Morgunblaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 48
Morgunblaðið/Kristinn
Fín Fermingarbörnin fín um hárið og tilbúin fyrir stóra daginn.
Þ
ær Hanna Sigríður Sig-
urðardóttir og Kristrún
Ýr Gísladóttir, eigendur
Kúltúru í Glæsibæ,
greiddu meðfylgjandi
fermingarbörnum fyrir ferming-
arblað Morgunblaðsins.
„Mér finnst látleysi og náttúru-
leiki einkenna greiðsluna í ár sem
og síðari ár,“ segir Hanna Sigga.
„Persónuleg einkenni fá að njóta
sín, ef fermingarstúlkan er með
liðað hár ýkjum við það aðeins án
þess þó að fara yfir í slöngulokka-
greiðslurnar gömlu. Eins vilja þær
sem eru með sléttara hár jafnan
láta slétta það enn betur. En liðir
og bylgjur hafa verið og eru enn
áberandi í fermingarhárgreiðslu.“
Að draga fram það flottasta
Hanna Sigga segir áberandi
hvað lítið sé um fylgihluti og
skraut í fermingargreiðslunni í ár.
„Lausir léttir hnútar eru svo
mest teknir af þeim sem vilja vera
með hárið uppsett. Þetta er ákveð-
in tilvísun í æskuna og gömu
balletthnútana sem margir kann-
ast við. Fléttur og snúningar í
toppinn eru einnig áberandi með
uppsettu hári. Þá er einkennandi
að leggja hárið, hvort sem það er
uppsett eða slegið.“
Hanna Sigga segir fermingar-
börnin nær alltaf hafa fastmótaðar
skoðanir á því hvernig greiðslan
eigi að vera.
„Síður toppur er svo einkenn-
andi hjá strákunum. Þeir vilja
flestir vera með hárið svolítið loðið
án þess þó að það nái yfir eyru
eða sé mjög lubbalegt,“ segir
Hanna Sigga spurð um strauma
og stefnur hjá fermingardrengj-
unum.
„En í grunninn snýst þetta um
að draga fram það flottasta hjá
hverju fermingarbarni fyrir sig.
Sama greiðslan passar ekki öllum
og því mikilvægt að hver og einn
fái að halda sínum sérkennum.“
birta@mbl.is
Toppurinn Síður toppur er einkennandi hjá fermingjardrengjum í ár.
Flott Fléttur og snúningar í toppinn eru áberandi með uppsettu hári.
Snúður Lausir hnútar eru svo mest teknir af þeim sem vilja vera með hárið uppsett.
Látlaust og
náttúrulegt
Grófir, bylgjaðir en
náttúrulegir liðir í slegnu
hári. Uppsett hár í lauslega
hnúta og toppurinn gjarn-
an fléttaður eða bundinn
upp.
48 | MORGUNBLAÐIÐ