Fréttablaðið - 05.11.2011, Page 83
LAUGARDAGUR 5. nóvember 2011 55
Ashton Kutcher er víst miður
sín og reynir að gera allt sem
hann getur til að lappa upp á
hjónabandið við Demi Moore.
Hjónakornin eru á barmi skiln-
aðar eftir að hin 23 ára Sara Lea
greindi frá því að hún hefði átt
í ástarsambandi við Kutcher í
sumar.
Tímaritið Now Magazine hefur
eftir nánum vini hjónanna að
Kutcher ætli sér að bæta upp
fyrir mistökin. „Ashton líður
mjög illa yfir því að hafa sært
Demi og sjá hana svona reiða og
þunglynda. Hann sendi henni
bréf um það hvernig hann gæti
bætt sig sem eiginmaður. Demi
grét þegar hún las listann en veit
ekki hvort hún getur fyrirgefið
honum.“
Vill laga
hjónabandið
BÆTA FYRIR MISTÖKIN Ashton Kutcher
vill ekki missa Demi Moore samkvæmt
Now Magazine. NORDICPHOTOS/GETTY
Victoria’s Secret ti lkynnti
nýverið að fyrirsæturnar Candice
Swanepoel og Erin Heatherton
yrðu svokallaðir englar árlegrar
tískusýningar undirfata merkisins.
Sýningarinnar er ávallt beðið með
svolítilli eftirvæntingu enda er
öllu til tjaldað svo hún verði sem
glæsilegust.
Swanepoel og Heatherton segj-
ast í óða önn að undirbúa sig fyrir
sýninguna og stunda líkamsrækt
daglega til að koma sér í form.
„Ég æfi mikið og duglega. Ég æfi
alla daga ársins því þegar maður
starfar fyrir Victoria‘s Secret
verður maður alltaf að vera tilbú-
inn að klæðast nærfötum einum
saman. Líkamsrækt er bara orðin
hluti af mínum hversdegi,“ sagði
Heatherton.
„Ég er í því að styrkja mig. Ég
er með mjög öra brennslu og verð
því að borða mjög mikið. Ég kvíði
sýningunni allt til dagsins sem hún
fer fram. Vikuna fyrir er maður
að undirbúa sig en sýningardag-
inn sjálfan hugsar maður: „Jæja,
nú er ekkert meira sem ég get
gert. Nú kýlum við á þetta,“ sagði
Swanepoel.
Englar undirbúa sig
ENGLAR ÁRSINS Fyrirsæturnar Candice
Swanepoel og Erin Heatherton verða
englar á tískusýningu Victoria´s Secret.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikarinn Hugh Grant og barns-
móðir hans Tinglan Hong hafa
ákveðið að nefna nýfædda dóttur
sína Jessicu. Barnið kom í heim-
inn fyrir stuttu eftir að Grant og
Hong, sem er leikkona, áttu stutt
kynni fyrr á árinu. Þau eru hins
vegar ekki saman í dag.
Grant sást heimsækja þær
mæðgur fyrr í vikunni, en hann
hefur lofað að vera stúlkunni
góður faðir.
Dóttir Grants
nefnd Jessica
STOLTUR FAÐIR Hugh Grant og barns-
móðir hans Tinglan Hong hafa nefnt
dóttur sína Jessicu. NORDICPHOTOS/GETTY
Bradley Cooper er sagður vera að slá
sér upp með hinni nýfráskildu Jenni-
fer Lopez. Móðir Coopers er sögð ósátt
við ráðahaginn og mun hafa beðið son
sinn um að taka hlutunum með ró.
Að sögn heimildarmanna var frú
Cooper mjög hrifin af fyrrverandi
kærustu sonar síns, leikkonunni
Renee Zellweger, og saknar hennar
sárt. „Henni finnst Jennifer allt of
mikil díva fyrir son sinn. Hún hefur
beðið Bradley um taka hlutunum
með ró, í það minnsta þar til skiln-
aður Jennifer við Marc Anthony er
frágenginn,“ hafði In Touch eftir
fjölskylduvini, sem heldur því einn-
ig fram að Cooper taki mikið mark á
skoðunum móður sinnar.
Mamma ósátt við J-Lo
Á MILLI STEINS OG SLEGGJU Móðir
Bradley Cooper er ósátt við nýju
kærustu hans, Jennifer Lopez, og
hefur beðið hann um að taka hlut-
unum rólega. NORDICPHOTOS/GETTY
„Rjúkandi heitri og nýbakaðri sneið
af brownies sem er bökuð eftir
uppskriftinni hennar ömmu Dorisar.“
„Kexi, köku og öllu sem tengist súkkulaði og út
á morgunkorn.“
„Nýbakaðri skúffuköku en hún er alltaf góð.“
„Bókstaflega öllu! Snakki, pizzu, pylsum, fiski,
kjöti. Öllu.“
„Soðinni ýsu og nýjum íslenskum kartöflum,
stöppuðu með smjöri.“
„Mjólkin er góð með svo mörgu en sennilega
finnst mér hún best með saltkjöti og nýjum
kartöflum.“
„Kringlum úr Gamla bakaríinu á Ísafirði og
pönnukökum bökuðum í norðurbæ Hafnarfjarðar.“
„Franskri súkkulaðiköku. Gekk svo langt að bjóða
upp á mjólk í 1/4 l fernum í giftingunni minni.
Borin fram í skál með þurrís. Gerði þvílíka lukku
og allir hæstánægðir.“
„Kexi, köku, kjöti, út á
morgunkornið, í hreinlega
allt.“
„Öllu nýbökuðu
(brauði og kökum).
Er í fersku minni
nýsteiktu kleinurnar
hennar mömmu með
ískaldri mjólk. Svo
er mjólkin langbesti
drykkurinn með
pylsum.“
„Nýsteiktum kleinum
og rúgbrauði með kæfu
og á hafragrautinn.“
„Mér finnst mjólkin
góð með kakómalti.
En mömmu fannst
gott að fá mjólk með
poppinu sínu.“
„Mér finnst mjólk
best með stappaðri
ýsu og fiskibollum.“
„Saltstöngum.“
„Köku og Cheeriosi.
Samt er mjólk bara
góð.“
„Sterkum chili-mat.“
ms.is
Skelltu þér á ms.is og taktu þátt í skemmtilegum leik, Muu betri hugmynd.
Þú segir bara með hverju þér finnst best að drekka mjólk og átt þar með
möguleika á að vinna glænýjan iPad.
Leiknum lýkur 20. nóvember, það er um að gera að taka þátt!
Með hverju finnst þér
mjólkin best?
Þú getur unnið ipad
betri hugmynd!
„Pylsum og nýbakaðri skúffuköku.“
„Hakki og spagettí.“
„Með pylsu.“
„Heimabökuðu rúgbrauði, smjöri
og kindakæfu, snæddu í góðri laut
fjarri mannabyggð.“
„Pítsu, alveg síðan ég var
10 ára, alltaf mjólk!!“
„Soðinni ýsu, kartöflum
og hamsatólg.“
„Kjúklingi og
frönskum.“
„Vanillusírópi,
síðan fryst og borin
fram með steiktum
kanileplum.“
„Grjónagrautnum,volgri köku,
morgunkorninu, kakó, sósum,
búðingi, út í kaffið og ótal
mörgu fleiru.“
„Banananum.“