y J E Y R N A F í K J U R Í
N J Ó S N A R I Æ O Ð T
V M Ý Ð Ð Ó S A L Ú R A
Í A B B A L A B B A L Á T A V
S B Ú R T G U E
A F L R A U N I R S P A R A K S T U R
Í Á V K N A Ð
L Ú Ð U R I N N I A R G A R A U
Y A Ú Ö T P L A T R
K Ý M I S L E G U Í S R A E L I
L H E I R N I Æ Á
A L L S N A K I N N T U N N U S T A F
K U Í J Ó S M N I R
I N N T A K A T K Á M A
P N F A T L A Ð A R J Ó N U M
P F A U S T A R Ó Ó H
U A N Æ S P R A Ð I B A S S A
R R U Ð A U A L
B A R N E I G N R F R Í K E N N D
Á þessum degi fyrir réttum 49 árum, hinn 22. október árið 1962, flutti John F. Kennedy Bandaríkjaforseti samlöndum sínum þær
fréttir að njósnaflugvélar hersins hefðu uppgötvað sovéskar eld-
flaugastöðvar á eyjunni Kúbu,
sem liggur skammt út frá strönd
Bandaríkjanna. Þar höfðu Sovét-
menn, með leyfi Fídels Kastró,
hafið byggingu skotpalla sem
gátu sent meðaldrægar flaugar
með kjarnaoddum til fjölmargra
borga í austurhluta Bandaríkj-
anna, þar á meðal höfuðborgar-
innar Washington. Þetta var ein-
stök ögrun Sovétmanna, undir
stjórn Nikíta Krústsjoff, á við-
kvæmum tímapunkti, enda stóð
kalda stríðið þá sem allra hæst.
Kennedy tilkynnti við sama
tækifæri að hafnbann tæki gildi á
Kúbu næsta dag til að koma í veg
fyrir að sovésk skip kæmust með
enn fleiri vopn til eyjunnar.
Þessi tilkynning markaði
upphaf Kúbudeilunnar, sex
magnþrunginna daga þar sem
heimurinn var á barmi kjarn-
orkustyrjaldar milli stórveldanna.
Kennedy hafði að vísu fengið veður af áformum Sovétmanna viku
áður og hafði fundað stíft með helstu ráðgjöfum sínum, þar sem meðal
annars komu fram hugmyndir um að gera loftárásir á eldflaugastöðv-
arnar á Kúbu. Hafnbann og pólitískur þrýstingur varð hins vegar ofan
á þótt herinn byggi sig undir allsherjarstríð.
Eftir nokkurra daga óvissuástand barst tilboð frá Moskvu, hinn 25.
október, þar sem Sovétmenn buðust til að taka niður eldflaugapall-
ana, gegn því að ekki yrði ráðist á Kúbu. Síðar bættist við krafa um að
Bandaríkin tækju niður skotpalla sína í Tyrklandi.
Á meðan Kennedy velti tilboðinu fyrir sér var bandarísk njósnavél
skotin niður yfir Kúbu og flugmaðurinn fórst. Það varð næstum til að
hleypa öllu í uppnám, en Kennedy ákvað sem betur fer að sitja á sér.
Hann tók síðar tilboði Krústsjoffs, enda voru eldflaugarnar í Tyrk-
landi orðnar úreltar. Í framhaldinu tilkynnti Krústsjoff svo, hinn 28.
október, að eldflaugapallarnir á Kúbu yrðu teknir niður.
Heimsbyggðin andaði því léttar þar sem komist hafði verið hjá
kjarnorkustyrjöld.
Kennedy kom einstaklega vel úr út þessu máli og hefur allt upp frá
því verið hampað fyrir þrautseigju og yfirvegun sem hann sýndi þar.
Kennedy lifði aðeins í eitt ár eftir þetta, áður en hann var ráðinn af
dögum. en staða Krústsjoffs á heimavelli veiktist verulega og hann
hrökklaðist frá völdum árið 1964. - þj
Heimildir: history.com og Vísindavefurinn.
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1962
Kennedy tilkynnir
hafnbann á Kúbu
Forsetinn grípur til aðgerða gegn uppsetningu sovéskra eldflaugapalla.
STÓÐ Á SÍNU John F. Kennedy forseti
sýndi flestar sínar bestu hliðar meðan á
Kúbudeilunni stóð haustið 1962.