Morgunblaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 16
F
riðrika Hjördís Geirsdóttir
hefur haldið vinsæl bolla-
kökunámskeið að und-
anförnu en kökurnar eru
ekki aðeins bragðgóðar
heldur sérstaklega fallegar á að líta.
„Ég hef verið með fullt af fólki á
námskeiðunum sem er að undirbúa
veislur og þar á meðal bæði ferm-
ingar og brúðkaup. Þetta á alltaf við
og gerir veisluborðið svo fallegt og
er alltaf fallegt á borðinu,“ segir
Rikka, eins og hún er jafnan kölluð,
og útskýrir að þegar búið sé að
skera í stóra veisluköku myndist sár
í hana, sem geri hana ekki eins fal-
lega á að líta.
Skreytingarnar geta líka verið
fjölbreytilegar og bendir Rikka á að
minna sé stundum meira. „Það þarf
ekki smáskraut á hverja einustu
köku, á þriðju hverju er alveg nóg.
Mér finnst einfaldleikinn oft fal-
legri. Það er líka hægt að búa til
kökur með sykurmassa en þá ertu
kominn í töluvert meiri vinnu. Kök-
ur með smjörkremi eða súkku-
laðikremi geta verið mjög fallegar,“
segir þessi smekkkona.
Rikka hefur tekið að sér að útbúa
bollakökur fyrir fermingarveislur í
samstarfi við Kökuhúsið í Kópavogi
og hannar þá kökurnar eftir því
hvað fólk biður um en eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum hefur
hún gert margvíslegar skreytingar.
Hún segir að einn af kostum þess að
bjóða upp á bollakökur sé að þær sé
hægt að gera í mismunandi stærðum.
Litlar bollakökur séu heppilegar fyr-
ir stærri veislur þar sem pinnamatur
sé í boði. „Ég geri yfirleitt minni
kökur fyrir veislur og mæli þá með
tveimur á mann.“
Líka námskeið í sjálfstrausti
Þó að skreytingarnar líti út fyrir
að vera flóknar gengur fólki vel að
gera þær á námskeiðunum. „Fólk
mætir gjarnan með engar væntingar
til sjálfs sín, segist ekki kunna að
baka og hafa verið dregið á staðinn.
En viðkomandi kemur sjálfum sér á
óvart og fer svífandi út. Það er svo
gaman að kenna á námskeiði þar sem
fólk er að gera eitthvað skapandi,
sem byggir upp sjálfstraustið í leið-
inni.“
Á námskeiðinu lærir fólk réttu
handtökin en í þessu eins og öðru
skapar æfingin meistarann. „Þetta er
svo skemmtilegt, eins og að fara aft-
ur í leikskóla og fá útrás fyrir sköp-
unarþörfina. Ég sé hvernig lifnar yfir
fólki eftir námskeiðið,“ segir Rikka.
Uppbókað er á bollakökunámskeið
Rikku í mars en fleiri námskeið
verða á dagskrá í apríl. Besta leiðin
til að komast að er að skrá sig á á
lista hjá cupcakes@hagkaup.is eða í
síma 563 5082. Fyrir upplýsingar og
pantanir á kökum er best að hafa
samband við Kökuhúsið í síma 554
2708. Einnig má finna frekari upp-
lýsingar og myndir á Facebook-síðu
Rikku.
ingarun@mbl.is
Smekkkona Friðrika Hjördís
Geirsdóttir.
Fallegar á
veisluborðinu
Bollakökurnar hennar
Rikku eru mikil listaverk og
skemmtileg tilbreyting á
fermingarhlaðborðinu frá
stóru marsípankökunni.
Skapandi bakstur Það er hægt að leika sér með litina og formin.
Fallegt Syk-
urmassaskraut
getur verið af
ýmsum stærðum
og gerðum.
Pastel Fallegur
matur eykur við
matarupplif-
unina.
Blóm Fallegar
skreytingar.
’
Þetta er svo
skemmtilegt, eins og
að fara aftur í leikskóla
og fá útrás fyrir sköp-
unarþörfina. Ég sé hvern-
ig lifnar yfir fólki eftir
námskeiðið.
16 | MORGUNBLAÐIÐ
Vanillubollakökur
12-16 stk.
100 g mjúkt smjör
110 g sykur
2 egg
1 tsk. vanilludropar
120 g hveiti
2 msk kartöflumjöl
1½ tsk. lyftiduft
12-16 pappírsform
Hitið ofninn í 150°C á viftu-
stillingu, annars 160°C. Hrærið
smjör og sykur saman þar til bland-
an verður ljós og létt. Bætið eggj-
unum saman við, einu í einu og
hrærið vel á milli. Bætið van-
illudropunum út í. Hrærið að lokum
þurrefnunum saman við og hrærið
stuttlega. Raðið pappírsform-
unum í bökunarform, hálffyllið
pappírsformin og bakið í 18-20
mínútur.
Vanillusmjörkrem
250 g mjúkur smjörvi
1 ½ tsk vanilludropar
500 g flórsykur
1/2 tsk. salt
40 g kakó
200 ml mjólk
Hitið ofninn í 150°C á viftu-
stillingu, annars 160°C. Hrærið syk-
ur og smjör vel saman þar til bland-
an verður ljós og létt. Bætið
eggjunum saman við og hrærið.
Blandið þurrefnunum saman og
hrærið saman við smjörblönduna
ásamt mjólkinni. Raðið pappírs-
formunum í bökunarform, hálffyllið
pappírsformin og bakið í 20 mínútur.
Súkkulaðikrem
500 g flórsykur
60 g kakó
1 egg
80 g smjör, brætt
1 tsk. vanilludropar
3 msk. sterkt kaffi
½ tsk. salt
Setjið flórsykur og kakó í skál og
hrærið eggi og bræddu smjöri sam-
an við ásamt vanilludropum, kaffi
og salti.
Hrærið smjörið og vanilludrop-
ana í 1-2 mínútur. Bætið 1/3 af
flórsykrinum saman við í senn og
hrærið vel á milli. Ef kremið er of
þykkt er hægt að nota örlitla
mjólk til að þynna það.
Súkkulaði-bollakökur
12 stk.
150 g sykur
150 g púðursykur
125 g smjör
2 egg
260 g hveiti
1 tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft