Fréttablaðið - 22.10.2011, Blaðsíða 82
22. október 2011 LAUGARDAGUR50
Jóns úr Vör
Menningar- og þróunarráð Kópavogsbæjar efnir í ellefta sinn til árlegrar
ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör.
Veitt verða vegleg verðlaun og fær verðlaunaskáldið auk þess til varðveislu,
í eitt ár, göngustaf áletraðan með nafni sínu. Handhafi hans nú er Steinunn
Helgadóttir, myndlistarmaður og ljóðskáld. Dómnefnd velur úr þeim ljóðum
sem berast.
Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina en skilafrestur rennur út
3. desember. Ljóðum skal skilað með dulnefni og nafn, heimilisfang og sími
skáldsins látið fylgja með í lokuðu umslagi auðkennt með sama dulnefni.
Ljóðin mega ekki hafa birst áður.
Utanáskrift er:
Ljóðstafur Jóns úr Vör
Menningar- og þróunardeild Kópavogs
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Greint verður frá niðurstöðum samkeppninnar og verðlaun veitt
á afmælisdegi Jóns úr Vör 21. janúar 2012. Jón úr Vör bjó nánast allan
sinn starfsaldur í Kópavogi en tilgangur keppninnar er að efla og vekja
áhuga á íslenskri ljóðlist.
Auglýst eftir
umsóknum um
Eyrarrósina
Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands
standa saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu sem frá árinu
2005, hefur verið veitt einu afburða menningarverkefni
á starfssvæði Byggðastofnunar á landsbyggðinni.
Umsækj endur geta verið m.a. stofnun, safn, tímabundið
verk efni eða menningarhátíð.
UMSÓKNUM SKAL FYLGJA:
Lýsing á verkefninu
Lögð skal fram greinargóð lýsing á verkefninu, umfangi
þess, sögu og markmiðum.
Tíma- og verkáætlun
Gera skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu verkefnisins
og áformum á árinu 2012. Skilyrði er að verkefninu hafi nú
þegar verið hleypt af stokkunum.
Upplýsingar um aðstandendur
Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem
að verkefninu standa og grein gerð fyrir þeirra þætti í því.
Fjárhagsáætlun
Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári.
Uppgjör ársins 2010 fylgi umsókn.
Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar verður hún
ekki tekin til greina.
• Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi
umsækjenda um Eyrarrósina 2012
• Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.500.000 kr.
og verðlaunagrip til eignar
• Hin tvö hljóta 250.000 kr. og auk þess fá öll
þrjú tilnefndu verkefnin flugmiða með Flugfélagi
Íslands
• Viðurkenningin verður veitt í ársbyrjun 2012
á Bessastöðum. Verndari Eyrarrósarinnar er
Dorrit Moussaieff forsetafrú
• Umsóknarfrestur er til 17. nóvember 2011
og verður öllum umsóknum svarað
Umsóknir skal senda til Listahátíðar
í Reykjavík, pósthólf 88, 121 Reykjavík,
merktar „Eyrarrósin“
www.listahatid.is/eyrarrosin
50
menning@frettabladid.is
Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarna-
son, leikstjóri er Ágústa Skúladóttir,
leikmyndahöfundur er Axel Hallkell
Jóhannesson, búningahönnuður
er Filippía Elísdóttir, ljósahönnuður
er Páll Ragnarsson og brúðuhönn-
uður er Bernd Ogrodnik. Pamína
er túlkuð af Þóru Einarsdóttur,
Tamínó af Finni Bjarnasyni og
Garðari Thór Cortes, Papagenó af
Ágústi Ólafssyni, Sarastró af Jóhanni
Smára Sævarssyni og Bjarna Thor
Kristinssyni, Næturdrottningin af
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Öldu
Ingibergsdóttur og Mónóstatos af
Snorra Wium.
HELSTU AÐSTANDENDUR
Töfraflautan verður frum-
sýnd af Íslensku óperunni
í Eldborg í Hörpu í kvöld.
Margir færustu söngvarar
þjóðarinnar ljá ævintýrinu
rödd sína.
Íslenska óperan frumsýnir í kvöld
sína fyrstu uppfærslu í Eldborgar-
sal tónlistarhússins Hörpu. Um er
að ræða eina stærstu óperuperlu
heims, Töfraflautuna eftir W. A.
Mozart. Leikstjórn verksins er í
höndum Ágústu Skúladóttur og
Daníel Bjarnason er hljómsveitar-
stjóri uppsetningarinnar, sem
er sú fimmta hér á landi á þessu
meistara verki Mozarts.
„Töfraflautan er aðgengileg
ópera og höfðar til breiðs hóps.
Jafnframt er
hún mannmörg
og fá því marg-
ir af okkar
fremstu söngv-
urum á heims-
mælikvarða
að leiða saman
hesta sí na ,“
segir Ágústa
Skúladóttir,
sem bætir við að
þetta sé kynngimagnað ævintýri.
„Sýningin er mikið sjónarspil
og við leggjum mikið upp úr hinu
sjónræna með íburðarmiklum
brúðum, búningum og leikmynd.
Við gerum allt til heiðurs töfra-
tónum Mozarts, sem hefur verið
vægast sagt auðvelt að sækja inn-
blástur til.“
Verkið, sem hefur hrifið áhorf-
endur í þau 220 ár sem liðin eru
frá fyrstu frumsýningu í alþýðu-
leikhúsi í Vínarborg, fjallar um
prins frá fjarlægum löndum sem
kemur inn í ævintýraheim Nætur-
drottningarinnar. Hún segir honum
frá ráni á dóttur sinni. Hann verður
samstundis ástfanginn af prinsess-
unni og leggur upp í leit að henni
ásamt fuglafangaranum, með töfra-
flautu og klukkuspil í fararnesti.
Ágústa segir það mikinn heiður
að sýna í Hörpu og að söngvarar
sem og hljómsveit taki hljómi hins
stóra sals Eldborgar fagnandi.
Alls verða átta sýningar á Töfra-
flautunni og hafa nú þegar verið
bókaðir hátt í tíu þúsund miðar á
óperuna, en leita þarf aftur á annan
áratug til að finna jafn mikla miða-
sölu á óperusýningu á Íslandi.
hallfridur@frettabladid.is
Kynngimagnað ævintýri
ÆVINTÝRAHEIMUR NÆTURDROTTNINGAR Sýningin er mikið sjónarspil og mikið lagt í umgjörð hennar með íburðarmiklum
brúðum og búningum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÁGÚSTA
SKÚLADÓTTIR
LÍFSJÁTNING ENDURÚTGEFIN Bókin Lífsjátning – Endurminningar Guðmundu Elíasdóttur, söngkonu frá Bolungar-
vík, sem Ingólfur Margeirsson skráði, hefur verið endurútgefin. Bókin kom út 1981 og hlaut mikið lof og var meðal annars
tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Bókin hefur verið ófáanleg um nokkurt skeið en kemur nú út á vegum nýs
forlags, Nýhafnar.