Fréttablaðið - 05.11.2011, Page 10
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR10
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur í Hæstarétti verið
dæmdur í fimmtán mánaða fang-
elsi fyrir tilraun til að flytja inn
í landið allt að einu kílói af kóka-
íni.
Mál þetta, sem kom upp í des-
ember 2009, hlaut mikla athygli á
sínum tíma. Maðurinn hafði flutt
rúmlega 3.7 kíló af svokölluðu
4-flúoramfetamíni til landsins.
Efnið sem er náskylt amfetamíni
var ekki á skrá hér á landi yfir
ávana- og fíkniefni sem óheimil
eru á íslensku forráðasvæði.
Manninum var því sleppt úr
haldi. Héraðsdómur Reykjaness
sýknaði hann, þar sem í ákæru
var ekki gerð krafa um sakfell-
ingu fyrir tilraunabrot.
Í skýrslutöku hjá lögreglu bar
maðurinn að þetta hefði byrjað
með því að hann skuldaði pen-
inga. Annar maður hefði komið
til sín og spurt hvort hann væri
til í að fara til Amsterdam að
sækja „í kringum kíló“ af lyktar-
lausu kókaíni og koma með það
til landsins. Efnin væru vel falin
og kæmu ekki fram á röntgen.
Myndu báðir mennirnir hagn-
ast á þessu. 4-flúoramfetamínið
fannst svo í tösku hans við kom-
una til landsins.
Hæstiréttur leit svo á að
maður inn hefði talið að hann
væri að smygla inn allt að einu
kílói af kókaíni og sýnt ótvírætt
í verki þann ásetning sinn.
- jss
FERÐATASKA Maðurinn flutti fíkniefnin í
tösku til landsins.
Hæstiréttur sneri við dómi Héraðsdóms Reykjaness og sakfelldi mann:
Fékk 15 mánaða dóm fyrir
tilraun til að smygla kókaíni
LÖGREGLUMÁL Nokkur viðbúnaður
var í höfuðstöðum RÚV á fimmtu-
dag þegar útvarpsstjóra barst
óþekkt hvítt duft í bréfi frá Mar-
okkó. Í bréfinu var einnig miði
með arabísku letri.
RÚV greinir frá því að tveir
starfsmenn útvarpsins komust í
snertingu við bréfið eftir að það
var opnað. Lögregla tók við efn-
inu og flutti til rannsóknar deildar
Landsspítalans í veiru- og smit-
sjúkdómafræðum, sem kallaði út
mannskap til að greina það, þar
sem í ljós kom að það var hveiti
eða annað skaðlaust efni. Þetta
er í annað sinn sem bréf af þessu
tagi berst til RÚV, það fyrra
barst skömmu eftir hryðjuverka-
árásirnar á Tvíburaturnana árið
2001.
„Ég held að það sé betra að hafa
vaðið fyrir neðan sig og ekki gefa
sér að þetta sé grín eða eitthvað
svoleiðis,“ sagði Páll Magnússon
útvarpsstjóri í samtali við Vísi.
„Ég var ekki á staðnum þegar
þetta bréf barst en aðstoðarkonan
mín tók bréfið og opnaði það, eins
og vera ber. Þegar hún opnar það
sér hún að þar er miði með arab-
ísku letri og poka með hvítu dufti.
Hún gerði rétt, lokaði umslaginu
og límdi fyrir og hringdi á lög-
regluna.“ - sv
Páli Magnússyni, útvarpsstjóra RÚV, barst dularfullt bréf með hvítu dufti:
Reyndist vera skaðlaust efni
FÉKK SENT DUFT FRÁ MAROKKÓ Páll
Magnússon útvarpsstjóri fékk sent hvítt
duft í bréfi til RÚV á fimmtudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KALT Í KABÚL Móðir í Kabúl, höfuð-
borg Afganistans, vefur búrku sinni
utan um dóttur sína til að hlýja henni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UMHVERFISMÁL Bæjarstjórn
Hornafjarðar er ekki sátt við
þá mynd sem dregin hafa verið
upp af vandræðum hreindýra
sem hafa verið að flækjast
í girðingar bænda í sveitar-
félaginu.
Að sögn bæjarstjórnarinnar
verður að nálgast málefni
hreindýra bæði út frá velferð
dýranna og hagsmunum bænda.
„Mikill ágangur hefur verið á
ræktað land og álag á girðingar
því mikið. Ljóst er að hlutaðeig-
andi stofnanir verði að vinna
með bændum að úrlausn þess-
ara mála, til að koma í veg fyrir
tjón bænda og tryggja um leið
velferð dýranna. Þá harmar
bæjarstjórn Hornafjarðar þá
yfirborðskenndu og einhliða
umfjöllun sem málið hefur
fengið.“ - gar
Hreindýr og girðingar eystra:
Segja umræðu
vera einhliða
EFNAHAGSMÁL Vöruskiptajöfn-
uður í september var jákvæð-
ur um 15,5 milljarða króna. Er
þetta mesti afgangur af vöru-
skiptum í einum mánuði frá maí
2010. Fluttar voru út vörur frá
Íslandi fyrir 62,5 milljarða og
inn fyrir 46,9 milljarða.
Vöruskiptajöfnuður fyrstu níu
mánuði ársins var því jákvæður
um 81,5 milljarða samanborið
við 86,7 milljarða á sama gengi
á fyrstu níu mánuðunum í
fyrra.
Í Morgunkorni greiningar
Íslandsbanka segir að þennan
myndarlega afgang megi að
verulega leyti rekja til óvenju-
mikils útflutnings sjávar-
afurða. Slíkur útflutningur
nam 28,6 milljörðum í septem-
ber og hefur aldrei verið meiri í
krónum talið. - mþl
Nýjar tölur frá Hagstofunni:
Afgangur af
vöruskiptum
HEILBRIGÐISMÁL Ráðist hefur verið
í að girða af hluta lóðarinnar við
geðdeild Landspítalans. Gera á
svæðið aðgengilegt til útivistar
fyrir þá sjúklinga.
Á vef Landspítalans er greint
frá því að Evrópunefndin um
varnir gegn pyntingum og
ómannlegri eða vanvirðandi með-
ferð eða refsingu hafi í skýrslum
sínum ítrekað mælt með því við
stjórnvöld á Íslandi að sjúkling-
ar sem hafa verið nauðungar-
vistaðir geti átt þess kost að
dvelja í fersku lofti daglega. - ibs
Garður við geðdeildarhúsið:
Sjúklingar geti
notið útivistar
KOMPU
D GUR
Gríptu gæsina 6. nóvember
Nú er tækifæri til að fá mikið fyrir krónurnar. Gerðu fantagóð
kaup á Kompudegi STAFF starfsmannafélags Icelandair
Group á Hilton Reykjavík Nordica kl. 12:00–17:00, sunnudaginn
6. nóvember.
Happdrætti til styrktar Vildarbörnum, glæsilegir vinningar
frá íslenskum hönnuðum, Saga Shop og fleirum. Allur ágóði
af sölu í Flugkaffinu og hluti af kompusölunni rennur einnig
til Vildarbarna.
GROUP
12 nátta ferð - síðustu sæti!
Heimsferðir bjóða frábær tilboð á allra síðustu sætunum til Kanaríeyja þann
15. nóvember. Í boði eru sértilboð m.a. á Maspalomas Lago smáhýsum. Beint flug
til Kanaríeyja þann 15. nóvember. Á heimleið er flogið til Kaupmannahafnar og
þaðan til Íslands þann 27. nóvember.
Athugið að mjög takmörkuð gisting er í boði!
Kanarí
15. nóvember
Frá kr. 114.900 Maspalomas Lago
Netverð á mann m.v. tvo fullorðna í 12 nætur í íbúð með einu sefnherbergi.
Frá kr. 114.900
Ótrúlegt sértilboð!*****