Morgunblaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 43
Nú er komið að því: bernskuárin eru að baki, unglingsárin
brostin á og örstutt í fullorðinsárin. Allir ungir piltar ættu þá að
geta haft sem leiðarvísi bókina Gentleman: A Timeless Guide
to Fashion. Óhætt er að fullyrða að þar sé á ferð eitthvert allra
besta ritið um klæðnað karlmanna.
Farið er í allt frá því smæsta til þess stærsta og fínasta, les-
andinn leiddur með góðum skýringarmyndum í gegnum fata-
skáp hins vel klædda karlmanns og ætti að vera með það á
hreinu í lokin hver munurinn er á vönduðum fötum og óvönd-
uðum, hvernig á að binda þverslaufu, strauja skyrtu og tjónka
við klæðskerann.
Ef ekki tekst að finna bókina til sölu í betri bókabúðum má
panta hana af Amazon og bjóða margar bókaverslanir upp á
pöntunarþjónustu. Án flutningskostnaðar og íslenskra gjalda
kostar ritið um 20 dali.
ai@mbl.is
Áhugaverðar fermingargjafir
Ómissandi handbók
fyrir unga herramenn
Jakkaföt Það er gott að eiga
handbók sem gefur góð ráð varð-
andi klæðnaburð.
MORGUNBLAÐIÐ | 43
KAKA ÁRSINS 2011
Bernhöftsbakarí er sigurverari
í keppninni um köku ársins 2011
Þér er óhætt að treysta okkur fyrir veislunni þinni
Upplýsingar í síma 551 3083
Áhugaverðar
fermingargjafir
Þegar kemur að veglegustu ferming-
argjöfunum vilja gefendur iðulega að
gjöfin endist helst alla ævi og sendi
fermingarbarninu skýr skilaboð um
þroska og ábyrgð.
Hér á árum áður þóttu vönduð arm-
bandsúr sígild fermingargjöf, en hafa í
seinni tíð vikið fyrir hljómtækjum,
tölvum og jafnvel vélsleðum.
Hvernig væri að fara aftur í klass-
íska gjafavalið og finna öndvegisúr í
gjöf? En úrið má auðvitað ekki vera
neitt minna en ekta eðalgripur ef það
á að endast vel. Vandað úr með sígilt
útlit ætti að fara vel á hendi langt fram
á fullorðinsár, og ef hönnunin er vönd-
uð og smíðin fyrsta flokks getur úrið
jafnvel gengið í erfðir milli kynslóða.
Þá er nú aldeilis fermingargjöfin að
endast á meðan tölvur og tónlist-
argræjur eru löngu farnar í söfnunar-
gáminn.
ai@mbl.is
Gjöf sem
getur enst
alla ævi