Fréttablaðið - 22.10.2011, Blaðsíða 102
22. október 2011 LAUGARDAGUR70
www.lifandimarkadur.is
Borgartúni 24 | Hæðasmára 6
Hjá okkur færðu
ljúffengar heilsu-
pítur með humri,
kjúklingi eða
grænmetisbuffi .
Frír
Kristall með pítunni
Tilboðið gildir í október
PERSÓNAN
„Auðvitað mun þetta hafa einhver
áhrif á rekstur Keiluhallarinn-
ar í Öskjuhlíð, þannig er það bara
með allt nýtt á Íslandi. En sam-
kvæmt okkar útreikningum munu
þau áhrif standa yfir í sex til átta
mánuði og svo jafnast út,“ segir
Rúnar Fjeldsted. Hann opnar nýja
og glæsilega keiluhöll í Egilshöll
í febrúar en rekur einnig Keilu-
höllina í Öskjuhlíð.
Að öllum líkindum verður um að
ræða stærstu keiluhöll landsins,
með sportbar, kaffihúsi, heilsu-
bar og matsölustað sem tekur 170
manns í sæti. Alls verða 22 keilu-
brautir til taks og að sjálfsögðu
verður boðið upp á diskókeilu eins
og vinsælt hefur verið í Öskjuhlíð-
inni. Og þetta er bara fyrsti áfang-
inn. Ári seinna verður tekinn í
notkun fullkominn golfhermir og
fundarsalir, svo fátt eitt sé nefnt.
Bandaríska fyrirtækið Dynamica
Design var fengið til að hanna
umhverfið. „Fyrirtækið hefur sér-
hæft sig í að hanna svona afþrey-
ingarsvæði í stórum verslunar-
miðstöðvum og íþróttahöllum,“
útskýrir Rúnar, en undirbúningur
fyrir keiluhöllina hófst af fullum
krafti í maí á þessu ári þegar skrif-
að var undir leigusamning við fast-
eignafélagið Regin.
Að sögn Rúnars fara 240 þús-
und manns í keilu í Öskjuhlíðinni á
ári hverju en hann gerir sér vonir
um að enn fleiri eigi eftir að sækja
Keiluhöllina í Egilshöll. „Gegnum-
streymið um húsið er þrjú þús-
und manns á dag. Og svo er hún í
stærsta neysluhverfinu; Grafar-
vogurinn, Grafarholtið, Árbær
og Mosfellsbær. Og svo er þarna
barnafólkið.“ Og Rúnar er handviss
um að nýja keiluhöllin eigi eftir að
verða bylting fyrir keiluíþróttina
hér á landi. „Keilan er íþrótt sem
hefur setið á hakanum hér á landi
en þessi keiluhöll mun vonandi opna
nýjar víddir Það eru 250 manns
sem stunda hana af kappi en það
hefur ekki verið pláss fyrir fleiri
iðkendur.“ freyrgigja@frettabladid.is
RÚNAR FJELDSTED: 240 ÞÚSUND MANNS Í KEILU Á ÁRI
Stærsta keiluhöll landsins
opnuð í Grafarvogi í febrúar
„Það rignir inn símtölum frá hinum og þessum aðil-
um sem vilja vita meira og taka þátt,“ segir Magnús
Berg Magnússon.
Um 4.500 manns hafa skráð sig í lífsstílsátakið
Meistaramánuðinn sem hefst í dag og Magnús Berg
skipuleggur ásamt Þorsteini Kára Jónssyni og Jökli
Sólberg Auðunssyni. Þegar Fréttablaðið ræddi við
hann fyrr í vikunni höfðu um tvö þúsund manns
skráð sig en síðan þá hefur fjöldinn tvöfaldast og
rúmlega það. „Ég sagði einhvern tímann við strák-
ana að það væri rosa flott ef það væru 300 manns
sem tækju þátt, þannig að þetta er mjög skemmti-
legt.“
Hann segir marga útlendinga hafa haft samband
í von um að taka þátt en allt um átakið má finna
á síðunum Facebook.com/meistaramanudur og á
global championmonth.com. „Það er rosalega mikið
af bloggurum sem hafa sprottið upp á netinu þar
sem fólk er að útlista markmiðin sín.“ Magnús ætlar
sjálfur að finna sér framtíðareiginkonu í Meistara-
mánuðinum og Þorsteinn Kári, sem er tónlistar-
maður, ætlar að semja heila plötu og þess á milli lesa
Biblíuna og Jökull ætlar að byrja að æfa fimleika.
Sumir ætla að hefja Meistaramánuðinn í dag með
því að taka þátt í haustmaraþoninu á meðan aðrir
taka þátt í svokallaðri Grace-æfingu Crossfit-félaga
í Skeifunni til styrktar Bleiku slaufunni. Hinir láta
sér vafalítið nægja að breyta mataræðinu til hins
betra, hætta að drekka áfengi, vakna fyrr á morgn-
ana og stunda eilítið meiri líkamsrækt en áður í
þessa þrjátíu daga. - fb
4.500 manns í Meistaramánuði
BÆTIST Í HÓPINN Jökull Sólberg Auðunsson, til vinstri, og
Magnús Berg Magnússon skipuleggja Meistaramánuðinn
ásamt Þorsteini Kára Jónssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Við horfum auðvitað gaumgæfi-
lega á þessar tölur og tökum allt
svona föstum tökum,“ segir Hilm-
ar Björnsson, dagskrárstjóri Skjás
eins.
Áhorf á þátt Þorbjargar Mar-
inósdóttur, Tobba, hefur dalað
mikið eftir að hafa fengið fljúg-
andi start. Aðra vikuna í röð kemst
þátturinn ekki inn á topp tíu lista
Skjás eins eftir að fyrsti þátturinn
hafði mælst með rúmlega sjö pró-
senta áhorf í aldurshópnum 12-80
ára samkvæmt vikulegri áhorfs-
mælingu Capacent Gallup.
Hilmar vill ekki taka svo djúpt
í árinni að kalla þetta vonbrigði.
Aftur á móti væri þetta eitthvað
sem þarfnaðist frekari skoðunar.
„Þessi tími hefur verið mjög sterk-
ur hjá Skjá einum og þetta byrj-
aði mjög vel hjá Tobbu en hefur
aðeins dalað,“ útskýrir Hilmar
sem kveðst á hinn bóginn vera
ánægður með aðra íslenska þætti,
Málið með Sölva hafi fengið fínar
viðtökur, spurningaþátturinn Ha?
sé með flott áhorf hjá áskrifend-
um og sjónvarpsþáttaröðin Hæ
Gosi mælist vel í áhorfskönnun-
um. „Þátturinn er klárlega stjarna
Skjás eins í innlendri dagskrá,
ekki spurning,“ segir Hilmar.
Og dagskrárstjórinn segir það
vel koma til greina að breyta
aðeins áherslum í þætti Tobbu, það
verði þó ekki stórvægilegar breyt-
ingar. „Tobba þarf bara að vera
hún sjálf og finna áhugaverð mál
til að taka á. Þættirnir hafa rokkað
í áhorfi vegna þess að þetta hafa
stundum verið mál sem fólk hefur
mismikinn áhuga á.“ - fgg
Tobba týnd á Skjá einum
ERFIÐUR TÍMI
Hilmar Björnsson segir að Tobba
eigi í harðri samkeppni við Grey‘s
Anatomy sem sýndur er á sama
tíma á Stöð 2. Hann telur það
koma til greina að breyta
aðeins áherslum þáttarins,
þær breytingar verði þó ekki
stórvægilegar.
BYLTING FYRIR KEILUNA Rúnar Fjeldsted ásamt syni sínum Agnari í nýrri keiluhöll sem verður opnuð í Egilshöll í febrúar. Þarna
verður sportbar, kaffihús, heilsubar og matsölustatður sem tekur 170 manns í sæti. Hátt í 240 þúsund manns fara í keilu á hverju ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Anita Briem undirbýr sig nú af kappi fyrir
hlutverk sitt í kvikmyndinni Kill The Poet sem
sjónvarpsmógúllinn fyrrverandi Jón Óttar
Ragnarsson leikstýrir. Anita leikur listakonuna
Louisu Matthíasdóttur og hefur leikkonan
áður lýst því yfir að það hafi verið mikill
heiður fyrir sig að hreppa hlutverkið. Hún
ákvað því að vera viðstödd opnun sýningar
á verkum Louisu í Tibor de Nagy galleríinu
sem fram fór á fimmtudagskvöld. Þar að
auki gistir hún í húsi listakonunnar við 16.
götu í New York og hyggst eyða tíma með
Temmu, dóttur Louisu, og fjölskyldu hennar.
Meðal annarra leikara í Kill The Poet má
nefna Nick Stahl, sem leikur Stein Steinarr,
Gísla Örn Garðarsson og Ed Asner. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Guðjón Þorsteinn Pálmarsson
leikari
Aldur: 37 ára.
Starf: Leikari.
Foreldrar:
Hildur Björns-
dóttir kennari og
Pálmar Guðjóns-
son, einkabíl-
stjóri hjá Hildi
Björnsdóttur.
Fjölskylda: Ég er í konuleit. Vil
bara vera elskaður, það er allt og
sumt.
Búseta: Bý við þröngan og illan
kost í 200 Kópavogi.
Stjörnumerki: Meyja.
Guðjón Þorsteinn, eða Denni, var leið-
sögumaður tónlistarmannsins Johns
Grant á Íslandi í síðustu viku.