Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 80
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR52
Fyrstu sögurnar um Tinna birt-
ust í barnablaði belgíska dag-
blaðsins Le XXe Siècle í janúar
1929. Tinnabækurnar eru vinsæl-
ustu teiknimyndasögur í Evrópu
og hafa verið þýddar á meira en
80 tungumál. Tuttugu og fimm
þeirra hafa komið út á íslensku
í þýðingu Lofts Guðmundssonar.
● Höfundur Tinna fæddist fyrir
meira en hundrað árum. Hann
hét Georges Rémi en gekk undir
höfundarnafninu Hergé. Hergé
lét Tinna oft vera viðstaddan
sögulega atburði, eins og til
dæmis rússnesku byltinguna og
seinni heimsstyrjöldina. Stund-
um var Tinni hins vegar á undan
sinni samtíð. Þannig fór hann til
tunglsins fjórtán árum áður en
fyrsti maðurinn gerði það.
● Tobbi er af tegundinni fox ter-
rier. Hann heitir Milou á frum-
málinu, frönsku, en Snowy á
ensku. Tobbi fylgir Tinna frá
fyrstu bók en aðrar aukapersónur
tínast smám saman inn, Kolbeinn
kafteinn í Krabbanum með gylltu
klærnar, Vandráður prófess-
or í Fjársjóði Rögnvaldar rauða
og lögreglumennirnir Skapti og
Skafti í Tinna í Kongó. Lög-
reglumennirnir heita Dupont
og Dupond á frönsku en
Thomson og Thompson á
ensku. Hérgé sjálfur birtist
oft í bakgrunninum og einnig
aðstoðarmenn hans.
● Tinni er stjörnublaða-
maður við belgíska
dagblaðið Le Petit
XXe. Í hverri
bók kemst hann
á snoðir um eitt-
hvað dularfullt
og rannsakar það
upp á eigin spýtur.
Oft leggur hann sig í
mikla hættu við að upplýsa
glæpi en aldrei er skrifað
um það þegar hann skrifar
sjálfa fréttina eða fer með
hana á blaðið. Hann vinn-
ur sjálfstætt og samstarfs-
menn eða ritstjórar blaðs-
ins koma aldrei við sögu.
● Tobbi talar við lesendur með
hugsunum sínum sem oft eru
fyndnar. Tobbi talar aðeins einu
sinni við Tinna, það er í bókinni
Tinni í Ameríku þegar Tobbi
þarf að útskýra fyrir húsbónda
sínum hvar hann hafi verið eftir
langa fjarveru.
● Besti vinur Tinna er Kol-
beinn kafteinn. Í fyrstu er hann
ógæfusamur drykkjumaður en
verður meiri og meiri hetja eftir
því sem líður á bókaflokkinn.
Hann er orðljótur og tvinnar
saman frumleg blótsyrði þegar
illa gengur. Kolbeinn er ættstór
og býr á herragarðinum Myllu-
setri.
● Vandráður prófessor er við-
utan eðlisfræðingur sem fer fyrst
í taugarnar á Tinna en seinna
lærir Tinni að meta hann og
hæfileika hans. Vandráður heyr-
ir afskaplega illa og lætur fólk oft
segja sama hlutinn aftur og aftur
án þess nokkurn tíma að heyra
rétt. Þetta fer alla tíð hrikalega
í taugarnar á Kolbeini kafteini.
● Eini munurinn á Skapta og
Skafta er lögunin á yfirskegginu.
Þessar persónur byggði Hergé á
pabba sínum og tvíbura bróður
hans sem, eins og lögreglu-
mennirnir, voru alltaf með hatta
í stíl. Skapti og Skafti eru hins
vegar ekki tvíburar og ekki
skyldir svo vitað sé.
● Margar kvikmyndir hafa
verið gerðar um ævintýri Tinna.
Sú fyrsta, Krabbinn með gylltu
klærnar, var gerð í Belgíu árið
1947. Tinnamyndin sem núna er í
bíó er gerð eftir bókunum Krabb-
inn með gylltu klærnar, Leyndar-
dómur Einhyrningsins og Fjár-
sjóður Rögnvaldar rauða. Sömu
framleiðendur vinna nú að gerð
myndar eftir bókunum Sjö kraft-
miklar kristalskúlur og Fangarn-
ir í sólhofinu.
Rosalega rosalega gaman
krakkar@frettabladid.is
52
Helga María og Kristinn Bjarnabörn LEIKHÚS
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
VEFIR.NAMS.IS/KLUKKAN/KLUKKAN.HTM er flott
síða fyrir krakka sem eru að læra hvað klukkan er. Þar má leysa
ýmis verkefni tengd klukkunni.
FYRSTUR TIL TUNGLSINS
Tinnabækurnar eru vinsælustu teiknimyndasögur í Evrópu og margar kvikmyndir
hafa verið gerðar eftir þeim. Sú sem er í bíó núna er eftir bókunum Krabbinn með
gylltu klærnar, Leyndardómur Einhyrningsins og Fjársjóður Rögnvaldar rauða.
Hvað sagði skrímsli Franken-
steins þegar það varð fyrir
eldingu?
Ahh, akkúrat það sem mig
vantaði.
Hvernig skart ber skrímsli?
Legsteina.
Hvað skaltu gera þegar þú
lendir í sama herbergi og
Frankenstein, Drakúla, var-
úlfur, vampíra og norn?
Krossa fingur og vona að þú
sért staddur á grímuballi.
Hvernig grætur barnadraugur?
Búhúú! Búhúú!
Hvað kallast hundur sem
Drakúla á?
Blóðhundur.
Systkinin Helga María Bjarnadóttir og Jóhannes Kristinn
Bjarnason eru bæði í Vesturbæjarskóla. Þau fóru að sjá
Galdrakarlinn í Oz með mömmu sinni um síðustu helgi og
gætu vel hugsað sér að fara aftur.
„Já, auðvitað, þetta var rosalega gaman,“ segir Helga og Jói
bætir við: „Rosalega, rosalega gaman. Fullorðnir geta líka
alveg haft gaman af sýningunni, mamma fór að skellihlæja.“
Krakkarnir þekktu bæði söguna vel og höfðu séð bíó-
myndina nokkrum sinnum áður en þau sáu leiksýninguna.
Þau voru bæði mjög hrifin af leikmyndinni og búningunum.
En hvaða persóna var skemmtilegust?
„Mér fannst hundurinn Tótó skemmtilegastur,“ segir Helga.
„Mér fannst fuglahræðan skemmtilegust,“ segir Jói en hann
var ekki hrifinn af öllu. „Mér fannst vonda nornin leiðinleg.“
Helgu fannst hins vegar engin persóna leiðinleg í sýning-
unni. „Þetta er fyndið og það eru góðir leikarar. Við mælum
með sýningunni fyrir alla krakka og hún fær 5 stjörnur.“
Vandráður heyrir af-
skaplega illa og lætur
fólk oft segja sama
hlutinn aftur
og aftur.
Á Vísi er hægt að horfa
á myndskreyttan upp-
lestur úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið
1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið
endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl-
enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum
börnum í tugi ára.