Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 110
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR82
Bowel Biotics+
Brýtur niður fæðuna og
eykur næringarupptöku,
lagar uppþembu og
vanlíðan eftir máltíðir.
Virkar vel við candida
sveppasýkingu. Kemur á
jafnvægi í maga og ristli.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Krónunni.
Meltingarensím úr
grænmeti og ávöxtum
Meðmæli:
Þægileg inn
taka
ekkert bragð
,
fljótvirkt
• HUSK trefjar
• 5 sérvaldir acidofilus gerlar
• Inulin FOS næring fyrir góðu gerlanna
lifestream™
nature’s richest superfoods
www.celsus.is
PERSÓNAN
Kristinn Árni Hróbjartsson
Aldur: 21 árs.
Starf: Ég
er nemi,
jakkafata-
spekúlant hjá
Herragarð-
inum, bloggari
og „wannabe“
rithöfundur.
Foreldrar:
Sveinbjörg
Pálsdóttir ráð-
gjafi og Hróbjartur Árnason, lektor
við Háskóla Íslands.
Búseta: Aðfluttur Hafnfirðingur.
Stjörnumerki: Steingeit.
Kristinn Árni er höfundur uppflettiritsins
Litla herramennskukverið.
„Þetta eru hlutir úr lífi mínu sem skipta mig máli. Eins og
ég reyndi að hafa plötuna — hún er kannski 50 prósent grín
og glens og 50 prósent persónulegri. Meiri tragedía,“ segir
Ingólfur Þórarinsson, best þekktur sem Ingó úr Veður-
guðunum.
Ingó sendi frá sér fyrstu sólóplötuna sína í vikunni. Öll
lögin eru eftir Ingó og eru Veðurguðirnir víðs fjarri, fyrir
utan að annast hljóðfæraleik í nokkrum lögum. Spurður
hvernig það sé að vera einn á ferð segir Ingó það vera
skemmtilegt. „Það er skemmtilegt að geta farið einn með
gítarinn út á land og verið bara Ingó,“ segir Ingó, sem er
vanari að spila á stórum böllum. „Ég get spilað á litlum
stöðum og er ekki háður því að ná upp í einhvern kostnað.
Ef ég fer bara með gítarinn kostar það eiginlega ekki neitt.
Böllin verða með, en það er góð pæling að fara á minni stað-
ina og halda tónleika þar. Ég hlakka mest til þess að fara út
á land, í hvern einasta fjörð og spila.“ atlifannar@frettabladid.is
INGÓLFUR ÞÓRARINSSON: FÓTBOLTINN OG TAKKASKÓRNIR SKÝR TENGING
Hlutirnir sem skipta Ingó
máli prýða nýju plötuna
1 „Bikarinn táknar þá
sigra sem ég hef unnið
í fótboltanum, sem
eru ekkert svakalega
margir. Samt þó
nokkrir. Bikarinn er frá
Pollamótinu í Eyjum
þar sem ég var valinn
besti varnarmaðurinn.
Hef ekki spilað vörn
síðan.“
2 „Svo er Maradona
uppi á vegg. Hann er
náttúru lega fótbolta-
goðsögn sem ég held
mikið upp á. Hann
vann heimsmeistara-
keppnina 1986, árið
sem ég fæddist. Ég
fæddist sama dag og
keppnin byrjaði.“
3 „Svo er mynd af
Presley. Hann er
náttúru lega kóngurinn
og ákveðið átrúnaðar-
goð. Þetta er flott
mynd og ég held
mikið upp á hann.“
4 „Lundinn er Eyjateng-
ing. Ég er ættaður úr
Eyjum.“
Umslag plötu Ingós svipar til
umslags fyrstu plötu Oasis,
Definitely Maybe, sem kom
út í ágúst árið 1994. „Ef ég
segi alveg eins og er, þá kom
það í ljós eftir á. Ég get svarið
það. Það eina sem ég var
búinn að ákveða var að hafa
herbergi, ég inni í því ásamt munum úr lífi mínu.
Svo var þetta parkett svo flott að við ákváðum að
kýla á það. Þá sýndu þeir mér Oasis-plötuna og
hún er skuggalega lík,“ segir Ingó. Baldur Kristjáns
tók myndina og hönnun var í höndum Jens
Nørgaard-Offersen hjá Vatikaninu. Hallmar Freyr
Þorvaldsson sá um myndvinnsluna.
LÍKIST UMSLAGI OASIS
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1112
13
5 „Kaffibollinn. Ég drekk mikið kaffi.“
6 „Spilastokkur. Ég hef gaman af því að
detta í einn og einn póker. Þannig
að hann er hafður með.“
7 „Svo eru fótboltinn og takkaskórnir
skýr tenging við boltann. Boltinn er
tekinn úr neti sem pabbi minn á af
fótboltum. Þetta er einn af fyrstu
boltunum sem ég byrjaði að sparka
í.“
8 „Home Alone er ekki uppáhalds-
myndin, en gríðarlega góð mynd.“
9 „Bak við Veðurguðaplötuna sést í
Emil í Kattholti. Það er engin sérstök
tenging í því.“
10 „Uppáhaldsgítarinn er í forgrunni.“
11 „Uppáhaldsleðurjakkinn hangir á
hurðinni.“
12 „Idolmyndin varð að vera með.
Maður lærði mikið af því dæmi
öllu.“
13 „Fatahrúgan er úti í horni. Ég sópa
oft fötunum út í horn.“
„Þetta er alveg frábært og við höfð-
um fulla trú á að okkar tillaga væri
flottust,“ segir vöruhönnuðurinn
Hafsteinn Júlíusson, sem bar sigur
úr býtum í samkeppni Icelandair og
Hönnunarmiðstöðvarinnar.
Keppnin gekk út á að hanna nýjar
matarumbúðir fyrir Icelandair, en
fjórtán tillögur bárust í keppnina.
Hafsteinn rekur hönnunarfyrir-
tækið HAF ásamt Daníel Ólafssyni
og eiginkonu sinni, Karítas Sveins-
dóttur. „Við byrjuðum að vinna í
þessu í lok ágúst og töluðum við
flugfreyjur og unnum alls konar
rannsóknarvinnu á bak við þetta,“
segir Hafsteinn glaður í bragði enda
fékk hann eina milljón í verðlaun.
Tillaga Hafsteins nefnist
Náttúru lega, þar sem ætlunin er
að kynna náttúru Íslands og sér-
kenni þess fyrir farþegum. „Þetta
snýst um að taka náttúru Íslands
og tengja hana við matarupplifun
farþeganna um borð í flugvélun-
um. Hver og einn réttur er eitthvað
ákveðið íslenskt náttúruelement,
eins og til dæmis stuðlaberg. Þá
kemur rétturinn í umbúðum sem
lítur út eins og stuðlaberg og inni
í þeim er servíetta þar sem hægt
er að nálgast upplýsingar um til
dæmis hvar á landinu stuðlaberg er
að finna og hvernig það hefur haft
áhrif á íslenska byggingarlist.“
Hafsteinn er nýfluttur heim frá
Mílanó á Ítalíu og segir sigurinn
gefa sér byr undir báða vængi. „Ég
bjóst ekki endilega við því að það
yrði mikið að gera eftir að ég kæmi
heim en það hefur verið alveg nóg
og ég dembi mér strax í næsta verk-
efni,“ segir Hafsteinn, sem ætlar að
fagna sigrinum í kvöld. „Ætli maður
skáli ekki við sína nánustu og dansi
smá á Prikinu í tilefni dagsins.“ - áp
Kynnir náttúru Íslands í háloftunum
SIGURVEGARI Hafsteinn Júlíusson
vöruhönnuður bar sigur úr býtum í
hönnunarsamkeppni Icelandair og
Hönnunarmiðstöðinnar þar sem hann
hannaði matarumbúðir með tengingu í
náttúru Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Við erum ennþá í góðu sambandi
og hann hefur fullan hug á því
að gera þetta. Ég heyrði síðast í
honum fyrir mánuði síðan. Þetta
snýst núna allt um tímasetningar,“
segir Jón Atli Jónasson, leikskáld
og rithöfundur. Sænski leikarinn
Mikael Nyqvist hefur enn í hyggju
að setja einleik Jóns Atla, Djúpið, á
svið í Svíþjóð.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá fyrir ári heillaðist Nyqvist
af verki Jóns Atla. En svo gripu
örlögin í taumana, frammistaða
Nyqvist í Millennium-þríleiknum
vakti athygli um allan heim og
hann landaði hlutverki skúrksins
í fjórðu Mission: Impossible-
myndinni. Og hefur ekki litið til
baka síðan. „Hann er að hamra
járnið á meðan það er heitt þarna
úti,“ segir Jón Atli en bætir því
við að Nyqvist vilji setja verkið
upp í litlum sænskum sjávar-
plássum. „Mér líst mjög vel á þær
hugmyndir. Nyqvist er einn besti
sviðs leikari sem ég hef séð.“
Djúpið var frumsýnt í Dan-
mörku í gærkvöldi en þar leikur
einn fremsti sviðsleikari Dana,
Olaf Johannesen, undir stjórn
Egils Heiðars Antons Pálssonar
en sýningin er í tilefni af þingi
Norðurlanda ráðs. - fgg
Djúpið enn á dagskrá hjá Nyqvist
GÓÐIR SAMAN Mikael
Nyqvist hefur enn í
hyggju að setja upp og
leika einleik Jóns Atla
Jónassonar, Djúpið, þrátt
fyrir miklar annir
í Hollywood.
Hann vill
setja það
upp í litlum
sænskum
sjávar-
plássum.