Fréttablaðið - 05.11.2011, Page 38
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR38
HÆLSVÍK Á leiðinni út með Krýsuvíkurbergi blasir við þessi fallega vík, Hælsvík. Upp af víkinni er Heiðnaberg, 45 metra hátt, sem tengist Tyrkjaráninu órofaböndum. Þar lá Ræningjastígur þar sem ræningjalýðurinn gekk
á land, en nú horfinn að mestu.
Á SELÖLDU Ekki þarf að keyra langt frá Suðurstrandarvegi í átt að Krýsuvíkurbergi áður en gömul fallega
hlaðin fjárhús blasa við undir kambi (Strák). Þarna nálægt eru tóftir tveggja bæja, Fitja og Eyrar. Einnig
hlaðin steinbrú yfir Vestari-læk sem þarna rennur nærri.
SELATANGAR Forn verstöð, sennilega notuð þegar á miðöldum. Hér sjást rústir úr hlöðnu hraungrýti svo og
af fiskbyrgjum þar sem hertur fiskur var unninn og geymdur. Sums staðar er hlaðið fyrir hella í hrauninu
sem voru notaðir sem sjóbúðir eða byrgi. Hér eru heimahagar afturgöngunnar Tanga-Tómasar sem var
svo hatrömm að ekki þýddi að skjóta á hana silfurhnöppum, sem yfirleitt dugðu best. Lambaspörð virtust
duga betur, segir á fræðsluskilti við Selatanga sem eru friðlýstir.
KLEIFARVATN – STEFÁNSHÖFÐI Þeir sem kjósa að ferðast um Reykjanes eiga þess kost að fara Krýsuvíkur-
leiðina sem tengist Suðurstrandarvegi. Það ferðalag svíkur engan, ekki síst ef viðkoma er höfð á hvera-
svæðinu við Seltún.
FRAMHALD AF SÍÐU 36
SELTÚNSHVERIR Í KRÝSUVÍK Hverasvæðið, sem er skammt frá Suðurstrandarvegi þegar beygt er inn á
Suðurstrandarveg, er einstök náttúruperla. Þar var miðstöð brennisteinsvinnslu og vettvangur borana í
Krýsuvík. Göngustígar eru um hverasvæðið sem auðveldar aðgengi fyrir alla.
Fleiri myndir má sjá á visir.is