Fréttablaðið - 22.10.2011, Blaðsíða 38
KYNNING − AUGLÝSINGJólahlaðborð LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 20112
Má bjóða þér veislu?
Búðakór 1, 203 Kópavogi, Sími 571 5777, lystauki@lystauki.is, lystauki.is
Á sælkerahlaðborðinu má finna einiberjagrafinn sebravöðva
með týtuberjum og rósmarínolíu, innbakað grágæsapaté með
skógarberjasósu, hráskafið sauðahangikjöt með melónusalsa
í glasi og margt fleira sem gælir við bragðlaukana.
Jóla-, smárétta- eða
sælkerahlaðborð?
Jólahlaðborð
Árshátíðir
Þorramatur
Brúðkaup
Smáréttir
Fermingar
Veislusalir
Sendu okkur póst á lystauki@lystauki.is
eða hafðu samband í síma 571 5777.
Við gerum okkar besta til að uppfylla óskir þínar.
T
íu
p
u
n
kt
ar
Dansaði nú allur selskapurinn í Þingeyrarstofu á hverju kvöldi
fram á miðjar nætur, frá þriðja í jólum til nýárs inclusive, með
gleði og gjálífi miklu. Þar til var og boðið þeim helstu verðslegu
mönnum í héraðinu, jafnvel kvenfólki.
… Þessi leikur skal vera framinn með glensi og gamni af kall-
mönnum og kvenfólki til samans, með mörgum snúningum allt um
kring, með stappi aftur á bak og áfram, með hoppi upp og niður,
með hlaupum til og frá … Þegar suma svimar svo þeir tumba
um koll, þá verða ýmsir undir … Brennivín er þá við höndina að
hressa hinn gamla Adam, svo hann þreytist hvorki né uppgefist,
fyrr en mælir syndanna er upp fylltur.
Fásögn af jólagleði á Þingeyrum um miðja 18. öld, eftir sr. Þor-
stein Pétursson á Staðarbakka í Miðfirði.
Heimild/Saga jólanna eftir Árna Björnsson þjóðháttafræðing
Jólagleði til forna
Jólasvall hefur verið iðkað á öllum öldum. MYND/SAGA JÓLANNA
Skíðaskálinn er paradís jóla-barnsins, þar sem tindrandi jólasnjór skreytir náttúr-
una undir stjörnuprýddum himni.
Inni fyrir snarkar í arni undir ómi
jólalaga og fótataks jólasveins sem
nælir sér í hangikjöt á ómótstæði-
legu hlaðborði við kátínu allra sem
varðveita jólabarnið í sjálfum sér,“
segja þeir Jón Tryggvi Jónsson og
Svavar Helgason, veitingamenn
í Skíðaskálanum í Hveradölum
og veitingahúsinu Lækjarbrekku
í Bankastræti, en þeir félagar
keyptu Lækjarbrekku í sumar og
hafa síðan fært þá þjóðargersemi í
hæstu hæðir.
„Lækjarbrekka stendur á þrítugu
og er með rótgrónustu veitingahús-
um landsins sem velflestir Íslend-
ingar tengja góðar minningar við.
Yfir pottunum hefur áherslan frá
upphafi verið þjóðlegir réttir og ís-
lenskt hráefni, og í öll þessi ár ekki
tekið í mál að taka út suma upp-
runalegu réttina, eins og Fjall og
flóa, sem er matreiðsla á lambi og
humri saman,“ upplýsa þeir Jón
Tryggvi og Svavar, sem á Lækjar-
brekku hafa nostrað við eitt mesta
dálæti landa sinna og gert heim-
sókn þangað að enn meiri upplif-
un en nokkru sinni.
Jólahlaðborð Skíðaskálans verð-
ur opnað 26. nóvember og Lækjar-
brekku fimmtudaginn 17. nóvem-
ber. Opið verður alla daga vikunn-
ar á Lækjarbrekku en um helgar í
Skíðaskálanum.
„Sunnudagar í Skíðaskálan-
um eru fjölskyldudagar,“ segja
Jón Tryggvi og Svavar. „Þá ger-
ast jólaævintýri sem börnunum
gleymist seint eða aldrei, enda
koma sömu fjölskyldurnar ár eftir
ár. Vart er hægt að komast í meira
jólaskap en í Skíðaskálanum því
húsið sjálft er eins og heimili
jólasveinsins, tær jóladraumur í
yndis legri náttúru í aðeins tutt-
ugu mínútna akstursfjarlægð frá
Reykjavík.“
Þess má geta að í Skíðaskálanum
og í Kornhlöðu og Litlu-Brekku á
Lækjarbrekku er til staðar afbragðs
ráðstefnuaðstaða fyrir allt frá 20
upp í 300 manns. Þá er Skíðaskál-
inn einkar vinsæll til brúðkaups-
veislna og annarra fagurra tilefna,
enda umlukinn heillandi umhverfi
og spennandi gönguleiðum.
Til að fá vatn i munninn og láta
sig hlakka til má lesa um freistandi
krásir jólahlaðborðanna á www.la-
ekjarbrekka.is og skidaskalinn.is.
Dansað við sveinka í jólaævintýri
Jólin verða hvergi rómantískari en í Skíðaskálanum í Hveradölum og litlu, jólalegu Lækjarbrekku sem á aðventunni breytast í dásamleg jólalönd
með kertaljósum, greniangan og norrænu hlaðborði dýrindis jólakrása. Það ráða ríkjum sömu húsbændur sem taka gestum fagnandi með
jólasveinum, matarveislum, jólaglöggi og töfrandi anda jólanna.
Það er stutt fyrir jólasveininn að skreppa í Skíðaskálann ofan úr fjöllunum til að dansa við
börnin í kringum jólatréð.
Svavar Helgason og Jón Tryggvi Jónsson eru nýir húsbændur á Lækjarbrekku sem fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir. MYND/GVA
STRENGURINN VÍKKAÐUR
Krásum hlaðin veisluborð jólahlað-
borðanna freista. Úrval rétta er mikið
og flestir reyna að smakka á öllu enda
eru jólahlaðborð síst ætluð þeim sem eru
í aðhaldi. Góð hugmynd er að mæta í fremur
þægilegum fötum á jólahlaðborð, í það minnsta
buxum eða pilsum með sveigjanlegum streng eða belti
sem hægt er að víkka um eitt eða tvö göt.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000. Umsjónarmenn auglýsinga:
Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411. Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.