Morgunblaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 60
60 | MORGUNBLAÐIÐ
Skólavörðustíg 12 og Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Litirogfondur.is
Fyrir ferminguna
Leynist listamaður í þinni fjölskyldu?
Höfum mikið úrval af myndlistarvörum við allra hæfi.
Glæsilegt úrval af sérhönnuðum handskreyttum
fermingarkertum, serviettum, fermingarstyttum
og skreytingarefni.
M
b
l1
26
08
70
f i i r l f li t r r i llr fi
Litlar, ósætar múffur eru til-
valdar á hlaðborð og það er
hægt að bragðbæta þær á ýms-
an hátt, með osti, kryddjurtum,
smátt skornu kjöti og grænmeti
og ýmsu öðru.
Grunndeig
300 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
2 egg
250 ml mjólk
1 tsk. salt
Osta- og vorlauksmúffur:
75-100 g rifinn ostur, t.d. cheddar
2 vorlaukar, saxaðir smátt
nýmalaður pipar
Hangikjötsmúffur:
75 g hangikjöt, saxað
smátt
75 g ferskur mozzarella
eða annar ostur, rifinn eða
skorinn í litla bita
2 tsk. ferskt timjan eða ½
tsk. þurrkað
nýmalaður pipar
Hitaðu ofninn í 200°C.
Hrærðu saman hveiti, lyftiduft,
eggjum, mjólk og salt. Blandaðu
hinu saman við með sleikju.
Settu deigið í lítil múffuform, það
ætti að nægja í 30-40 form eftir
stærð. Bakaðu múffurnar í miðjum
ofni í 12-15 mínútur, eða þar til þær
hafa lyft sér vel og eru gullinbrúnar.
Bragðbættar múffur
Útbúa má holla og skemmti-
lega smárétti með því að hola
gúrkubita að innan með kúlu-
járni (melónujárni) eða bara
teskeið og fylla þá. Hægt er
að nota alls konar fyllingar
og blanda saman smátt
skornu grænmeti, kjöti eða
fiski, osti og ýmsum sósum
og kryddjurtum.
Gúrkubollar með
grænmetisfyllingu
3 gúrkur, beinar
100 g tómatar, vel þroskaðir
½ paprika, gul eða appels-
ínugul
50 g fetaostur
2-3 msk. grænt pestó, gjarnan
heimalagað
2 msk. ólífuolía
pipar
salt
steinselja
Skerðu endana af gúrk-
unum og skerðu þær síðan í
2-3 cm bita. Holaðu hvern
bita að innan og reyndu að
gera djúpan bolla án þess að
gera gat í gegn. Ef það gerist
samt sem áður geturðu skor-
ið botninn neðan af kúlunni
sem þú varst að stinga út og
lagt hann aftur á sinn stað.
Skerðu tómatana í litla bita
og fræhreinsaðu paprikuna
og skerðu hana í litla teninga.
Myldu fetaostinn og bland-
aðu honum saman við tóm-
ata og papriku, ásamt pestói,
ólífuolíu, pipar, salti og sax-
aðri steinselju. Settu blönd-
una í gúrkubollana.
Gúrkubollar
S
máréttir eru að mörgu
leyti sniðugur kostur fyrir
stóra daginn. Þeir geta
verið í aðalhlutverki á
hlaðborðinu og er þá hægt
að bjóða upp á ótrúlega fjölbreytni í
bragði og framsetningu en þeir geta
líka spilað minni rullu og þá gjarnan
verið annað hvort „í stíl“ við aðal-
réttina eða verið allt öðruvísi og
skemmtilegt stílbrot.
Marga smárétti má búa til fyr-
irfram, sem sparar tíma, stress og
fyrirhöfn á fermingardaginn. Litlar
kjötbollur, salöt og pestó á snittur,
pinnamat af ýmsum gerðum, brauð-
bollur og fylltar tortillarúllur; allt
þetta má gera fyrirfram og geyma í
ísskáp.
Möguleikarnir eru endalausir og
uppskriftirnar á þessari síðu aðeins
tillögur og innblástur. Þær eru birt-
ar með góðfúslegu leyfi ástríðu-
kokksins Nönnu Rögnvaldardóttur,
sem gaf út bókina Smáréttir Nönnu
á síðasta ári, og kokkalandsliðsins,
en bók þeirra Einfalt með kokka-
lansliðinu, kom út á vegum Sagna
útgáfu fyrir jól.
holmfridur@mbl.is
Ljúffengur
munnbiti
Girnilegir, fjölbreyttir og mátulegir munnbitar;
smáréttir eru upplagðir í fermingarveisluna.
Ljósmyndari/Gísli Egill Hrafnsson