Fréttablaðið - 05.11.2011, Síða 4
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR4
GENGIÐ 04.11.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,1559
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,13 114,67
182,91 183,76
157,93 158,81
21,217 21,341
20,4 20,52
17,381 17,483
1,462 1,4706
180,08 181,81
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Reynir Þór Eurovision-fræðingur var
rangfeðraður í grein um nýjan Euro-
vision-þátt. Reynir Þór er Sigurðsson.
LEIÐRÉTT
VIÐ ERUM 50 ÁRA
FAGNAÐU MEÐ OKKUR
3.–5. NÓVEMBER FRÁ
KLUKKAN 8:50–21:50
Gleraugnasalan | Laugarvegi 65 | 551 8780 | gleraugnasalan.is
AFSLÁTTUR AF ÖLLU
TÆKNI Breyting úr Breiðbandi í
Ljósnet hjá Símanum getur hlaup-
ið á tugum þúsunda fyrir hvert
heimili. Síminn hefur unnið að
þessum framkvæmdum undan-
farið ár og er áætlað að þeim
ljúki árið 2012 til 2013. Kostnaður
fyrir heimili fer eftir því hvort
er um að ræða fjölbýli eða einbýli
og hvort þurfi að tengja og leggja
nýja kapla innanhúss. Þetta
kemur fram á vef Neytendasam-
takanna.
Síminn mun senda bréf til allra
heimila um það bil fjórum vikum
áður en umtenging fer fram og
þjónustufulltrúar munu hringja
á heimilin og kynna betur þá
möguleika sem koma í staðinn.
Lagalega séð stendur ekkert
í vegi fyrir Símanum að taka
Breiðbandið af markaði. - sv
Breiðbandið brátt af markaði:
Getur reynst
kostnaðarsamt
SÍMINN Ekkert stendur í vegi fyrir
Símanum að taka Breiðbandið brátt af
markaði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÍBÍA, AP Nýr forsætisráðherra
Líbíu segir að það gæti tekið
marga mánuði að afvopna fyrr-
verandi uppreisnarmenn. Hann
segir að fólk verði ekki afvopnað
með valdi.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hefur lýst yfir áhyggjum
sínum af vopnum meðal
óbreyttra borgara. Ráðið óttast
að þau gætu fallið í hendur Al-
Kaída og annarra hryðjuverka-
hópa.
Fyrst um sinn sögðu leiðtogar
þjóðarráðsins að vopnum yrði
safnað skömmu eftir að stjórn
Gaddafís félli. Forsætisráðherr-
ann Abdurrahim al-Keib segir
nú að fólk verði ekki afvopnað
nema hægt verði að bjóða því
eitthvað í staðinn, svo sem
vinnu. - þeb
Uppreisnarmenn í Líbíu:
Tekur mánuði
að afvopna fólk
NÝJA-SJÁLAND, AP Þriggja ára
gömul stúlka á Nýja-Sjálandi
var föst heima í tvo daga eftir að
móðir hennar lést áður en lög-
regla kom henni til bjargar.
Litla stúlkan lifði á osti,
afgangi af lasagna og mjólk sem
hún fann í ísskápnum. Hún er
sögð hafa huggað sjálfa sig með
bangsa.
Móðir hennar var 28 ára
gömul. Þegar hennar nánustu
höfðu ekki heyrt frá henni í tvo
daga urðu þeir áhyggjufullir.
Lögreglumenn fengu stúlkuna
síðan til að ýta stofuborði upp
að útidyrahurð til að hleypa
þeim inn. Stúlkan sagði að móðir
hennar vildi ekki vakna. Þeir
komu stúlkunni á sjúkrahús þar
sem hún dvaldi í nokkra daga.
- þeb
Þriggja ára á Nýja-Sjálandi:
Ein heima með
látinni móður
VIÐSKIPTI Allar 68 umsóknir banka
um að fá að eiga fyrirtæki í óskyld-
um rekstri lengur en í 12 mánuði
voru samþykktar. Þetta staðfestir
Fjármálaeftirlitið (FME). Afar mis-
munandi er þó hversu langir veittir
frestir eru.
Alls eru 137 félög í óskyldri
starfsemi í eigu íslenskra banka í
dag. Þetta kemur fram í svari FME
við fyrirspurn Félags atvinnurek-
enda (FA). Samkvæmt lögum mega
bankar einungis eiga fyrirtæki í
óskyldri starfsemi í 12 mánuði án
þess að leita eftir undanþágu vegna
þess eignarhalds hjá FME. Dæmi
eru um að bankar eða dóttur félög
þeirra hafi átt fyrirtæki sem keppa
á samkeppnismarkaði í meira en 30
mánuði. Þau tímamörk voru sett
inn í lög um fjármálafyrirtæki í
fyrrasumar. Frá og með 25. júní
2011 hafa bankar þurft að sækja
um undanþágu til að eiga fyrirtæki
í lengri tíma en ár. FME hefur haft
virkt eftirlit með því að þessu sé
hlýtt og Gunnar Andersen, forstjóri
eftirlitsins, sagði í Fréttablaðinu á
miðvikudag að það væri tilbúið að
beita viðurlögum gegn bönkum sem
draga að selja fyrirtæki í óskyldum
rekstri.
Almar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri FA, segir mjög gott
að þessar upplýsingar séu komnar
fram. Það séu þó ákveðin vonbrigði
að fyrirspurnum félagsins sé ekki
svarað að fullu, en þau vildu meðal
annars fá að vita hvaða tímafrestir
hafi verið veittir og hvort þeir hafi
verið framlengdir. „Okkur finnst
mjög mikilvægt að þessi tölfræði sé
öll birt. Við teljum að það sé mikill
Allar 68 umsóknirnar
um frest samþykktar
FME hefur samþykkt allar umsóknir banka um að fá að eiga fyrirtæki sem
þeir hafa tekið yfir í lengri tíma en eitt ár. Alls eiga bankarnir 137 fyrirtæki í
óskyldum rekstri. Eftirlitið neitar að veita upplýsingar um lengd tímafresta.
VÍÐTÆKIR Alls eru 137 fyrirtæki í eigu bankanna. Langflest þeirra eru í faðmi stóru
viðskiptabankanna þriggja, sem eru nánast einráðir á íslenskum bankamarkaði.
Ókeypis í bíó í Egilshöll
Landsmönnum gefst kostur á að fara
í bíó í dag án endurgjalds í tilefni af
eins árs afmæli Sambíóanna í Egils-
höll. Ókeypis verður inn á milli tvö og
fjögur síðdegis, eða á meðan húsrúm
leyfir. Gestum verður boðið upp á
veitingar og krakkar geta vænst þess
að fá óvæntan glaðning.
REYKJAVÍK
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
17°
11°
11°
15°
18°
10°
10°
23°
14°
20°
10°
21°
9°
16°
15°
9°
Á MORGUN
10-18 m/s.
MÁNUDAGUR
Vaxandi SA-átt
síðdegis.
3
5
5
4
4
-1
4
6
6
6
8
8
9
8
9
3
15
10
13
8
10
10
4
4 2
5
5
0
0
4
2
6
SKÚRIR EÐA
SLYDDUÉL Nokkuð
stíf suðvestanátt á
landinu á morgun
og skúrir eða
slydduél vestan til.
Það ganga síðan
skil yfi r landið á
morgun með til-
heyrandi úrkomu.
Kólnar í veðri
síðdegis í dag en
hlýnar á ný um
tíma á morgun.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
FRAKKLAND Leiðtogafundi G20-ríkjanna í
Cannes lauk í gær án niðurstöðu um hvernig
Brasilía, Kína og fleiri lönd kæmu að viðbótar-
fjármögnun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem
yrði nauðsynlegt til þess að sjóðurinn gæti látið
meira til sín taka á evrusvæðinu.
Samkomulag náðist hins vegar um að AGS
fengi stærra hlutverk við að hjálpa evru-
svæðinu út úr vandræðum. Nánari útfærsla
bíður hins vegar fram í febrúar.
Þá lagði Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, til að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði
falið að fylgjast grannt með aðhaldsaðgerðum
sínum og framkvæmd þeirra. Hinir leiðtogarn-
ir féllust fúsir á þá lausn, sem léttir nokkuð af
þeim mestu áhyggjunum vegna fjármála Ítalíu.
Fallið var, að minnsta kosti í bili, frá áform-
um um að sérstakur skattur yrði lagður á fjár-
magnsflutninga. Hins vegar voru leiðtogarnir
á einu máli um að stærstu bankar heims verði
að safna sér stærri varasjóðum, svo minni
hætta verði á hruni stórbanka eins og Lehman-
bræðra árið 2008, sem hratt af stað fjármála-
hruninu mikla.
Þá voru leiðtogarnir einnig á einu máli um að
setja strangari reglur um starfsemi vogunar-
sjóða og áhættufjárfestingar. Töluverður tími
getur þó liðið þangað til þær reglur koma
til framkvæmda, þannig að þær munu varla
draga neitt úr vandræðum evruríkja á borð
við Grikkland og Ítalíu. Athygli fundarmanna
beindist mjög að ólgunni á evrusvæðinu þessa
vikuna, einkum í Grikklandi þar sem stjórn
Georgs Papandreú riðar til falls með afdrifa-
ríkum afleiðingum fyrir evrusvæðið. - gb
Leiðtogafundur G20-ríkjanna skilaði takmörkuðum árangri vegna óvissu um framtíð evruríkjanna:
AGS fengið stærra hlutverk á evrusvæðinu
LEIÐTOGAR Í ÞUNGUM SAMRÆÐUM Nicolas Sarkozy
Frakklandsforseti, Angela Merkel Þýskalandskanslari,
Barack Obama Bandaríkjaforseti og David Cameron,
forsætisráðherra Bretlands. NORDICPHOTOS/AFP
Í rannsókn Samkeppniseftirlitsins á stöðu 120 stórra fyrirtækja á völdum
samkeppnismörkuðum, sem kynnt var í sumar, var komist að þeirri niður-
stöðu að 29% fyrirtækjanna væru í það slæmri fjárhagslegri stöðu að þau
réðu ekki örlögum sínum. Þau eru því óbeint í höndum lánardrottna sinna,
bankanna. Fréttablaðið hefur á undanförnum vikum fjallað ítarlega um að
stærstu viðskiptabankarnir þrír; Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki,
hafi fengið stóran hluta af mikilvægustu samkeppnismörkuðum landsins í
fangið eftir bankahrun.
Skuggastjórnun líka mjög víðtæk
skortur á nánari svörum varðandi
tímafrestina. Það kemur fram að
68 umsóknir um aukinn frest hafa
borist eftirlitinu. Við vitum hins
vegar ekki hversu langur frestur
var gefinn.“
Í svarbréfinu neitar FME að
„veita upplýsingar um hve langir
frestir hafa verið veittir né hvaða
fyrirtæki hafa fengið samþykki
eftirlitsins um aukinn frest þar
sem slíkar upplýsingar eru til þess
fallnar að skaða þann markað sem
fyrirtækin starfa á“.
Eftirlitið rökstyður þessa afstöðu
sína með því að aukin hætta sé á að
hugsanlegir fjárfestar í fyrirtækj-
unum myndu einfaldlega bíða þar
til sá frestur sem FME veitti rynni
út og freista þess að kaupa fyrir-
tækið „er það er neytt í sölu“.
thordur@frettabladid.is