Morgunblaðið - 04.03.2011, Side 32
32 | MORGUNBLAÐIÐ
XPERIENCE línan samanstendur af andlitsfarða, maskara og varasalva með lit.
Það sem einkennir þessa línu er fiðurlétt áferð og eiginleikar hennar. Farðinn er
einstaklega léttur en þekur vel. Maskarinn hefur IFX bursta með gúmmíhárum,
þykkir og greiðir augnhárin. Varasalvinn nærir varirnar og gefur þeim raka.
NÝTT
XPERIENCE
www.maxfactor.co.uk Þ
að ríkir mikil hefð fyrir
kransakökum á veislu-
borðum landsmanna og er
þar fermingarveisluborðið
ekki undanskilið. Hefðin er
þó misjafnlega sterk frá einni fjöl-
skyldu til annarar. Stundum virðast
allir vilja bita af kökunni góðu sem
þarf að vera stór samkvæmt því. Í
öðrum tilvikum getur kakan verið
minni, en þau tilvik eru færri,“ segir
Örvar Birgisson, bakari í Kökuhús-
inu við Auðbrekku í Kópavogi.
Örvar er einn af betri bökurum
landsins og hefur verið í landsliði mat-
reiðslumanna. Hann, ásamt fjölskyldu
sinni, er eigandi Kökuhússins þar sem
– eins og nafnið gefur til kynna –
kökubakstur hverskonar er í háveg-
um hafður. „Fólk er fyrir löngu byrj-
að að spá í fermingarundirbúninginn.
Fyrstu pantanirnar um fermingar-
kökur sem við fengum komu fljótlega
í kringum áramótin,“ segir Örvar.
Enda þótt gott sé að leita til bak-
ara spreyta margir sig á því að baka
kransakökuna sjálfir. Massinn í kök-
una góðu fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum – og í hann er bætt
sykri og eggjahvítu.
Ákveðin tilfinning
„Bakstur kransaköku er æfing
eins og allt annað. Fólk þarf að hafa
ákveðna tilfinningu fyrir því hvernig
gera skal hlutina. En með æfingunni
hefst þetta allt saman,“ segir Örvar
sem bætir við að einasta sem hamli
fólk í kökubakstri sé hugmynda-
flugið. Í rauninni sé allt hægt – og
ekki er langt síðan Örvar bakaði
sjálfur fyrirmyndarfermingartertu
úr súkkulaði.
„Í raun má segja kransakökurnar
séu sígildar í fermingarnar. Margir
vilja þær líka í giftingarnar enda þótt
hefðbundnar brúðkaupstertur hafi
þar yfirhöndina,“ segir bakarinn í
Kökuhúsinu.
sbs@mbl.is
Fallegt Kranskakan
er falleg á ferming-
arborðið og í há-
vegum höfð.
Morgunblaðið/Golli
Kaka Mikil hefð fyrir kransakökum á veisluborðum og er þar fermingin ekki undanskilið. Stundum vilja allir
fá bita af kökunni sem þá þarf að vera stór, segir Örvar Birgisson bakari í Nýja kökuhúsinu.
Kransakakan er
hvarvetna kærkomin
Kransakökur er kúnst að baka. Hefðin er sterk. Fyrstu pantanir komu um áramótin.
Hugmyndaflugið eina takmörkunin í bakstri, segir Örvar Birgisson.
Kransakaka fyrir
fimmtán manns
1 kg kransakökumassi (Odense)
500 g sykur
1 stk. eggjahvítur
Aðferð Hrærið saman kransakök-
umassann og sykurinn í hrærivél
eða mixer, bætið hvítunum út í í
restina. Rúllið í ca 1,5 cm svera
lengju og klappið niður með
hendinni. Skerið svo fyrsta bit-
ann 10 cm langan og mótið í
hring svo næstu alltaf 3 cm lengri
(13, 16, 19, o.s.frv.) þar til þið eruð
komin með 12 hringi. Bakið svo í
ca 10-12 mín. við 180°C.
Hljóðfæri Oft fá ferming-
arbörn hljóðfæri í gjöf. Að
gítarinn sé góður í gogg-
inn er hins vegar óvenju-
legra en ekkert getur hins
vegar stoppað góðan og
hugmyndaríkan bakara.