Fréttablaðið - 05.11.2011, Page 91
LAUGARDAGUR 5. nóvember 2011 63
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 6. nóvember
➜ Tónleikar
20.30 Bubbi Morthens heldur tónleika
í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Miðaverð er kr.
2.500.
➜ Félagsvist
14.00 Félagsvist verður spiluð í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir eru
velkomnir.
➜ Menningarhátíðir
15.00 Menningarhátíðin Sauðsvart
almúgasíðdegi verður haldin á Obladí
Oblada, Frakkastíg 8. Meðal þeirra sem
koma fram eru þau Birna Þórðardóttir,
Stella Haux, Kristján Þorvaldsson, Bergur
Thorberg, Kormákur Bragason, Magnús
Einarsson, Böggi og Lísa og Davíð Stein-
grímsson. Aðgangur er ókeypis.
➜ Söfn
14.00 Almenningi verður boðið að
koma með gamla gripi til greiningar hjá
sérfræðingum Þjóðminjasafns Íslands
milli kl. 14 og 16. Að þessu sinni verður
sérstök áhersla lögð á tréskurðargripi og
gripi sem tengjast tóbaksnotkun.
➜ Upplestur
21.00 Upplestrarkvöld Forlagsins fer
fram á Café Rosenberg. Allir velkomnir.
➜ Söngskemmtun
14.00 Gleðihringurinn fer fram í
Gerðubergi. Þar gefst einstakt tækifæri til
að rifja upp og læra saman bæði sígildu
og gömlu dansana og syngja gömlu,
góðu íslensku lögin. Hljómsveitin Neistar
leikur fyrir dansi. Sigvaldi Þorgilsson,
danskennari, leiðbeinir á dansgólfinu og
félagar úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur og
karlakórnum Fóstbræðnum leiða gesti í
dansi og söng. Aðgangseyrir er kr. 1.200
en frítt fyrir 16 ára og yngri.
➜ Kvikmyndadagar
20.00 Heimildarmyndin The Devil
Operation er sýnd á (Ó)sýnileg, kvik-
myndadögum Amnesty International í
Bíói Paradís. Myndin segir frá átökum
sem urðu vegna fyrirhugaðra áætlana
á vegum Yanacocha-gullnámunnar um
að færa út kvíarnar og hefja starfsemi
nálægt heilögu fjalli. Miðaverð er kr. 750.
➜ Hönnun og tíska
14.00 Í tilefni af afmælissýningu
Fatahönnunarfélags Íslands, Áratug af
tísku, gefst gestum kostur á að spyrja
fatahönnuðina Eygló Margréti Lárus-
dóttur (Eygló) og Guðmund Hallgríms-
son (Mundi) spurninga og fá innsýn í
heim þeirra. Spjallið fer fram í Listasafni
Kópavogs, Gerðarsafni og eru allir
velkomnir.
➜ Kvikmyndir
15.00 Tíu dagar sem skóku heiminn,
bresk-sovésk heimildarkvikmynd frá
1967 um Októberbyltinguna í Rússlandi
1017, orsakir hennar og aðdraganda,
sýnd í MÍR, Hverfisgötu 105. Aðgangur
er ókeypis.
➜ Unglist
20.00 Safaríkir sígildir tónar munu
flæða um Laugarneskirkju þegar ungt
og upprennandi tónlistarfólk flytur sígild
meistarastykki sem bræða vetrarkuld-
ann. Flytjendur eru nemendur við Tón-
listarskólann í Reykjavík, Söngskólann í
Reykjavík, Söngskóla Sigurðar Demetz,
Tónskóla Sigursveins, Tónlistarskólann í
Grafarvogi og Nýja tónlistarskólann.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borgara
í Reykjavík Stangarhyl 4. Hljómsveitin
Klassík leikur fyrir dansi. Aðgangseyrir er
kr. 1.500 en kr. 1.300 fyrir félagsmenn
FEB.
➜ Tónlist
21.00 Leikin verður lifandi djass á
Faktorý.
➜ Leiðsögn
14.00 Boðið verður upp á barnaleið-
sögn í Þjóðminjasafni Íslands fyrir börn
á aldrinum 8 til 11 ára. Steinunn Guð-
mundardóttir safnkennari mun ganga
með börnin gegnum grunnsýningu
Þjóðminjasafnsins Þjóð verður til -
menning og samfélag í 1200 ár.
15.00 Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman
og tískuljósmyndarinn Saga Sigurðar-
dóttir opnuðu nýverið sýninguna Ham-
skipti í Sverrissal í Hafnarborg og verða
með leiðsögn um hana í dag. Sam-
sýningin byggir á hugmyndum þeirra úr
tískuheiminum.
15.00 Kristín Dagmar Jóhannesdóttir,
listfræðingur og verkefnastjóri dagskrár
Listasafns Reykjavíkur annast leiðsögn
um sýningar Hafnarhússins með það að
marki að kanna ólík form teikningar í
samtímanum.
➜ Listamannaspjall
14.00 Sunnudaginn 6. nóvember kl.
14 fá gestir tækifæri til þess að hlýða
á og ræða við JBK Ransu, einn þeirra
þriggja sem eiga verk á sýningunni
Almynstur í Listasafni Árnesinga verður
með listamannaspjall. Einnig verður
pappírsævintýraheimur indverska lista-
mannsins Baniprosonno opnaður og
afrakstur sýndur úr listasmiðjum með
Davíð Erni um helgina. Aðgangur er
ókeypis.
15.00 Fremur óvenjulegt listamanns-
spjall fer fram í Gallerí Ágúst þegar
listamaðurinn Ragnar Jónasson sem
býr og starfar í Glasgow mun spjalla við
gesti á Skype myndfundi. Listamennirnir
Davíð Örn Halldórsson og Guðmundur
Thoroddsen ræða við hann um sýningu
hans Rætur í Gallerí Ágúst.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Náttúruleg útgeislun
Án parabena
Án tilbúinna ilmefna
Án litarefna
Burt ś Bees Radiance línan inniheldur Royal Jelly sem er talið eitt
næringarríkasta efni jarðarinnar, Radiance línan er full af næringu
og andoxunarefnum ásamt fjölda náttúrulegra innihaldsefna sem
öll hafa þann eiginleika að draga úr fínum línum og laða fram
náttúrulegan ljóma húðarinnar.
Fæst í apótekum
náttúran og ég
Þetta er neyðarkall til þín!