Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 8
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR8
Uppbyggilegt vinnuumhverfi
- sameiginlegt hagsmunamál -
Morgunverðarfundur Bandalags háskólamanna í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana
á degi gegn einelti þriðjudaginn 8. nóvember í Rúgbrauðsgerðinni Borgartúni 6, 4. hæð.
Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl.8:15 en dagskrá hefst kl.8:30 og stendur til kl.10:00
1. Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM. Ávarp.
2. Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur hjá Líf og sál.
Hvað er einelti? Hvernig birtist það? Hvaða afleiðingar hefur það?
3. Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur BMH og KÍ.
Einelti í lagalegu samhengi.
4. Steinar Harðarson, umdæmisstjóri höfuðborgarsvæðisins Vinnueftirlitinu.
Verklag og eftirfylgni Vinnueftirlitsins varðandi eineltismál.
5. Ágústa Hlín Gústafsdóttir, starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins.
Niðurstöður kannana fjármálaráðuneytisins á tíðni eineltis hjá ríkisstofnunum.
Skráning á: www.bhm.is
TAKTU VEL Á
MÓTI OKKUR
Neyðarkall
til þín
SVEITARFÉLÖG „Nú getum við andað
léttar,“ segir Gunnólfur Lárusson,
sveitarstjóri í Langanesbyggð, um
tvo risaskorsteina sem verið er að
koma fyrir á fiskimjölsverksmiðju
Ísfélagsins á Þórshöfn.
Gunnleifur segir mikla bót í
nýju reykháfunum sem eru 25
og 35 metrar. Áður hafi reykinn
frá mjölbræðslunni lagt beint
yfir bæinn. „Nú er verið að setja
alvöru skorsteina svo verksmiðjan
hætti að mega og reykurinn fari
ekki yfir þorpið,“ segir sveitar-
stjórinn.
Nóga atvinnu er að hafa á Þórs-
höfn, fyrst og fremst í tengslum
við fiskvinnslu Ísfélagsins. „Það
vantar fólk og við höfum verið að
fá mannskap frá Raufarhöfn og allt
frá Akureyri,“ segir Gunnleifur.
Hliðarverkun af hinu góða
atvinnuástandi er húsnæðisekla
á Þórshöfn. Félagið V Laugavegur
ehf. hefur verið með tvö raðhús í
smíðum í samvinnu við Langanes-
byggð.
„Við fengum engan til að byggja
og sömdum um framkvæmdina
við þetta félag gegn því að við
ábyrgðumst leiguna í tíu ár,“ segir
Gunnólfur sem kveður enga íbúð
enn hafa verið selda eða leigða
út. Margir hafi hins vegar spurst
fyrir þótt eignirnar hafi enn ekki
verið auglýstar.
Íbúðirnar eru sex í tveimur
húsalengjum og um 92 fer-
metrar að flatarmáli hver. Gunn-
leifur segir leiguverð ekki enn
hafa verið ákveðið en rætt hafi
verið um 1.200 krónur á mánuði
fyrir hvern fermetra. Það þýðir
mánaðar leigu upp á ríflega 110
þúsund krónur. Íbúðirnar eru
einnig til sölu.
„Best væri fyrir alla ef þær
myndu seljast,“ sem segir Gunn-
leifur, sem kveður innkomnar
fyrirspurnir bæði varða kaup
og leigu á íbúðunum. Þær komi
jafnt frá fólki utan bæjarins sem
heimamönnum. „Ég á ekki von á
öðru en við verðum búin að leigja
þetta allt á næsta ári. Ég hef engar
áhyggjur af því.“ gar@frettabladid.is
Létta loftið
með nýjum
reykháfum
Nýir strompar á fiskbræðslunni í Þórshöfn eiga að
losa bæjarbúa undan slæmri lykt. Sveitarstjórinn er
bjartsýnn á útleigu nýrra íbúða sem verða tilbúnar
fyrir jól. Atvinna er svo mikil að mannskap vantar.
NÝR SKORSTEINN Annar af tveimur reykháfum sem eiga að vera á fiskimjölsverk-
smiðju Ísfélagsins á Þórshöfn hefur verið reistur. MYND/GUNNÓLFUR LÁRUSSON