Fréttablaðið - 22.10.2011, Blaðsíða 78
22. október 2011 LAUGARDAGUR46
Snemma morguns dreifa um
450 blaðberar pósti og
Fréttablaðinu heim til
lesenda.
Til að tryggja öryggi blaðbera
og dreifingu þarf lýsing að
vera til staðar og aðkoma
að póstlúgu í lagi.
Höfum útiljósin kveikt.
Með fyrirfram þökk,
Sími: 585 8300 www.postdreifing.is
Allt í myrkri?
Lékstu þér með flugvélar þegar
þú varst lítil? Nei, reyndar ekki.
Ég lék mér oft með Barbie og svo
var ég ALLTAF að lesa.
Hvernig kviknaði áhugi þinn á
flugi? Held að ég hafi haft áhuga
á flugi og ferðalögum frá því að
ég man eftir mér. Hélt samt ekki
að ég yrði flugmaður af því að
þegar ég var barn og ungling-
ur hélt ég að bara strákar gætu
orðið flugmenn. Það er náttúru-
lega alger misskilningur eins og
ég uppgötvaði þegar ég klár-
aði menntaskóla og þurfti
að ákveða hvað ég ætti að
verða þegar ég yrði stór.
Þá var ég farin að vinna
úti á flugvelli við að inn-
rita farþega og svoleið-
is og farin að fá mikinn
áhuga á flugi. Pabbi minn
var líka flug maður svo ég
var búin að fylgjast með
honum fara í vinnuna í
gegnum árin.
Hvað heillaði þig við
f lugið? Mér fannst
spennandi að vinna
með fullt af tökkum,
að geta ferðast á mikl-
um hraða og komast
til framandi landa.
Hefurðu flogið bæði
innanlands og milli
landa? Já, ég var
í nokkur ár nánast
eingöngu í innan-
landsflugi en síðustu
ár hef ég bara verið í
millilandaflugi. Þetta
er mjög ólíkt en hvoru-
tveggja mjög skemmtilegt.
Hefurðu lent í þrumum og
eldingum? Já, það er algengt,
sérstaklega í heitari lönd-
um. Hins vegar reynum
við alltaf að fljúga framhjá
eldingum þegar við getum
en það er ekki alltaf hægt. En
flugvélarnar eru með eldingar-
vara sem gerir það að verkum
að ef elding kemur í flugvélina
þá fer hún út úr henni aftur og
skemmir því sjaldnast vélarnar
og tækin um borð.
Hversu hátt komast flugvélar?
Venjulegar farþegaflugvélar
fljúga venjulega í 10 til 13 kíló-
metra hæð en svo eru til herþotur
og njósnaflugvélar sem fara mun
hærra.
Hefurðu flogið nálægt tunglinu?
Ekki mjög. Stundum virðist það
samt vera nálægt manni þegar
það er fullt og lágt á himn-
inum en það er víst bara
sjónhverfing.
Hefurðu einhvern tíma
rekist á engla? Ef maður
trúir því að fólk sem er gott
og hjálpsamt sé englar
þá rekst ég alltaf öðru
hverju á engil og það
er mjög góð tilfinning.
En fljúgandi furðu-
hluti? Nei, en hins
vegar er dans
norður ljósanna
yfir Grænlandi
á köldum vetrar-
nóttum oft hinn
furðulegasti hlut-
ur á að líta.
Áttu sjálf börn?
Já, ég á Birnu
Katrínu sem er tólf
ára, Húna Pál sem
er átta ára og Ólafíu
Bjarneyju sem er eins
árs kríli. Pabbi þeirra,
maðurinn minn, er líka
flugmaður.
Heldurðu að krakkana þína
langi að verða flugmenn? Elsta
stelpan mín hefur mikinn áhuga
á að verða flugmaður en ég held
að það sé aðallega til að komast
í búðir erlendis, hún hefur svo
mikinn áhuga á fötum og tísku.
Strákurinn minn vill helst verða
fótbolta- eða mótorhjólamaður
og yngsta stelpan mín vill bara
hlusta á tónlist og dansa þannig
að kannski verður hún tónlistar-
maður eða dansari. - gun
Á laugardagskvöldi er
gaman að koma fjöl-
skyldunni á óvart með
því að skera niður alls
kyns ávexti, útbúa
girnilegar ávaxta-
blöndur og setja þær
í litlar skálar til að
borða með sjónvarp-
inu eða á spilakvöldi
í bústaðnum. Sumir
ávextir eiga einstak-
lega vel saman.
Hér er uppskrift að
nokkrum blöndum
sem bragðast eins og
sælgæti.
Fyrir fjóra
1 epli
1 lítið búnt vínber
2 mandarínur
1 kíví
1 banani
1 bolli bláber
1/2 appelsína
1 pera
2 sneiðar ananas
1/4 vatnsmelóna
þykk sneið af mangó
Tínið til fjórar skálar.
Kjarnhreinsið eplið og
skerið í báta. Blandið
þeim og vínberjunum
saman í fyrstu skálina.
Takið hýðið utan af
mandarínunum og
losið í sundur í báta.
Afhýðið kíví og skerið
í 3-4 sentimetra langa
bita. Blandið kíví og
mandarínum saman
í næstu skál. Í þriðju
skálina er bláberjum,
banana og appelsínu
blandað saman en
bananinn og appels-
ínan eru skorin í
meðalstóra bita. Að
lokum eru ananas-
og mangósneiðarnar
sem og ¼ hluti vatns-
melónu skornar í
meðalstóra bita og
sett í fjórðu skálina.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
krakkar@frettabladid.is
46
STUNDUM VIRÐIST MÉR
TUNGLIÐ VERA NÁLÆGT
Þegar Linda Gunnarsdóttir var lítil hélt hún að það væru bara strákar sem gætu
orðið flugmenn. Það var misskilningur. Nú er hún flugstjóri í millilandaflugi og
fæst líka við að þjálfa aðra flugmenn. Svo er hún þriggja barna móðir.
Af hverju lyftir flamingófugl-
inn upp öðrum fæti?
Hann dytti á hausinn ef hann
lyfti báðum.
Af hverju stal Hrói höttur
aðeins af þeim ríku?
Þeir fátæku áttu ekkert sem
hægt var að stela.
Hver er fljótasta leiðin til að
tvöfalda peninga?
Brjóta þá saman.
Af hverju fljúga fuglarnir
suður yfir veturinn?
Það er allt of langt að labba.
Hversu marga bandhnykla
þarf til að ná til tunglsins?
Einn, ef hann er bara nógu
langur.
Af hverju hefur ísbjörninn
hvítan feld?
Af því hann liti kjánalega út í
gulri úlpu.
Bland í skálar
WWW.SKESSAN.IS Á vefsíðunni eru alls konar upplýsingar og
myndir af Skessunni í hellinum í Reykjanesbæ. Þar er meðal annars hægt
að prenta út myndir af skessunni til að lita og skrifa henni bréf.
Venjulegar
farþegaf lug-
vélar f ljúga venjulega
í 10 til 13 kílómetra
hæð en svo eru til
herþotur og njósna-
f lugvélar sem fara
mun hærra.