Morgunblaðið - 04.03.2011, Page 8

Morgunblaðið - 04.03.2011, Page 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 • www.belladonna.is Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Flott föt fyrir flottar konur Stærðir 40-60 Vertu vinur á Facebook Þ að er eiginlega allt í gangi, ég mundi segja að hvert fermingarbarn fengi eindfaldlega að njóta sín. Greiðslan eru persónulegri, hver og einn fær að halda sínum stíl. Það eru ekki allir steyptir í sama mótið líkt og áður var þegar næstum hver einasta fermingarstúlka skartaði slöngulokk- um,“ segir Ragnheiður Björk Sveinsdóttir hjá hársnyrtistofunni Eplinu, en hún er annar eigandi stofunnar ásamt Birnu Hermannsdóttur. „Heysátugreiðslan sést ekki lengur heldur er hárinu leyft að njóta sín.“ Ragga nefnir að flétturnar haldi áfram að vera vinsælar enda eru þær dálítið stelpulegar og henta því vel fyrir fermingarstúlkur. „Flestar fermingarstúlkur í dag eru með sítt hár. Margar eru búnar að vera að safna lengi og sumar hafa á orði að þær ætli að klippa sig eftir fermingu, ekki fyrr,“ segir Ragga. Fylgihlutir á undanhaldi „Strákarnir kjósa svo margir að vera svolítið Bítlalegir og þá getur síddin rokk- að nokkuð til og frá en toppurinn er alltaf frekar þungur og þá er hægt að móta hann með vaxi eins og hver vill,“ segir Ragga. Hún segir fermingarhárgreiðsluna jafnan vera samvinnuverkefni ferming- arbarnsins og hárgreiðslumeistarans. „Þetta þarf að gera svo allir verði sáttir. Reyndar gerist það stundum að mömmurnar hafa sterkari skoðanir á því hvað á að gera svo okkur finnst best að ræða bara við fermingarbörnin sjálf,“ segir Ragga kímin. „Annars vita krakkarnir alveg hvað þau vilja, þau fylgjast með því sem er að gerast úti í heimi og koma oft með góðar hugmyndir.“ Ragga segir fylgihluti vera á undanhaldi, fermingarstúlkur vilji kannski vera með lítil blóm. Þær Andrea, Þóra og Elfa, starfsmenn Eplisins, sáu um hárgreiðsluna og um förðun sá Elfa Hrund. Ljósmyndirnar tók Tinna Stefánsdóttir. Fylgihlutirnir eru frá Skarthúsinu. birta@mbl.is Flottir Strákarnir kjósa svo margir að vera svolítið Bítlalegir og þá getur síddin rokkað nokkuð til og frá. Fermingarstúlka Flétturnar má útfæra á marga vegu líkt og hér er gert með góðum árangri. Fín Sumar fermingarstúlkur vilja hafa hárið uppsett enda eru margar með sítt hár sem býður upp á mikla möguleika. Flétta Vinsældir fléttunnar hafa aukist undanfarin ár og ekki virðast vinsældirnar vera að dala. Náttúrulegt Hárinu er leyft að njóta sín og skreytt með einni fléttu og tveimur litlum blómum. Hver fær að halda sínum stíl Mikilvægt að leyfa fermingarbarninu að vera með í ráðum þegar fermingargreiðslan er valin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.