Morgunblaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 33
Þegar komið er á 14. ár fer námið
smám saman að þyngjast. Samræmd
próf eru á næsta leiti, svo framhalds-
skóli og væntanlega háskólanám enn
síðar.
Hvernig væri að gefa gjöf sem skap-
ar forskot í náminu og endist alla ævi
ef rétt er staðið að? Ekki er nóg með
að námslesturinn léttist heldur kemst
fermingarbarnið vonandi á bragðið og
fer að gleypa í sig fagurbókmennt-
irnar líka.
Hraðlestrarnámskeið eru kennd
víða um land. Börn á fermingaraldri
eru alls ekki of ung til að taka þátt og
hægt að finna fjölda umsagna fólks
sem hefur snaraukið hjá sér lestrar-
hraðann eftir að hafa lært tæknina.
Sennilega er leitun að betra vega-
nesti út í lífið en að geta lesið texta
leifturhratt með góðum skilningi og
hægt að ýta fermingarbarninu í rétta
átt með því að lauma gjafabréfi inn á
milli sálmabókanna og svefnpokanna
sem krakkinn fær í gjöf.
ai@mbl.is
Áhugaverðar
fermingargjafir
Gjöf sem
gefur forskot
í lífinu
Morgunblaðið/RAX
MORGUNBLAÐIÐ | 33
Fermingargjafir
sem fylgja
þér alla ævi
Eitt helsta trúarrit Íslendinga
í gullfallegri útgáfu
Hér eru túlkaðir í máli og myndum
valdir biblíutextar sem búa yfir
visku, styrk og hvatningu
– gott veganesti fyrir lífið.
Ómissandi handbók fyrir alla
byrjendur í eldamennsku og
heimilishaldi Hér er rýnt í landslag,
liti og víðáttur fjallanna.
Bók fyrir náttúruunnendur.
salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík
Salka
/
M
EL
Flottur Eames-hægindastóllinn.
Maurinn Eftir Arne Jacobsen.
Eggið Eftir Arne Jacobsen.
Um miðja síðustu öld fór að tíðkast að gefa ferming-
arbörnum húsgögn. Tímarnir hafa breyst örlítið og flest
eiga börn og unglingar í dag ágætlega prýtt
svefnherbergi með hirslum, vinnuaðstöðu og
sæmilegu rúmi.
Fermingardagurinn getur samt verið tæki-
færi til að gefa húsgagn sem virkilega endist og
gagnast fermingarbarninu lengi, lengi. Það er
jafnvel óvitlaust að fá nokkra aðra ættingja til
að leggja í púkk enda felst oft töluverð fjárfesting
í vönduðustu húsgögnunum.
Það þarf líka að vanda valið af mikilli kostgæfni. Sí-
gild húsgögn á borð við voldugan hægindastól úr leðri
eða antík-mublu eldast vel og eiga að geta passað
með hvers konar innbúi. Önnur lausn er að velja
klassíska nútímahönnun og koma þar mörg húsgögn upp í
hugann. Barcelona-stóll eftir Mies van der Rohe, Eggið eftir
Arne Jacobsen, Eames-hægindastóllinn eftir þá Charles og
Ray Eames eða Pratfall-stóllinn hans Philippe Starck eru
dæmi um húsgögn sem munu án vafa þykja jafnfalleg eftir
nokkra áratugi og þau þykja í dag.
ai@mbl.is
Huggulegt húsgagn
Áhugaverðar fermingargjafir