Fréttablaðið - 22.10.2011, Blaðsíða 57
LAUGARDAGUR 22. október 2011 11
ÚTBOÐ ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Útboð nr. 15114 – Brunatryggingar fasteigna
í eigu ríkisins
Ríkiskaup, fyrir hönd Fjármálaráðuneytisins óska eftir
tilboðum í lögboðnar brunatryggingar fyrir fasteignir
í eigu ríkisins.
Bjóðendur skulu bjóða í skyldubundið iðgjald brunatrygginga
fyrir fasteignir í eigu ríkisins sem eru skráðar í Fasteignaskrá
Þjóðskrár Íslands. Útboðið tekur til þeirra fasteigna sem ríkið á
hverju sinni og því getur umfang samnings breyst í samræmi við
breytingar sem kunna að verða á fjölda og verðmæti fasteigna
ríkisins á samningstímanum.
Nánari upplýsingar má fi nna í útboðsgögnum, sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa, (www.rikiskaup.is), eigi síðar en
miðvikudaginn 26. október n.k. Skila skal tilboðum til Ríkiskaupa,
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð þann 6.
desember 2011, kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Útboð
Hótelbygging á Keflavíkurflugvelli til leigu
Byggingin þarfnast endurbóta til þess að mæta
kröfum mannvirkjalaga
Fyrir hönd Isavia ohf auglýsir VJI Ráðgjöf (Verkfræðistofa Jóhanns
Indriðasonar ehf.) hér með Háaleitishlað 8 í Reykjanesbæ til leigu.
Húsið er í ágætu ástandi en þarfnast umtalsverðra endurbóta til þess að
það uppfylli íslenskar reglur. Í húsinu var starfrækt 32 herbergja hótel á
vegum Varnarliðsins. Fyrir liggja nýsamþykktir aðal- og brunavarna-
uppdrættir sem leigjandi getur notað.
Leigutaki skal kosta nauðsynlegar breytingar á húsinu, starfrækja eða
láta starfrækja hótel á leigutímanum (8 ár) og skila svo húsinu til Isavia
að leigutíma loknum. Áætlaður kostnaður við endurbætur er um 50-60
milljónir króna og skal leigutaki fjármagna þær og annast framkvæmdir
á eigin kostnað og ábyrgð.
Skilafrestur tilboða er til kl. 14.00, 25. nóvember 2011.
Áhugasamir skulu senda tölvupóst á arnthor@vji.is eða hringja í síma
5605400 og tilgreina nafn, kennitölu og heimilisfang og fá þá send
frekari útboðsgögn.
VJI Ráðgjöf
Fjármagnseigandi
Óskar eftir að kaupa hlut í lífvænlegu fyrirtæki.
Margt kemur til greina.
Möguleiki er á að leggja fram vinnuframlag.
Margra ára reynsla í fyrirtækjarekstri.
10-20 miljónir króna eru til ráðstöfunar strax.
Upplýsingar um tegund rekstrar og aðrar
upplýsingar sem farið verður með sem algert
trúnaðarmál, sendast til Fréttablaðsins á
netfangið: box@frett.is fyrir 1. nóvember nk.
Merkt: „Heiðarlegur rekstur“
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Íþróttahús Seljaskóla, útdraganlegir áhorfendabekkir.
Útboðsgögn á geisladisk verða seld á kr. 3.000, frá
kl. 9:00 þriðjudaginn 25. október 2011 í þjónustu-
veri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1. hæð.
Opnun tilboða fimmtudaginn 10. nóvember 2011,
kl. 10:00, í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í
þjónustuver.
12622
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod.
VELFERÐARRÁÐUNEYTIÐ
Styrkir til sveitarfélaga vegna
aukinnar þjónustu við langveik
börn og börn með ADHD
Auglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum um
styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og
nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni
og athyglisbrest. Styrkir verða veittir á grundvelli sam-
starfssamnings félags- og tryggingamálaráðuneytis,
mennta- og menningarmálaráðuneytis, heilbrigðis-
ráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem
var undirritaður 4. desember 2009. Sveitarfélög geta
sótt um styrki vegna verkefna á eigin vegum eða sem
unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félaga-
samtök.
Tekið verður við einni sameiginlegri umsókn frá
hverju sveitarfélagi.
Í ljósi þess hve margar umsóknir hafa borist við fyrri
úthlutanir þarf sveitarfélagið að forgangsraða þeim
verkefnum sem sótt er um.
Styrkhæf verkefni eru:
I. Verkefni sem fela í sér félagslega stuðningsþjón-
ustu, svo sem liðveislu og skammtímavistun til
samræmis við það sem fötluð börn eiga kosta á
samkvæmt lögum um málefni fatlaðra.
II. Verkefni sem hafa það markmið að gera langveik-
um börnum á leik- og grunnskólaaldri kleift að fá
sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, þroskaþjálfun og/eða
talþjálfun í skólum sínum þegar fagleg rök mæla
með því.
III. Verkefni sem fela í sér faglega leiðsögn sérfræð-
inga fyrir langveik börn á leik- og grunnskólaaldri
sem ekki geta sótt skóla heilsu sinnar vegna.
IV. Verkefni sem fela í sér fræðslu og/eða stuðning
fyrir kennara og annað starfsfólk skóla vegna
nemenda með ADHD.
V. Verkefni sem miða að bættri þjónustu leik- og
grunnskóla við börn með ADHD.
VI. Önnur verkefni sem lögð er áhersla á í skýrslum
tveggja starfshópa frá febrúar og apríl 2008 um
þjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni
og athyglisbrest.
Styrkveiting er ákveðin á grundvelli umsóknar og
verður lögð megináhersla á að viðkomandi verkefni
feli í sér, með beinum hætti, þjónustu við börn og
fjölskyldur þeirra.
Gert er ráð fyrir að þeim verkefnum sem hljóta styrk
að þessu sinni ljúki fyrir 31. desember 2012.
Frestur sveitarfélaga til að sækja um styrki rennur út
21. nóvember 2011.
Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á heimasíðu
velferðarráðuneytisins:
http://www.velferðarráðuneytið.is
Nánari upplýsingar veitir Björn Sigurbjörnsson, sér-
fræðingur í velferðarráðuneytinu. Sími: 545 8100,
netfang: bjorn.sigurbjornsson@vel.is
Verkefnisstjórn.
Til leigu að Kjalarvogi 10 (Gelgjutangi) eftirfarandi
húsnæði ásamt stórri athafnalóð:
Bifreiðaverkstæði 540m2
Skrifstofuhúsnæði 770m2
Húsnæðið er laust frá og með 1. janúar 2012.
Upplýsingar eru veittar í síma 660 3364 eða með
fyrirspurn á póstfangið festing@festing.is.
Skrifstofu og verkstæðishúsnæði
til leigu
Fasteignafélag / Real Estate Company
Kjalarvogi 7-15,
104 Reykjavík
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Ráðningarþjónusta
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Leitar þú að starfsmanni?
HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi
þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga.
Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is
Vinnusparnaður
Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum umsagna.
Markviss leit
Sérskrifaður hugbúnaður gerir leit afar markvissa og
tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn.
Þriggja mánaða ábyrgð
Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er
ráðning í hans stað án endurgjalds.
Ekkert staðfestingargjald
Við leggjum áherslu á að rækta árangursríkt og ánægjulegt
langtímasamband við viðskiptavini okkar og því greiðir þú
ekkert ef ekki verður af ráðningu.
Fjöldi hæfra umsækjenda
Fjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni
okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn
fyrir starfið.
Fjölbreyttar þjónustuleiðir
Í boði eru fjölbreyttar þjónustuleiðir sniðnar að þörfum
og væntingum viðskiptavina okkar. Þú finnur lausnina
hjá okkur.
Reynsla og þekking
Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna-
mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og
hagnýtri menntun.
Sanngjarnt verð
Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á
þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð!
HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita
afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks.
Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.: