Fréttablaðið - 05.11.2011, Qupperneq 68
KYNNING − AUGLÝSINGSkrifstofan LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 20116
Fyrirtækjasvið Pennans býður sérsniðnar lausnir f y r ir fyrirtæki og kappkostar að
veita framúrskarandi þjónustu enda
er starfsfólk okkar boðið og búið til
þess að veita faglega og persónulega
ráðgjöf,“ segir Ingibjörg Ásta Hall-
dórsdóttir, markaðsstjóri Pennans.
„Vöruframboð Pennans er meðal
annars á sviði skrifstofuhúsgagna,
ritfanga og rekstrarvara. Fyrirtæki
sem eru í heildarviðskiptum við
Pennann njóta sérkjara hjá okkur
og fyrirhafnarlausra viðskipta. Í
hverjum mánuði eru góð tilboð og
sérstakur glaðningur fylgir öllum
pöntunum yfir 15.000 krónum auk
þess sem frír akstur er innifalinn.“
Í verslunum Pennans er hægt að
kaupa allt sem þarf til daglegs skrif-
stofuhalds og afþreyingar, eins og
pappír, húsgögn, ritföng, tónera,
kaffi, bækur, tímarit og fleira. Penn-
inn býður fyrirtækjum jafnframt
að fá kaffi- og vatnsvélar í gegnum
þjónustusamning. „Við val á vélbún-
aði er horft til áralangrar reynslu
samstarfsaðila okkar í Te & kaffi
en við leggjum metnað okkar í að
bjóða bestu vélar og hráefni hverju
sinni,“ segir Ingibjörg Ásta. Hún
segir starfsfólk Pennans kenna á
búnaðinn ásamt því að sjá um upp-
setningu og viðhald sé þess óskað.
Ingibjörg Ásta segir f jölda
fyrirtækja vera í daglegum viðskipt-
um við Pennann og hafa myndast
góð kynni milli starfsfólks og við-
skiptavina. „Stærri og millistór
fyrirtæki versla beint í gegnum
fyrirtækjasviðið og fá því vörurnar
sendar heima að dyrum.“
Ingibjörg Ásta segir að nú sé
vinna í gangi sem miðar að því að
gera vefverslun Pennans mun öfl-
ugri en þar er hægt að gera pant-
anir á f ljótlegan hátt sem send-
ar eru hvert á land sem er. „Í vef-
verslun okkar er hægt að fletta upp
fjölbreyttu vöruúrvali, skoða lag-
erstöðu og leggja fram pantanir
á einfaldan og f ljótlega hátt. Við-
skiptavinir geta fengið séraðgang
og útbúið sína eigin körfu með sér-
völdum vörum og flýtt þannig fyrir
næstu pöntun.“
Í dag eru tvær verslanir starf-
andi undir vörumerkjum Penn-
ans; önnur með áherslu á ritföng
og rekstrarvörur en hin býður upp á
fjölbreytt úrval skrifstofuhúsgagna.
Á næstunni eru síðan fyrirhugaðir
flutningar á fyrirtækjasviði og skrif-
stofu Pennans. Jafnframt mun hús-
gagnaverslun Pennans sem heyr-
ir undir fyrirtækjasviðið f lytja úr
Hallarmúla 4 yfir í nýja húsnæð-
ið sem verður á Grensásvegi 11. Að
sama skapi mun ritfangaverslun
Pennans, sem hefur verið í Hallar-
múla 2, færast yfir í fyrra húsnæði
húsgagnaverslunar Pennans, Hall-
armúla 4. „Nýja húsnæðið á Grens-
ásvegi 11 er mjög hentugt fyrir fyrr-
nefndar starfseiningar fyrirtækis-
ins og þessi breyting verður án efa
mikil lyftistöng fyrir fyrirtækið í
heild og mun stytta boðleiðir enn
frekar.“
Allt fyrir skrifstofuna
Fyrirtækjasvið Pennans þjónustar fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum og kemur
starfsfólk til móts við mismunandi þarfir og býður heildarlausnir fyrir hvern og einn.
Skrifstofurómans er sígilt og vinsælt viðfangsefni í kvikmyndum og
vefsíðan filmcritic.com tók saman lista yfir tíu bestu kvikmyndirnar
sem fjalla um ástarævintýri á vinnustað. Segir í samantekt um
myndirnar að þær gefi þá hugmynd að það sé bara hið besta mál að
láta eftir sér að rækta ástina á skrifstofunni, þótt margir yfirmenn í
raunveruleikanum líti slíkt hornauga.
Í tíunda sæti listans er myndin No Reservations frá 2007.
Catherine Zeta-Jones leikur þar yfirkokk sem á í ástar/
haturssambandi við undirmann sinn sem Aaron Eckhart
leikur. Eins og vera ber í kvikmynd af þessu tagi sigrar ástin
að sjálfsögðu og þau lifa hamingjusöm upp frá því.
Mel Gibson og Helen Hunt eru stjörnurnar í myndinni í
níunda sæti, What Women Want frá 2000, sem naut mikilla
vinsælda á sínum tíma.
Two Weeks Notice frá 2003 vermir áttunda sæti listans.
Þar leika Hugh Grant og Sandra Bullock pólitíska andstæð-
inga sem auðvitað fella hugi saman í rás myndarinnar. Bæði
eru þau þrautreynd í rómantískum gamanmyndum og klikka
ekki hér frekar en endranær.
Eldri myndir raða sér um miðbik listans: 7. Superman: The
Movie (1978), 6. Broadcast News (1987), 5. Lover Come Back
(1961) og 4. Working Girl (1988). Þriðja sætið eiga svo Tom
Cruise og Renee Zellweger í myndinni Jerry Maguire frá 1996.
Filmcritic.com kallar samband þeirra í myndinni „ferskt og laust
við væmni“ sem sé kærkomin tilbreyting í myndum af þessu
tagi.
His Girl Friday frá 1940 krækir í annað sætið. Þar eiga Cary
Grant og Rosalind Russell í stormasömu sambandi á ritstjórn
dagblaðs, hann sem yfirmaður og hún sem fréttamaður og
það sem flækir samskipti þeirra enn frekar er að þau eru fyrrver-
andi hjón. Filmcritic.com hrósar handriti myndarinnar í hástert og
segir svona vel skrifaðan texta sorglega sjaldgæfan í kvikmyndum
samtímans.
Hin umdeilda mynd Secretary frá 2002 situr á toppi listans.
Myndin skaut Maggie Gyllenhaal upp á stjörnuhimininn en sam-
band hennar og James Spader í myndinni er eitt það óvenjulegasta
og mest hrollvekjandi í kvikmyndasögunni að mati síðunnar.
Ástin blómstrar
á skrifstofunni
Maggie Gyllenhaal í Secretary.
Two Weeks Notice
No Reservations
Í verslunum Pennans er hægt að kaupa allt sem þarf til daglegs skrifstofuhalds og
afþreyingar; jafnt húsgögn, ritföng, tímarit sem og kaffi. Markaðsstjórinn Ingibjörg Ásta
Halldórsdóttir og framkvæmdastjórinn Sædís Guðmundsdóttir taka vel á móti fólki.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Íslensk framleiðsla