Fréttablaðið - 05.11.2011, Síða 42
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR42 .
■ VISSIR ÞÚ?
B
ráð hætta steðjar
enn að 13,3 milljón-
um manna í Austur-
Afríku sem svelta
heilu hungri vegna
verstu þurrka í ára-
tugi. Helmingur þeirra eru börn.
Svæðið – oft nefnt Horn Afríku –
er gríðarlega stórt og erfitt er að
koma fólki þar til hjálpar. Þrátt
fyrir að alþjóðasamfélagið hafi
brugðist við hefur þeim sem
eru hjálpar þurfi fjölgað um 900
þúsund manns síðan í ágúst.
Þar sem neyðin er stærst
Neyðin nær til fjögurra landa á
Horni Afríku. Keníu, Eþíópíu, Djí-
bútí og Sómalíu. Talið er að 320 þús-
und börn yngri en fimm ára þjáist
af alvarlegum næringarskorti og
séu dauðvona, verði þeim ekki rétt
hjálparhönd hið fyrsta. Vandinn er
sem fyrr mestur í suðurhluta Sóm-
alíu þar sem tugþúsundir barna
hafa þegar dáið úr hungri. Börn
flóttafólks eru í mikilli hættu en
Sómalar streyma til nágrannaland-
anna þriggja sem fyrr voru nefnd.
Margir deyja á leiðinni og lítt betri
aðstæður bíða þeirra þegar og ef
áfangastað er náð.
Þríhöfða dreki
Hörmungarnar sem dunið hafa
yfir löndin fjögur eru ekki
aðeins af náttúrulegum toga.
Vissulega er uppskerubrestur
og fallinn búfénaður í grunninn
helsta ástæðan en efnahagslegir
og pólitískir þættir spila einnig
stórt hlutverk og magna neyðina
margfalt. Matvælaverð hefur
snarhækkað og uppskerubrestur
hefur til dæmis leitt til þess að
verð á dúrru, kornjurt sem gefur
milljónum mjöl til matargerðar,
hefur hækkað um 250 prósent í
Sómalíu á einu ári. Stjórnmála-
ástandið í landinu, en þar hefur
í raun ríkt borgarastyrjöld í tvo
áratugi, gerir ástandið á stórum
svæðum nær vonlaust.
Neyðin er átakanlegust hjá
konum og börnum – eins og
löngum þar sem fer saman
skortur, sjúkdómar og átök.
Aðgerðir bera árangur
Þrír mánuðir eru liðnir frá
því að landsnefndir UNICEF –
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna – hófu söfnun til að styrkja
neyðarstarf samtakanna á
þurrkasvæðinu. Rúmlega 11.600
Íslendingar studdu söfnun UNI-
CEF á Íslandi.
Mannúðaraðgerðirnar hafa
skilað umtalsverðum árangri.
Yfir 100 þúsund börn hafa þegar
verið meðhöndluð gegn vannær-
ingu og milljón börn hafa verð
bólusett gegn mislingum. En
eins og lýst hefur verið er neyð-
arástandið viðvarandi og frekari
aðgerða er þörf ef koma á í veg
fyrir að hundruð þúsunda barna
láti lífið af völdum vannæringar
og sjúkdóma.
„Sökum stærðargráðu ástands-
ins þurfum við enn að auka við
neyðaraðstoð okkar og á sama
tíma leggja grunn að langtíma
þróunarverkefnum til að fyrir-
byggja að hörmuleg ógæfa sem
þessi eigi sér stað að nýju,“ segir
Elhadj As Sy, svæðisstjóri UNI-
CEF fyrir austur- og suðurhluta
Afríku.
Veðurspáin
Spár fyrir regntímabilið, sem
hefst nú í október og nær fram í
desember, gefa til kynna að fæðu-
öryggi gæti aukist í Keníu og Eþí-
ópíu. Reynslan sýnir á hinn bóg-
inn að regntímabil sem koma
eftir mikla þurrka auka hættuna
á flóðum og útbreiðslu lífshættu-
legra sjúkdóma á borð við kóleru
og malaríu.
Frá Sómalíu eru góðu fréttirnar
að í suður- og miðhluta landsins,
þar sem aðgangur mannúðarsam-
taka er takmarkaður, hefur UNI-
CEF náð til 350 þúsund manna.
Sjá: unicef.is/files/file/Austur_Afrika.pdf
Börnin þjást að venju mest
Þrátt fyrir að alþjóðasamfélagið hafi brugðist við neyðinni í Austur-Afríku hefur þeim sem eru hjálpar þurfi fjölgað um tæpa
eina milljón. Eins og Svavar Hávarðsson komst að bíður hungurdauði 320 þúsund barna ef frekari hjálp berst ekki í tíma.
Alvarlega vannært barn hvílist í neyðarmiðstöð á sjúkrahúsi í
Lodwar, höfuðborg Turkana-héraðs. Hlutfall alvarlegra vannærðra
barna á svæðinu er yfir 37 prósentum, og hefur aldrei verið
hærra. Hirðingjar, sem eru meirihluti íbúa, hafa selt bústofn sinn
til að kaupa mat. Matvörur hækka stöðugt í verði sem eykur enn
á neyð fólks. MYND/UNICEF/NJUGUNA
Nautgripir reyna að kroppa stöku strá á örfoka landi í Eþíópíu.
Vegna þurrka hefur bústofn og uppskera tapast sem ógnar lífs-
háttum hirðingja sem og annarra. Tapaður bústofn þýðir í raun
að engin leið er fyrir fólk að byggja upp nýtt líf þegar loks lætur af
verstu þurrkunum.
MYND/UNICEF/JENSEN
Þunguð kona liggur í neyðarskýli í Mógadisjú, höfuðborg Sóm alíu.
Flugnanet hanga yfir konunni sem er ein tugþúsunda sem hafa
leitað til borgarinnar eftir hjálp. Um 1,5 milljónir Sómala hafa
flúið heimili sín og eru á vergangi eða í flóttamannabúðum þar.
MYND/UNICEF/HOLT
Ekkjan Amina Ali ber ungt barn sitt á bakinu í Bouldougo, fátækrahverfi í
höfuðborginni Djíbútí. Amina, sem er fjögurra barna móðir, er Sómali sem
hefur búið í Eþíópíu um skeið. Eftir að bústofn hennar féll gekk hún í átta daga
til Bouldougo, en þar skortir allar helstu nauðsynjar. Barn hennar er alvarlega
vannært. MYND/UNICEF/MEKKI
Kenía 450.000 MANNS Í FLÓTTAMANNABÚÐUM Sómalía 750.000 MANNS SVELTA HEILU HUNGRIEþíópía 160.000 BÖRN FYRIR NEÐAN HUNGURMÖRK
Djíbútí 23.000 BÖRN HAFA FENGIÐ LÍFSNAUÐSYNLEGA AÐSTOÐ
... að fjórar milljónir Sómala búa við skort. Þar
sem ástandið er verst, í suðurhluta landsins,
eru 750 þúsund manns við dauðans dyr.
... að í Keníu búa 450 þúsund manns í flótta-
mannabúðum við borgina Dadaab. Sex af
hverjum tíu eru börn.
... að 842 þúsund flóttamenn frá Sómalíu,
Súdan og Eþíópíu eru taldir hjálparþurfi.
Margir eru sjúkir og alvarlega vannærðir, sér-
staklega fólk frá Sómalíu og aðallega börn.
... að í Eþíópíu munu 160 þúsund börn til
viðbótar færast niður fyrir hungurmörk fyrir
áramót ef ekkert er að gert.
... að 23 þúsund börn í Djíbútí voru með-
höndluð vegna vannæringar frá júlí og fram í
september.
... að uppskerubresturinn í Sómalíu er sá versti
í sautján ár og að kornuppskeran var aðeins
þriðjungur af meðaltali áranna 2006 til 2010.
... að verð á nauðsynjavöru hefur aldrei verið
eins hátt í Keníu, Eþíópíu, Djíbútí og Sómalíu.
Víða hefur verðið þrefaldast. Víða á norðaustur
horni Afríku er til matur en fátækir geta ekki
keypt sér mat vegna uppskerubrests, falls
búfénaðar og tekjubrests almennt.
... að UNICEF hefur bólusett 964 þúsund börn
í Sómalíu gegn mislingum, 426 þúsund hafa
verið bólusett gegn mænusótt og tæp milljón
hefur fengið vítamín?
… koma nærri
10.000
tonnum af hjálpar-
gögnum frá UNICEF
á vettvang.
… meðhöndla
108.000
börn
gegn vannæringu.
… bólusetja
1,2 milljónir
barna gegn mislingum.
… veita
2,2 milljónum
manna aðgang að hreinu
vatni.
Djíbútí
Sómalía
Kenía
Eþíópía
Djíbútí
Addis-Ababa
Mógadisjú
Naíróbí
■ 4 milljónir
■ 120.000
■ 19.000
■ 4,5 milljónir
■ 262.000
■ 3,7 milljónir
■ 561.000
■ Íbúar í nauð
■ Flóttamenn
… tryggja
48.000
börnum aðgang
að barnvænum
svæðum eða öðru
öruggu umhverfi.
ÓTAL MANNSLÍFUM BJARGAÐ: NEYÐARÁSTANDINU ÞÓ LANGT Í FRÁ LOKIÐ
UNICEF og
samstarfsaðilar
hafa náð að …
13,3 milljónir manna í nauð
750.000 vannærð börn undir 5 ára, þar af
yfir 320.000 alvarlega vannærð.
GRAFÍK:UNICEF