Fréttablaðið - 05.11.2011, Page 92
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR64
folk@frettabladid.is
– Skráning er hafin á 8 vikna
námskeið.
– Kennsla fer fram á kvöldin.
– Kennt verður á hinar
heimsþekktu vörur frá OPI.
– Nemendur útskrifast með
diplóma í naglafræði.
Professional
Viltu verða naglafræðingur?
OPI professional hefur verið leiðandi
í naglavörum síðustu 30 ár og nú gefst
þér færi á að verða OPI Naglafræðingur.
Skráning og nánari upplýsingar
í síma 551 9500 eða
á skraning@moodschool.is
TAKTU VEL Á
MÓTI OKKUR
Neyðarkall
til þín
Ricky Gervais verður að öllum
líkindum kynnir á Golden Globe-
verðlaunahátíðinni, þriðja árið
í röð. Það eru samtök erlendra
blaðamanna í Hollywood sem
standa að þessum verðlaunum en
þar eru bestu kvikmyndirnar og
sjónvarpsþættirnir heiðraðir.
Til leikarans sást að snæðingi
með yfirmönnum hátíðarinnar á
fínum veitingastað í París, nánar
tiltekið á Chez Benoit. Og það gaf
sögusögnunum byr undir báða
vængi. Hins vegar var talið að
Gervais gæti varla gengið óhultur
um Hollywood eftir frammistöðu
sína á síðasta ári en þá gerði hann
grín að næstum öllum, en sumir
fengu vissulega verri útreið en
aðrir eins og Charlie Sheen,
Robert Downey og Hugh Hefner.
Ricky upplýsti fyrr á þessu ári
að hann hefði fengið tilboð um að
vera kynnir á hátíðinni en hann
væri ekki viss um að þiggja boðið.
„Áhorfið fór upp og þeir vildu fá
mig aftur. En ég veit ekki hvað ég
gæti gert betur og ég geri yfirleitt
bara tvær þáttaraðir.“
Verður aftur kynnir
BOÐIÐ AFTUR Ricky Gervais er sagður
ætla að snúa aftur sem kynnir Golden
Globe.
Mamma Amy Winehouse
hefur rætt um fráfall dóttur
sinnar. Hún segir að Amy
hafi ekki drukkið fyrir
framan sig af virðingu við
fjölskylduna.
Enska söngkonan Amy Winehouse
gat aldrei drukkið áfengi fyrir
framan móður sína, hún bar ein-
faldlega of mikla virðingu fyrir
henni. Þetta kemur fram í breska
blaðinu Daily Mail. Söngkonan,
sem fannst látin á heimili sínu
í júní á þessu ári, átti lengi við
áfengis- og vímuefnafíkn að stríða
og lést af ofneyslu áfengis.
Hún lét hins vegar flöskuna vera
þegar mamma hennar var á svæð-
inu. „Hún hataði sjálfa sig þegar
hún var drukkin, hún vildi vera
við stjórn og þoldi ekki hvernig
áfengið fór með sig. Hún gat verið
án Bakkusar í nokkrar vikur en
svo féll hún. Hún var bara lítið
barn sem kunni ekki að forðast
brunninn,“ hefur Daily Mail eftir
mömmunni, Janis. „Hún drakk
hins vegar aldrei fyrir framan
mig, þá lét hún það alveg í friði.
Hún spurði mig jafnvel leyfis áður
en hún kveikti sér í sígarettu. Hún
elskaði og virti fjölskylduna sína
svo mikið.“
Janis segir að dóttir sín hafi ein-
faldlega verið of veikbyggð til að
þola allt þetta áfengi og það hafi
á endanum dregið hana til dauða.
„Allir vilja eiga friðsælan dauða
og ég vona svo sannarlega að hún
Amy mín hafi sofnað og bara ekki
vaknað aftur.“
Faldi drykkjuna
fyrir mömmu
BAR MIKLA VIRÐINGU FYRIR MÖMMU Amy Winehouse lét áfengið alveg í friði þegar
mamma hennar var einhvers staðar í nágrenninu. NORDICPHOTOS/GETTY
40 TONN vegur svokallað hjólhýsi Simons Cowell, en það er á tveimur hæðum. Það er stærra en hjól-hýsið sem Will Smith hafði á tökustað Men in Black 3 og New York-borg hafði afskipti af og skartar
meðal annars þremur 60 tommu þrívíddar-sjónvarpsskjáum og sófasetti með ítölsku leðri á.
Fjögur myndbönd með
nýjum lögum Hjálma á
vísir.is/popp
ÉG TEIKNA STJÖRNUR
VÍSA ÚR ÁFTAMÝRI
BORÐ FYRIR TVO
Á TJÖRNINNI
SKÚRINN
TÓNLISTARTÍMARITIÐ FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Stærsti frétta- og afþreyingarvefur landsins.