Fréttablaðið - 22.10.2011, Síða 57

Fréttablaðið - 22.10.2011, Síða 57
LAUGARDAGUR 22. október 2011 11 ÚTBOÐ ÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Útboð nr. 15114 – Brunatryggingar fasteigna í eigu ríkisins Ríkiskaup, fyrir hönd Fjármálaráðuneytisins óska eftir tilboðum í lögboðnar brunatryggingar fyrir fasteignir í eigu ríkisins. Bjóðendur skulu bjóða í skyldubundið iðgjald brunatrygginga fyrir fasteignir í eigu ríkisins sem eru skráðar í Fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands. Útboðið tekur til þeirra fasteigna sem ríkið á hverju sinni og því getur umfang samnings breyst í samræmi við breytingar sem kunna að verða á fjölda og verðmæti fasteigna ríkisins á samningstímanum. Nánari upplýsingar má fi nna í útboðsgögnum, sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, (www.rikiskaup.is), eigi síðar en miðvikudaginn 26. október n.k. Skila skal tilboðum til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð þann 6. desember 2011, kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboð Hótelbygging á Keflavíkurflugvelli til leigu Byggingin þarfnast endurbóta til þess að mæta kröfum mannvirkjalaga Fyrir hönd Isavia ohf auglýsir VJI Ráðgjöf (Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar ehf.) hér með Háaleitishlað 8 í Reykjanesbæ til leigu. Húsið er í ágætu ástandi en þarfnast umtalsverðra endurbóta til þess að það uppfylli íslenskar reglur. Í húsinu var starfrækt 32 herbergja hótel á vegum Varnarliðsins. Fyrir liggja nýsamþykktir aðal- og brunavarna- uppdrættir sem leigjandi getur notað. Leigutaki skal kosta nauðsynlegar breytingar á húsinu, starfrækja eða láta starfrækja hótel á leigutímanum (8 ár) og skila svo húsinu til Isavia að leigutíma loknum. Áætlaður kostnaður við endurbætur er um 50-60 milljónir króna og skal leigutaki fjármagna þær og annast framkvæmdir á eigin kostnað og ábyrgð. Skilafrestur tilboða er til kl. 14.00, 25. nóvember 2011. Áhugasamir skulu senda tölvupóst á arnthor@vji.is eða hringja í síma 5605400 og tilgreina nafn, kennitölu og heimilisfang og fá þá send frekari útboðsgögn. VJI Ráðgjöf Fjármagnseigandi Óskar eftir að kaupa hlut í lífvænlegu fyrirtæki. Margt kemur til greina. Möguleiki er á að leggja fram vinnuframlag. Margra ára reynsla í fyrirtækjarekstri. 10-20 miljónir króna eru til ráðstöfunar strax. Upplýsingar um tegund rekstrar og aðrar upplýsingar sem farið verður með sem algert trúnaðarmál, sendast til Fréttablaðsins á netfangið: box@frett.is fyrir 1. nóvember nk. Merkt: „Heiðarlegur rekstur“ F.h. Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar: Íþróttahús Seljaskóla, útdraganlegir áhorfendabekkir. Útboðsgögn á geisladisk verða seld á kr. 3.000, frá kl. 9:00 þriðjudaginn 25. október 2011 í þjónustu- veri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1. hæð. Opnun tilboða fimmtudaginn 10. nóvember 2011, kl. 10:00, í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver. 12622 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod. VELFERÐARRÁÐUNEYTIÐ Styrkir til sveitarfélaga vegna aukinnar þjónustu við langveik börn og börn með ADHD Auglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Styrkir verða veittir á grundvelli sam- starfssamnings félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, heilbrigðis- ráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem var undirritaður 4. desember 2009. Sveitarfélög geta sótt um styrki vegna verkefna á eigin vegum eða sem unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félaga- samtök. Tekið verður við einni sameiginlegri umsókn frá hverju sveitarfélagi. Í ljósi þess hve margar umsóknir hafa borist við fyrri úthlutanir þarf sveitarfélagið að forgangsraða þeim verkefnum sem sótt er um. Styrkhæf verkefni eru: I. Verkefni sem fela í sér félagslega stuðningsþjón- ustu, svo sem liðveislu og skammtímavistun til samræmis við það sem fötluð börn eiga kosta á samkvæmt lögum um málefni fatlaðra. II. Verkefni sem hafa það markmið að gera langveik- um börnum á leik- og grunnskólaaldri kleift að fá sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, þroskaþjálfun og/eða talþjálfun í skólum sínum þegar fagleg rök mæla með því. III. Verkefni sem fela í sér faglega leiðsögn sérfræð- inga fyrir langveik börn á leik- og grunnskólaaldri sem ekki geta sótt skóla heilsu sinnar vegna. IV. Verkefni sem fela í sér fræðslu og/eða stuðning fyrir kennara og annað starfsfólk skóla vegna nemenda með ADHD. V. Verkefni sem miða að bættri þjónustu leik- og grunnskóla við börn með ADHD. VI. Önnur verkefni sem lögð er áhersla á í skýrslum tveggja starfshópa frá febrúar og apríl 2008 um þjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Styrkveiting er ákveðin á grundvelli umsóknar og verður lögð megináhersla á að viðkomandi verkefni feli í sér, með beinum hætti, þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Gert er ráð fyrir að þeim verkefnum sem hljóta styrk að þessu sinni ljúki fyrir 31. desember 2012. Frestur sveitarfélaga til að sækja um styrki rennur út 21. nóvember 2011. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á heimasíðu velferðarráðuneytisins: http://www.velferðarráðuneytið.is Nánari upplýsingar veitir Björn Sigurbjörnsson, sér- fræðingur í velferðarráðuneytinu. Sími: 545 8100, netfang: bjorn.sigurbjornsson@vel.is Verkefnisstjórn. Til leigu að Kjalarvogi 10 (Gelgjutangi) eftirfarandi húsnæði ásamt stórri athafnalóð: Bifreiðaverkstæði 540m2 Skrifstofuhúsnæði 770m2 Húsnæðið er laust frá og með 1. janúar 2012. Upplýsingar eru veittar í síma 660 3364 eða með fyrirspurn á póstfangið festing@festing.is. Skrifstofu og verkstæðishúsnæði til leigu Fasteignafélag / Real Estate Company Kjalarvogi 7-15, 104 Reykjavík HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Ráðningarþjónusta RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Leitar þú að starfsmanni? HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga. Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is Vinnusparnaður Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar, tökum forviðtöl og öflum umsagna. Markviss leit Sérskrifaður hugbúnaður gerir leit afar markvissa og tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn. Þriggja mánaða ábyrgð Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er ráðning í hans stað án endurgjalds. Ekkert staðfestingargjald Við leggjum áherslu á að rækta árangursríkt og ánægjulegt langtímasamband við viðskiptavini okkar og því greiðir þú ekkert ef ekki verður af ráðningu. Fjöldi hæfra umsækjenda Fjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn fyrir starfið. Fjölbreyttar þjónustuleiðir Í boði eru fjölbreyttar þjónustuleiðir sniðnar að þörfum og væntingum viðskiptavina okkar. Þú finnur lausnina hjá okkur. Reynsla og þekking Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna- mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og hagnýtri menntun. Sanngjarnt verð Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð! HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks. Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.