Morgunblaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ
F
ermingarmyndatökur eru
alltaf skemmtilegar og að
mörgu leyti vorboði.
Krakkarnir eru alltaf jafn-
kátir og glaðir enda er
þetta stór dagur í lífi þeirra. Hins
vegar hefur sú breyting orðið á þeim
átján árum síðan ég byrjaði í þessu
að þau eru upplitsdjarfari og
ákveðnari en var og gefa skýrt til
kynna hvað þau vilja,“ segir Kristín
Bogadóttir ljósmyndari í Reykjavík.
Klæðnaður á fermingardaginn
fylgir tískunni og breytist frá ári til
árs – sama hvort það eru föt, skór,
hártíska eða annað. Eða hver kann-
ast ekki við að hafa séð gamlar ferm-
ingarmyndir af sjálfum sér, systk-
inum eða pabba og mömmu sem eru
svo hallærislegar að það hálfa væri
nóg, eins og
gjarnan er sagt.
Fínlegir kjólar
og jakkaföt
„Mér er minn-
isstætt í kringum
1995 þegar stelp-
urnar komu í
myndatökur á
þykkbotna Buff-
alóskóm og
strákarnir í stórum gallbuxum og
hettupeysum. Þetta þótti það allra
flottasta þá og bara gaman að hugsa
til þess eftir á hvað tískan breytist.
Núna koma stelpurnar mikið í
myndatökur í fínlegum kjólum og
strákarnir í jakkafötum með bindi,“
útskýrir Kristín. Segir að einnig hafi
færst í vöxt að myndatakan sýni
áhugamál á einhvern hátt. Þannig
koma fermingarbörn stundum með
íþróttabúninga eða hljóðfæri með
sér og sum fermingarbarnanna láta
mynda sig með gæludýrinu sínu.
„Krakkarnir – og eins foreldrar
þeirra – hafa yfirleitt mjög skýrar
hugmyndir um hvernig myndir þau
vilja. Ungir krakkar eru mikið á net-
inu, skoða þar alls konar myndir og
það mótar viðhorf þeirra og eins for-
eldranna sem oft nota tækifærið á
þessum tímamótum og láta taka
myndir af allri fjölskyldunni saman,
því þrátt fyrir að allir eigi mynda-
vélar í dag og myndi mikið þá er allt-
af stemning í því að fara til ljós-
myndara og láta taka almennilegar
myndir af öllum,“ segir Kristín sem
tekur fermingarmyndirnar yfirleitt í
stúdíói.
Albúm til framtíðar
„Stundum eru fermingarmyndir
teknar utanhúss; það er að segja ef
veður og birta leyfa. Það er auðvitað
stórskemmtilegt eins og allar úti-
myndatökur eru. Brúðkaup á sumrin
eru til dæmis nánast alltaf mynduð
úti, því fólk vill ekki annað í dag.
Enda verða myndirnar líflegar og
bakgrunnur fjölbreyttur með því
móti,“ segir Kristín.
Sú var tíðin að allir voru myndaðir
á fermingardaginn sjálfan. Nú er
þetta hins vegar að breytast.
„Færst hefur í vöxt að fjölskyldur
komi í myndatöku einhverjum dög-
um fyrir fermingu. Þá eru mynd-
irnar tilbúnar á fermingardaginn,
svo hægt sé að sýna þær á skjá í
veislunni, jafnvel nota þær í boðs-
kortið, og eins sýna gestunum í al-
búmi. Ég legg áherslu á að skila
myndunum í albúmi því það endist til
framtíðar og er alltaf eigulegt “ segir
Kristín Bogadóttir sem hefur starf-
að sem ljósmyndari í allmörg ár og
sinnir afar fjölbreyttum verkefnum.
sbs@mbl.is
Fjölskylda Fermingin er hátíð fjölskyldunnar og merkisdagur unga fólksins sem heldur vonglatt út í lífið.
Unglingur Á myndunum gefa krakkarnir skýrt til kynna hvað þau vilja.
Bros Fermingarmyndir eru skemmtilegar, segir Kristín Bogadóttir ljósmyndari.
Upplitsdjarfari
og ákveðnari
Skemmtilegur vorboði, segir Kristín Bogadóttir um fermingarmyndatökurnar.
Tískan breytist og börnin líka. Myndirnar eru oft teknar fyrir daginn stóra.
Fermingarstúlka Íbyggin á svip, með hönd undir höku og hugsar til framtíðar.
kristín
Bogadóttir
Farðu inn á www.oddi.is
og búðu til fallegt boðskort.
Persónulegt boðskort með þínum myndum.
Hannaðu þitt
eigið fermingarkort
á oddi.is
VERÐ FRÁ
159 KR.
STYKKIÐ