Fréttablaðið - 22.10.2011, Blaðsíða 39
KYNNING − AUGLÝSING Jólahlaðborð22. OKTÓBER 2011 LAUGARDAGUR 3
Já, það hefur verið nóg að gera hjá okkur að undirbúa jólahá-tíðina og komu gesta okkar.
Það yljar okkur alltaf um hjarta-
rætur að sjá sömu fjölskyldurn-
ar, vinahópana og vinnustað-
ina koma hingað ár eftir ár,“ segir
Þórey Ólafsdóttir, sölu- og mark-
aðsstjóri Veisluturnsins / Nítjánda
veitingastaðar. Hún segir veitinga-
staðinn sérlega vel búinn til að
taka á móti hópum af öllum stærð-
um enda vítt til veggja á báðum
hæðum, gott aðgengi að húsinu og
næg bílastæði. „Nú, síðan er það
okkar frábæra starfsfólk, kokk-
arnir í eldhúsinu, sem galdra fram
þessi óviðjafnanlegu hlaðborð
hvert á eftir öðru og þjónarnir í
salnum taka á móti hverjum gesti
eins og gömlum vini,“ segir hún
og bætir við glettin: „Sem hann
kannski er þar sem fólk kemur jú
alltaf til okkar aftur og aftur.“
Jólaljósin skína skært
Það má til sanns vegar færa að
það finnast fáir staðir á Íslandi
með jafn jólalegt útsýni og Veislu-
turninn / Nítjánda veitingastaður
sem staðsettur er á tveimur efstu
hæðunum í Turninum við Smára-
torg í Kópavogi. „Við njótum þess
að vera með útsýni yfir allt höfuð-
borgarsvæðið. Þegar komið er
fram í nóvember og desember
og myrkrið er skollið á, þá fyrst
njóta ljósin sín við hús og í görð-
um. Það er sannkölluð ljósasýn-
ing og þegar jólaskreytingarnar
eru komnar upp hjá fólki eru fáir
staðir sem standa okkur snúning
hvað það varðar að njóta þeirra,“
segir Þórey dreymin.
New York-stemning
Jólin í Turninum hefjast miðviku-
daginn 16. nóvember og þá verð-
ur boðið upp á gómsætt jólahlað-
borð öll miðvikudags- til sunnu-
dagskvöld fram að jólum. Meðal
þess sem boðið verður upp á á
jólahlaðborðinu má nefna blóð-
bergsgrafinn lambavöðva með
sætri valhnetudressingu, reykta
hunangsskinku með trönuberja-
sultu, smjörsteikta kalkúnabringu
með brasseruðum sætum kart-
öflum, léttreykt grísalæri á beini
með sætum sinnepsgljáa og heil-
steikt nauta Rib Eye með krydd-
aðri rauðvínssósu sem ef laust
einhverjir kannast við, algjörlega
ómótstæðilegt. Boðið verður upp
á lifandi tónlist í anda amerísku
snillinganna Frank Sinatra, Bing
Crosby, Dolly Parton og fleiri en
það eru Ólöf Jara & félagar sem
munu syngja ljúfa jólatóna fyrir
gesti.
Jól í hádeginu
„Jóla-brunch-inn okkar er alltaf
jafn vinsæll og þá er það stórfjöl-
skyldan sem kemur til að eiga
saman hátíðlega samverustund
og gæða sér á gómsætum veiting-
um,“ segir Þórey og bendir á að
þá sé mikið mikið líf í húsinu. „Þá
koma margir krakkar enda vita
foreldrar af því að hingað kíkja
jólasveinar í heimsókn á hverju ári
sem kæta börn á öllum aldri. Dis-
ney-leikherbergið er líka á sínum
stað en það hefur svo sannarlega
slegið í gegn hjá börnunum og þar
erum við líka með tvær yndislegar
stúlkur sem hafa auga með þeim
meðan þau leika sér.“
Þórey segir um að gera að huga
f ljótlega að borðapöntunum.
„Það er strax orðið vel mjög bókað
og ég get því bara hvatt fólk til að
setja sig í samband við okkur sem
fyrst til að tryggja sér borð í tíma
því það er svo magnað hvað þessi
yndis legu jól eru alltaf komin áður
en maður veit af,“ segir Þórey og
hlær við.
Að lokum má nefna að einnig
verður boðið upp á hefðbundið
hádegisverðarhlaðborð með jóla-
legu ívafi allan desember en allar
frekari upplýsingar má finna á
www.veisluturninn.is eða í síma
575 7500.
Hóparnir eiga heima hjá okkur
Veitingastaðurinn Nítjánda í Veisluturninum á Smáratorgi hefur fyrir allnokkru hafið jólaundirbúninginn. Margir hafa nú þegar pantað borð á
sívinsælu jólahlaðborði staðarins en í ár verður boðið upp á New York-jólastemningu. Þórey Ólafsdóttir, sölu- og markaðsstjóri, veit allt um það.
Boðið verður upp á lifandi tónlist í anda amerísku snillinganna Frank Sinatra, Bing Crosby, Dolly Parton og fleiri en það eru Ólöf Jara & félagar sem munu syngja ljúfa jólatóna fyrir gesti.
MATSEÐILL JÓLAHLAÐBORÐS NÍTJÁNDA
Forréttir
Blóðbergsgrafinn lambavöðvi með sætri valhnetudressingu
Heimalöguð síldarsalöt, 4 tegundir
Reykt hunangsskinka með trönuberjasultu
Skelfisk-terrine með sinnepskremi
Birkireykt bleikja með piparrótarkremi
Hreindýra-terrine með blönduðum berjum og pekanhnetum
Tvíreykt hrefnufillet með rauðlaukssultu
Aðalréttir
Smjörsteikt kalkúnabringa með brasseruðum sætum
kartöflum, kalkúnafyllingu og kastaníuhnetum
Heilsteikt nauta Rib Eye með kryddaðri rauðvíns-
sósu
Léttreykt grísalæri á beini með sætum
sinnepsgljáa og rauðrófusalati með pekan-
hnetum og fetaosti
Svínapurusteik með kanilkrydduðu brún-
káli og rauðvínssósu
Hangikjöt með heimalöguðu rauðkáli,
laufabrauði og uppstúf
Eftirréttir
Volg amerísk súkkulaðikaka með þeytt-
um rjóma og gljáðum berjum
Grenikryddað crème brûlée
Karamellu eplakaka með tonkabaun-
um og kanil
Mandarínu- og appelsínufrauð með
hnetubakstri
Ris à l´amande með kirsuberjum